Tíminn - 15.07.1995, Blaðsíða 11

Tíminn - 15.07.1995, Blaðsíða 11
Laugardagur 15. júlí 1995 19 Orgelleikari frá Lyon á sum- artónleikum Hallgrímskirkju Sunnudagskvöldið 16. júlí leik- ur franski orgelleikarinn Thierry Mechler frá Lyon, Frakklandi, á þriðju orgeltónleikum tónieika- raðarinnar „Sumarkvöld við orgelið" í Hallgrímskirkju. Tón- leikarnir hefjast kl. 20.30 og er efnisskrá þrískipt. Fyrsti hlutinn er þýskt barok þar sem Thierry Mechler leikur tvö verk eftir Jo- hann Sebastian Bach. í>á koma verk eftir þrjú frönsk tónskáld frá síöari hluta 19. aldar og fyrri hluta 20. aldar: Charles-Marie Widor, Louis Vierne og Charles Arnould Tournemire. Að lokum leikur hann verk eftir Edouard Andres, en það var samið sér- staklega fyrir Thierry Mechler, auk þess sem hann leikur af fingrum fram spuna yfir fyrstu hendingar sálma séra Hallgríms Upp, upp mín sál og Gefðu að móðurmálið mitt. Um Tokkötu og fúgu í d-moll (dórísku) segir Thierry Mechler að áhrifa ítalska konsertsins gæti í tokkötunni. Bach sýni hljómborðabreytingar, sem gefi áheyrandanum hugmynd um hversu mikill orgelsnillingur hann var. Hann líkir tokköt- unni við straummikið fljót, óþrjótandi hreyfingu sextándu- parta. Hjarðljóö Bachs geymir líka áhrif ítalska skólans, en þar dregur Bach upp myndir frá fæbingu frelsarans: Aðdáun fjár- hiröanna, vitringarnir þrír, krossinn og englarnir. 8. sinfónía Widors var skrifuð undir áhrifum af konsert eftir Wagner, en úr henni leikur Mechler þættina Scherzo og Mo- derato Cantabile. Widor vefur þema konsertsins inn í mib- raddir síðari þáttarins á meðan fyrri þátturinn er fullur birtu og hraða. Áhrif hins þekkta stefs Big Ben, sem reyndar má einnig heyra frá turni Hallgrímskirkju, eru greinileg í verki Viernes Klukknaspil Westminster. Sálma- ljóð Tournemires Sjö orð Krists á krossinum sýna mjög hvernig tónskáldið reyndi í tónsmíöum sínum ab upphefja sál áh'eyr- enda sinna. Mechler leikur hér síðasta ljóðib, „Það er fullkomn- að", og um það segir hann að það sýni óendanleikann og tjái það sem ekki er hægt ab segja. Ummyndun Krists, sem tón- skáldið Edouard Andres tileink- aði Thierry Mechler, er verk sem byggir á miklum andstæðum: Röb hljóma, tóntegundaskipti, endurómun, litaáhrif, greinileg þemu í fótspili og glæsileg tokk- ata. í lok tónleikanna leikur Thi- erry Mechler af fingrum fram. Hann fær tvö þemu til að vinna með: fyrstu hendingarnar í sálmum séra Hallgríms Upp, upp mín sál og Gefðu að móðunnálið mitt. Það er rík hefð meðal franskra organista að leika af fingrum fram í messunni og fylgir Mechler þeirri hefð, sem franskir organistar hafa skapað er þeir leika á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju. Thierry Mechler fæddist árið 1962 í Mulhouse í Frakklandi. Hann hóf tónlistarnám í heima- bæ sínum, en hélt síðan til Strassborgar þar sem hann stundaði píanónám hjá Helene Boschi og nám í orgelleik hjá Daniel Roth. Árið 1981 vann hann fyrstu verölaun í Alþjóð- legu tónlistarkeppni Parísar og eftir það stundaði hann nám í París hjá Marie-Claire Alain og síðar einnig í spuna hjá Jacques Taddel. Thierry Mechler hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir leik sinn á orgel og fyrir tónsmíðar. Sem kennara í orgel- leik hefur honum á hverju ári veriö boðið, bæði innan Frakk- lands og til Þýskalands og Eng- lands, til að halda námskeib í orgelleik, auk þess sem hann hefur haldið tónleika víðs vegar um Evrópu og komið fram á fjölmörgum tónlistarhátíðum. Þá hefur leikur hans verið gef- inn út á fjölda hljómdiska. 1986-89 kenndi Thierry Mec- hler orgelleik vib tónlistarskól- ann í Annecy, en varð síðan organisti basilíkunnar í Thier- enbach. Frá árinu 1991 hefur hann verib organisti og tónlist- arstjóri í dómkirkju Jóhannesar skírara í Lyon og árið 1993 var hann skipaður umsjónarmaður CavailléColl- orgelsins stóra í Maurice Ravel-tónlistarsalnum í Lyon. ■ PAGBÓK IVJVA7UUUVAAJ\JUUVJI klukkustundar fresti. AFS-sam- tökin bjóða alla hjartanlega velkomna á fjölskylduhátíð út í Viðey þennan dag (á morg- un). X 196. dagur ársins -169 dagar eftir. 