Tíminn - 15.07.1995, Blaðsíða 2

Tíminn - 15.07.1995, Blaðsíða 2
2 ----- MWlI iCTw 1 Laugardagur 15. júlí 1995 Steingrímur j. Sigfússon: Vandinn þeim mun verri sem lengur dregst aö takast á vib hann: Stjórnvöíd taki málib til alvarlegrar skoðunar „Þaö er algerlega óraunhaeft annab en ab stjómvöld taki þennan vanda fískvinnslunnar alvarlega og til skobunar. Hann verbur bara þeim mun verri sem lengur er dregib ab takast á vib þab verkefni ab skapa grein- inni einhvem starfsgmndvöll. Vib þekkjum vel afleibingar þess ab keyra vinnsluna meb tapi, þab verbur þá einhver tímabundin skuldasöfnun og svo komast menn í þrot," sagbi Steingrímur J. Sigfússon, for- mabur sjávarútvegsnefndar Al- þingis, er Tíminn ræddi vib hann um hugsanleg úrræbi vegna vanda fískvinnslunnar. „Ég held ab menn eigi eftir aö hrökkva upp vib þaö, að þótt sjávarútvegurinn hafi búið viö skárri afkomu núna nokkur miss- eri, þá hafa grundvallaraðstæð- umar, því mibur, ekki breyst hvað þab snertir að skuldastaðan er alveg gífurlega þung og má því ósköp lítiö út af bera. Með 100 milljarða á bakinu þolir greinin raunvemlega ekkert tap. Þannig að mér fundust fyrstu viöbrögð manna, að vilja svona eins og ýta þessu frá sér, ekki mjög trúverð- ug. Það kemur þá bara í kollinn á mönnum síðar meir". Abvaranir um að frystingin hverfi að mestu út á sjó segir Steingrímur í raun ekki koma á óvart. Þessi þróun hafi staðið lengi og margir varað vib aö það mundi enda með ósköpum ef ekki yrði breyting á. Afkoma sjó- frystingarinnar sé mun skárri og því eðlilegt að menn óttist enn eitt stökkið, verði ekkert að gert. „Þá kemur spurningin: Vilja menn eða þora menn að taka Steingrímur /. Sigfússon. einhverja pólitíska stefnu í þessu máli, eða láta þetta bara vera til- viljanakennt eins og hingað til?" Steingrímur segist lengi hafa verið þeirrar skoðunar að menn eigi ab móta einhverskonar land- vinnslu- og fullvinnslustefnu, sem miði að því að sem hæst hlutfall aflans sé unnið í landi og fullunnið sem mest. „Þannig að ég væri tilbúinn til að taka þátt í því að einhver stefnumörkun lægi til grundvallar einhverju því fyrirkomulagi eða ívilnandi að- gerðum sem styddi við bakið á landvinnslunni, eða a.m.k. bremsaði af þá þróun að hún haldi áfram að flytjast í stóraukn- um mæli út á sjó. Því ég held ab allir viðurkenni að því fylgja bæði miklar hættur og ókostir". Til að byrja meb sagði Stein- grímur kannski hyggilegast að stöðva útgáfu frekari vinnslu- leyfa til sjófrystinga, á meðan Sjávarútvegsrábherra: Fiskverkendur þurfa aö skoöa sín mál í Ijósi kostnaöarhœkkana sem þeir hafa tekiö á sig heima fyrir: Fullvinnsla á sjó engin ákveðin lausn „Þab er ljóst ab þab er rekstrarvandi bæbi í bæbi veibum og vinnslu á botn- fiski. Sumt af þessum þátt- um lýtur ab fyrirtækjunum sjálfum. Ab einhverju leyti hafa þau veriö aö taka á sig kostnabarhækkanir hér heima fyrir og þau þurfa náttúrulega ab skoba sín mál í því ljósi. En vib mun- um væntanlega eiga samtöl vib þeirra forystumenn og heyra hvab þeir