Tíminn - 03.10.1995, Side 1
79. árgangur
Þriðjudagur 3. október 1995
184. tölublað 1995
Ólafur C. Einarsson leggur til aö þingmenn sameinist
um aö tala aldrei lengur en í hálfa klukkustund:
Alþingi sett á
sumarsamkomu
á Þingvöllum?
Við setningu Alþingis í gær
varpa&i Ólafur G. Einarsson
fram þeirri hugmynd að
setning Alþingis fari fram á
árlegri þjóðarsamkomu á
Þingvöllum í framtíðinni. Og
sem skref í þá átt að skipu-
leggja þinghaldið betur varp-
aði þingforseti einnig fram
hugmynd um það aö þing-
menn sameinist um að flytja
aldrei lengri ræður en t.d. í
hálfa klukkustund hverju
sinni, nema í undantekning-
artilvikum. Hann tók fram
að þarna væri átt viö sam-
komulag en ekki lagaboð.
Ólafur sagbi sér hugleikiö að
efla tengsl þingsins og almenn-
ings og nefndi þingsetninguna
í því sambandi. „Mér hefur
þótt að þingsetningarathöfnin
mætti skipa meiri sess í þjóðlíf-
inu". Að mati þingforseta er
þessi hátíðlega athöfn nú of
lokuð. „Ég vil því tengja al-
menning betur setningarat-
höfninni og gera hana þannig
að stærri þætti í þjóðlífi okkar."
Og þar sem eðlilega gæti orð-
ib óheppilegt að setja þing
undir berum himni þann 1.
október leggur þingforseti til
að þingsetning yrði t.d. fyrsta
Vestmannaeyjar:
Nauðgun kærð
Frá Þorsteini Cunnarssyni, fréttaritara
Tímans í Vestmannaeyjum.
Nauðgun var kærð til lögreglu í
Vestmannaeyjum sl. sunnu-
dagskvöld. 16 ára stúlka kærði
nauðgun sem mun hafa átt sér
stað aðfaranótt sunnudags.
Lögregla yfirheyrði í gær mann
sem stúlkan benti á sem gjörn-
ingsmann. Að sögn lögreglu
mun verknaðurinn ekki hafa
átt sér stað í heimahúsi en varð-
ist að öðru leyti allra frétta.
Málið er í rannsókn. ■
laugardaginn í júlí, sem ekki
víki svo mjög frá hinum forna
þingsetningardegi. Auk sjálfrar
þingsetningarinnar, sem sé í
höndum forseta íslands, mætti
á þessum fundi kjósa forseta,
varaforseta og fastanefndir, en
fresta síðan fundi til 1. október.
„Athöfn sem þessi, sem al-
menningur sækti, gæti orðið
að viðburði í þjóðlífinu," sagði
þingforseti.
í ræðu sinni fjallaði Ólafur
einnig um þá kjaramálagagn-
rýni sem þingmenn hafa sætt
og líklegra aldrei jafn harðri og
undanfarnar vikur. Verst sagði
hann að fjölmiðlar sem hafa
meiri áhrif á skoðanamyndun í
þjóðfélaginu en aðrir hafi ekki
greint nægilega vel frá og „á
stundum ýtt undir rangfærslur
með óvandaðri umfjöllun um
málið." Þar sem forsætisnefnd-
in vilji ekki standa í stríði við
þjóðina boðaði þingforseti að
flutt verði frumvarp um laga-
breytingar sem taka mið af
þessari gagnrýni. ■
Þingsetning
fór framigœr meö hefbbundnum
hcetti. Þau merkilegu tíbindu urbu þó
vib þingsetninguna ab forsetinn til-
kynnti um ákvörbun sína ab gefa
ekki kost á sér til endurkjörs. Verald-
legirog andlegirhöfbingjarrœddu
málin í hlibarsölum meb jón Sigurbs-
son í baksýn, eins og sjá má á inn-
felldu myndinni.
Sjá ákvörbun forseta á baksibu.
Vinnutími hjúkrunarfrœbinga á skurb- og svœfingadeildum:
„Margfalt brot á vinnulöggjöfinni"
„Ef við förum út í það þá er
það margfalt brot á vinnu-
verndarlöggjöfinni hvernig
vinnutíma hjúkrunarfræðing-
anna hefur verið háttað hér. í
raun og veru er það skylda
vinnuveitenda að fólk fái
ákveðna hvíld eftir 16 tíma
vinnulotu og það hefur ekki
viðgengist hér," sagði Anna
Stefánsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdarstjóri Landsspítal-
ans, og sagði aöspurð að sama
ætti við um aðstoðarlækna og
meinatækna.
Hjúkrunarfræðingar á skurð-
og svæfingadeildum sjúkrahús-
anna gengu út á miðnætti að-
fararnótt sunnudags vegna
breytinga á vinnufyrirkomulagi
sem að þeirra mati þýðir um 30-
50 þúsund króna kjaraskerð-
ingu á mánuði. Elín Ýrr Hall-
dórsdóttir, talsmaður hjúkrun-
arfræðinganna, sagði að þeir
sinntu neyðarþjónustu, en
beiðni þess efnis barst þeim frá
sjúkrahússyfirvöldum. Vinnu-
veitendum hefur ekki tekist að
semja við Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga um taxta fyrir
þessa vinnu. „Ég vil raka það
fram að við höfum annast allar
þær vaktir sem við höfum verið
beðnar um þó svo að ekki hafi
verið gengið frá greiðslum fyrir
þær," sagði Elín Yrr.