28. vika Sólris kl. 03.39 sólarlag kl. 23.26 Dagurinn styttist um 6 mínutur Félag eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni Dansað í Goðheimum, Sig- túni 3, sunnudagskvöld kl. 20. Dagsferb í Þórsmörk 19. júlí. AFS-fjölskylduhátíö í Viðey Skiptinemasamtökin AFS halda sína árlegu fjölskyldu- hátíð í Viðey á morgun, sunnudag, frá kl. 14. í Viðey verður heitt í kolun- um allan daginn, leikir og létt gaman fyrir unga sem aldna. Fjölmennt verður í staðar- skoðun undir leiösögn staðar- haldara og einnig er möguleiki á reiðtúr um eyjuna. Áætluð brottför út í Vibey er með ferj- unni frá Sundahöfn kl. 14, en eftir það gengur ferjan á Árbæjarsafn: Finnsk listakona sýnir bandavefnab Finnska listakonan Barbro Gardberg sýnir margvísleg bönd ofin í bandgrindum og í spjöldum á Árbæjarsafni á morgun, sunnudag. íslenskir vefarar verða einnig á staðn- um og svara fyrirspurnum um vefnað. Að auki verður sýndur refilsaumur og kniplað að hætti heldri kvenna um síð- ustu aldamót. Þjóödansafélag Reykjavíkur mun líka sýna íslenska þjóð- búninga og þjóðdansa vib hina nýju Hólmsverslun á safnsvæðinu kl. 15. Tvær myndlistar- sýningar á Akureyri Glugginn er sýningarými í verslunarglugga Vöruhúss KEA, sem rekið hefur verið í tengslum við Listasumar á Ak- ureyri. í Glugganum sýna listamenn viku í senn og er skipt á föstudögum. í gær hófst sýning Sigurdísar Hörpu Amarsdóttur í Gluggan- um. Hún stundaði myndlist- arnám við Myndlistarskólann á Akureyri og Iauk námi það- an vorið 1994. Sigurdís er starfandi myndlistarmaður á Akureyri og hefur haldið tvær einkasýningar, á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Verkið í Glugganum er TIL HAMINGJU Þann 1. júlí 1995 voru gefin saman í Kópavogskirkju af séra Pálma Matthíassyni, þau Þóra Möller og Halldór Jónsson. Þau eru til heim- ilis að Álfatúni 29, Kópavogi. MYND, Hafnarfiröl „innísetning" unnin úr 600 eintökum af litaðri ljósmynd. Í dag, laugardag, opnar Dag- ný Sif Einarsdóttir myndlistar- sýningu á Café Karólínu á Ak- ureyri. Dagný nam myndlist við Myndlistarskólann á Akureyri og útskrifaðist þaðan vorið 1993, úr málaradeild. Hún hefur síöan haldið tvær einka- sýningar og tekið þátt í sam- sýningum. Sýninguna á Café Karólínu kallar hún „Fjölskyldumynd- ir" og eru verkin unnin með blandaðri tækni á pappír. Sýningin stendur til 4. ág- úst. Fréttir í vikulok Vandræöi vib Noregsstrendur Flugafmæli meb stórri tertu Haldið var uppá 50 ára afmæli íslensks millilandaflugs í vik- unni. Starfsmönnum Flugleiða var boðin tertusneið í tilefni , dagsins._____________^ _____________________ Tvö banaslys Tvö banaslys urðu um síðustu helgi. Ungur maður fórst í bíl- veltu í Landeyjum og svifflugmaður fórst á Melgeröismelum í Eyjafirði er sviffluga hans ofreis. Gjaldþrot á Neskaupstab Kaupfélagið Fram í Neskupstað er gjaldþrota. Heildarskuldir eru 150 milljónir kr. Togaranum Má var meinað ab koma inn til hafnar í Honn- ingsvág í Noregi og leitað þar aðstoðar eftir að net flæktist í skrúfu skipsins. Síðar var fallið frá þeirri kröfu, en þá vildu norskir björgunarkafarar ekki taka verkið að sér vegna hótana norskra sjómanna. Loks tók norski sjóherinn verkiö ab sér og málið er Ieyst. Seglskúta í Reykjavíkurhöfn 3ja mastra seglskúta frá Úkraínu lá við festar i Reykjavíkur- höfn í vikunni. Sjötíu sjóliðsforingjaefni voru um borb. íshellisgerb í Langjökli Unnið var í vikunni aö gerð íshellis í Langjökli á vegum Kristleifs Þorsteinssonar í Húsafelli. Bjóða á ferðamönnum ýmsan viðurgjörning í þessum magnaöa helli. Frystingin meb tapi Nær 10% taprekstur verður af rekstri fyrstihúsanna í landinu á þessu ári. Hækkandi hráefnisverö er helsta ástæba þessa.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.