segja," sagbi Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsrábherra er Tíminn spurbi hann um hugsanlegar abgerbir vegna þess mikla taps á botnfisk- vinnslu sem forsvarsmenn frystihúsanna hafa vakib máls á og abvarana þeirra um ab þetta leiöi til þess ab frystingin flytjist ab mestu eöa öllu leyti út á sjó. „Það eru vitanlega þeir sjálfir sem taka ákvörðun um að fara með þessa vinnslu út á sjó," sagði Þorsteinn. Þannig að sjái menn þá leiö helsta út úr vandanum að breyta yfir í sjófrystingu þá verði slík þróun bara sjálf- krafa? Þorsteinn bendir á að að- staöan í sjávarútveginum sé mjög misjöfn. „Það er ekkert hægt ab tala um sjávarútveg- inn sem eina heild og heldur ekki hægt að horfa á full- Leiðrétting Vegna umfjöllunar Tímans í blaöinu í gær um framkvæmdir Kristleifs á Húsafelli í Langjökli er rétt að taka það fram að Spari- sjóðirnir og Samband sparisjóða taka ekki þátt í þessu verkefni, eins og sakir standa. ■ vinnslu úti á sjó sem ákveðna lausn. Það er fyrst og fremst vinnsla ákvebinna tegunda sem hefur gengið úti á sjó og skilað góbri afkomu. En það er ekki endalaust hægt að auka framboðið á þeim mörkuðum og ekki öll sjóvinnsla sem gengur með sama hætti. Það er því ekkert einhlítt í þessum efnum". Þorsteinn Pálsson. menn væm að skoða málið og móta einhverja stefnu. Síðan sé það bara spuming um það hvort einhver pólitískur vilji sé fyrir því að tryggja ab starfsgrundvöllur vinnslu í landi jafnist þannig gagnvart vinnslu á sjó að það sé tiltölulega hlutlaust. En svo sé ekki í dag, þar sem sjófrystíngin njótí mun betri afkomu. „Víst geta menn sagt ab hún sé þar með hagkvæmari fyrir við- komandi útgerð. En hún er ekki endilega hagkvæmari fyrir þjóð- arbúið í heild sinni þegar endan- leg verðmæti hafa öll verið met- in. Menn hafa velt fyrir sér ýms- um hlutum eins og skattalegum aðgerðum eða hugsanlega t.d. einhvers konar kvótaálagi fyrir þann hluta aflans sem unninn er úti á sjó. Það eru auðvitað til ýmsar aðferðir, ef pólitískur vilji er fyrir hendi." Steingrímur segir eðlilegt að menn forðist í lengstu lög ab fara að stýra þessu beint eöa skammta sjófrystingu. „Og ég er vissulega í þeim hópi sem finnst þab ekki spennandi til- hugsun. En menn verða samt að velta hlutunum fyrir sér þegar svona aðstæður eru að koma upp," sagði Steingrímur J. Sigfús- son. Bersöglisvísur Sighvats Björgvinssonar Sighvatur vildi draga íslenzka sjúklinga og lækna, að mati Arna Bergmanns, inn i aust- rænan miðstýringar- kommúnisma. /SZIDCSRÐO /?Ð O/Sk'LfR SÉ ÓHÆTT /?Ð G/9A/6/) V/Ð Hl/Ð/N/) /) ££/M ? Sagt var... Sú var tíb „Sannleikurinn er harður húsbóndi. Þeir sem halda að þeir geti haft hann að fífli með hugsunarþoku og hentistefnu, lenda fyrr en varir í hafvillum. Sannleikurinn er sá að ís- land var á öndverðri öldinni hag- vaxtarríki á hraðferð, sem sprengdi af sér fjötra fortíðar." Jón Baldvin Hannibalsson í Alþýbublabinu í gær ab vanda 1 n fyrir þeim sem klappa fyrir nítjándu ölnni í þjóöhátíbarræöu Davíbs Oddssor r. Sumarskemmtun sú „Okkar gamli og gegni íslandsvin- ur Benny