Um stöðuna í deilunni að
öðru leyti sagði Elín að hjúkrun-
arfræðingar biðu þess að vera
boðaðir á fund og átti von á að
það yrði bráðlega.
Fram kom hjá Önnu Stefáns-
dóttur að einhverjar viðræður
væru í gangi um greiðslur fyrir
neyöarvaktirnar. „Það fer dálítið
eftir því hvernig spilast úr þessu
í dag. Við munum ganga frá
samningum um þessar greiðslur
í kvöld," sagði hún í gærdag.
Hún sagði hins vegar ekkert
Varaformabur LIÚ í vondum málum. Fiskistofa bregst hart vib broti á reglugerb um vigtun afla:
Súðavík svipt Bessa tímabundið
Fiskistofa hefur lagt það til við
sjávarútvegsráðuneytið ab ísfisk-
togarinn Bessi ÍS frá Súðavík
verði sviptur veiðileyfi tíma-
bundið vegna brots á reglugerð
um vigtun afla. Ingimar Halldórs-
son framkvæmdastjóri Frosta hf. í
Súðavík segir að svipting veibi-
leyfis muni eflaust hafa einhver
áhrif á atvinnuástandið í pláss-
inu. Hann vildi ab öbru leyti ekki
tjá sig um málib að svo stöddu.
Þórður Ásgeirsson fiskistofu-
stjóri segir ab þetta mál sé tilkom-
ið vegna þess að Bessi hefði á sín-
um tíma landað afla í Bremerha-
ven í Þýskalandi án þess að aflinn
færi inná fiskmarkaðinn til vigtun-
ar, eins og vigtunarreglur gera ráb
fyrir. Fiskistofustjóri segir að meint
kvótamisferli útgerðar togarans
vegna kvótasölu til þýska fyrirtæk-
isins Lubbert sé þessu máli óvib-
komandi. Hann segir að þab sé
ákvörðun ráðuneytisins að
ákvarða hversu lengi togarinn
veröur sviptur veiðileyfi.
Kristján Ragnarsson formaður
LIÚ segir aðspuröur að málefni
Frosta hf. og Bessa ÍS séu ekki álits-
hnekkur fyrir stjórn LÍÚ heldur
viðkomandi aðila. En eins og
kunnugt er þá er Ingimar Halldórs-
son varaformaður LÍÚ og formaö-
ur Útvegsmannafélags Vestfjaröa.
Kristján segir að það muni koma í
ljós á aðalfundi LÍÚ, sem haldinn
veröur síðar í mánuðinum, hvort
þessi mál muni leiða til þess að
skipt verði um varaformann eða
ekki. Hann ítrekaði hinsvegar þau
sjónarmiö útvegsmanna að öll
brot gegn lögum og reglugerðum
væru litin mjög alvarlegum aug-
um án tillits til þess hver ætti í
hlut. Meint kvótamisferli Bessa ÍS
hafði einnig þau áhrif á dögunum
að íslandsbanki ákvaö að hætta
við að selja Frosta hf. hlutabréf sín
í rækjuvinnslunni Rit hf. á ísafiröi.
Sú ákvöröun er athyglisverð þegar
haft er í huga að stjórnarformaður
íslandsbanka er jafnframt formað-
ur LÍÚ og framkvæmdastjóri
Frosta hf. er varaformaöur sömu
samtaka. ■
ákveðið með það hvenær hjúkr-
unarfræðingarnir yrðu boðaðir
á fund til viðræðna um kjara-
deiluna. ■
F&M leggur
upp laupana
Dagvöruverslunin F&M sem
Friörik Friðriksson rak frá árinu
1992 reynir nú eftir megni ab
komast hjá gjaldþroti. Tryggvi
Agnarsson hdl. hjá Ráði hf. hef-
ur verib fenginn til ab stýra
greiðslum til lánardrottna.
Boðin er 30% greiðsla af kröf-
um innan 30 daga og hefur
Búnaðarbankinn fallist á þá
beiðni.
Insúla hf. var innflutningsfyrir-
tæki Friðriks, stofnað 1989. Þrem
ámm síðar var F&M verslunin
opnuð á þess vegum. Allar götur
síðan hefur Insúla átt í miklum
erfiðleikum. Síðastliðið vor var
rekstri F&M endanlega hætt,
enda skuldir orðnar miklar. Hluti
rekstursins var þá seldur hlutafé-
laginu Laka og Ráði hf. falið að
loka rekstri Insúlu hf.
Lánardrottnar Insúlu og F&M
hafa fengið í hendur yfirlýsingu
til undirskriftar þar sem þeir fall-
ast á aö fá aðeins 30% krafna
sinna, - annars fá þeir trúlega
ekki neitt. ■
Tímamyndir CS