Hinn var á leiðinni og ætlaði að skemmfa landanum með nokkrum laufléttum kraftaverkum. Að sögn forráðamanna skemmtun- arinnar er reikna með að tveir blindir öðlist sýn, átta haltir muni ganga, einn Ifkþrár verði heill og tvær vergjamar fái fylli sína. Ef vel gengur er hugmyndin að halda upp í Gufunes og reisa einhverja upp frá dauðum." Nafnlaus höfundur dálksins „Dásamlegt líf" í Vikublabinu í gær. Ergjó! „Við erum að verða okkur úti um upplýsingar um þetta mál þannig að það er ósköp lítið sem ég get sagt um þetta á þessari stundu annað en það að Procter & Gam- ble eru að vinna í málinu og vænta má yfirlýsingar frá okkur." Ummæli sem Mogginn hefur eftir Pétri Jónssyni, markabsstjóra hjá innflytjanda þvottaefnisins Ariel, um auglýsingaherferb Friggjar í kjölfar rannsóknar Ibntæknistofn- unar sem leiddi í Ijós ab Maraþonib frá Frigg væri „fyllilega sambærilegt" vib Ari- el. Um refilstigu ástarinnar „Hann á oft erfitt með að treysta konum því að móðirin hefur brugbist honum. Hann er reyndur í kynlífi og á mörg skyndikynni að baki. Konan er óreynd að þessu leyti en hún er heilsteyptari mann- eskja og reynir að lækna manninn af bernskumeinum hans. Árangurs- ríkasta meðferðin eru æbisgengnar samfarir." Lýsing á stöblubum persónugerbum í bók- menntalegri úttekt Morgunblabsins í gær á ástarsögum nútímans. í heita pottinum... í Þingholtunum í Reykjavík munu nokkrir húseigendur hugsa Gub- jóni Fribrikssyni sagnfræðingi þegjandi þörfina. Ástæðan er nýja bókin hans Guðjóns, „Indæla Reykjavík" en þar eru lesendur lóðsaðir um Þingholtin í sex gönguleiöum, og má f bókinni lesa um merkileg hús á leibinni. Bókin hefur fengib gríðargóðar vibtökur og er algengt ab sjá fólk spásséra á kvöldin meb bók f hendi og virða fyrir sér húsin í þessu gamla hverfi. Reiðu húseigendurnir búa hins veg- ar f þeim húsum þar sem bókin tal- ar um ab fróölegt geti verib ab skyggnast bakvið eða að forvitni- legt sé ab fara undir undirgöng og skoða þennan og hinn óvenjulega gluggann. Sumstaðar mun fjöldi ókunnugs fólks f bakgörbum vera farinn að fara í taugarnar á húsráð- endum sem kunna ekki vib að hafa forvitna hverfisbúa inni á gafli hjá sér. í pottinum var verið að segja frá þvf ab skynmatshópur vísinda- manna frá Rannsóknarstofnun fisk- ibnabarins hafi farið á nýtt veitinga- hús í Reykjavfk þar sem landsfræg- ur kokkur sér um matseld. Fékk fólkið sér humar í forrétt en humar- inn bragbabist ekki rétt. Var humr- inum skilað og eitthvab annað pantað f stabinn, en einn vfsinda- mannanna tók meb sér sýnishorn af humrinum og efnagreindi í vinn- unni daginn eftir. Niðurstaðan var sláandi, þetta var ekki boðlegt sem mannamatur mibab við staðla, og var því hringt í kokkinn og hann látinn vita um þessi afleitu gæbi hráefnisins sem hann var að nota. Kokkurinn varð orðlaus um stund en frekar en þegja f skömminni sagbist hann einmitt hafa tekið eftir að humarinn virtist dálítib gamall, þess vegna hefði hann marinerað hann lengur en venjulega!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.