Tíminn - 09.11.1995, Side 11
Fimmtudagur 9. nóvember 1995
SífaÍWl
11
„NORDIA-96" á heimavelli
nO:RDSA|96
« 1Öoo
Nonaen frímerkiasýftmg Reykjavík 25.
Vterð kr. 200
Urmtíímteí?*
*
>któbef 1996
Fyrsta blokkin, sem gefin var út fyrir frímerkjasýninguna „NORDIA-96",
kom út á síbasta degi frímerkisins. Hún brýtur vissulega blab í gerb ís-
lenskra frímerkjabiokka og nálgast póstkortib fyrir ferbamenn.
Þá er komiö aö okkur íslending-
um aö halda næstu Noröur-
landasýningu á frímerkjasöfn-
um hinna fullorönu. Það verður
„NORDIA-96", sem haldin verð-
ur á Kjarvalsstööum dagana 25,-
27. október á næsta ári. Það eru
eðli málsins samkvæmt Lands-
samband íslenskra frímerkja-
safnara og Póstmálastofnunin
sem standa aö sýningunni.
Undirbúningsnefnd hennar er
skipuö þeim Siguröi R. Péturs-
syni, sem er formaður, Hálfdáni
Helgasyni, sem er aöalumboðs-
maöur, og svo Sverri Einarssyni,
sem er ritari. Þá hafa umboös-
menn á öllum Norðurlöndun-
um veriö skipaöir, en hér heima
er Þór Þorsteins umboösmaöur
sýningarinnar. Fyrir þá, sem
vilja hafa samband viö sýning-
arnefndina, þá er heimilisfang-
iö: „NORDIA-96", pósthólf
8753, IS-128 Reykjavík.
Rétt um það leyti sem þessi
þáttur er skrifaður, þá er að
renna af stokkunum „NORDIA-
95" í Svíþjóð. Þar er fríöur hóp-
ur íslendinga viö störf. Þeir Sig-
urður R. Pétursson og Ólafur El-
íasson eru báöir dómarar á
þeirri sýningu, en meö þeim eru
þeir Hálfdán Helgason og Sverr-
ir Einarsson, sem kynna næstu
sýningu hjá okkur.
„NORDJUNEX-96" í
Noregi
Það var glæsilegur árangur hjá
íslenska landsliðinu í frímerkja-
fræöum á æskulýðssýningunni í
Þrándheimi. Þaö var 7. október
síðastliöinn aö þeir kepptu um
hvert Norðurlandanna vissi
mest um frímerki og fræöi þau
er að þeim lúta. Vann íslenska
landsliöiö þriðja árið í röö og
kom heim meö silfurelginn,
FRÍMERKI
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
sem hefir verib farandgripur í
þessari keppni. í liöinu voru
þeir Steinar Friöfinnsson, Guðni
Árnason og Björgvin Ingi Ólafs-
son. Liðsstjóri var Kjartan Þór
Þóröarson úr Klúbbi Skandinav-
íusafnara. Leikslok voru þau, aö
ísland hlaut 55 stig, Noregur 53
stig, Finnland 51 stig og Svíþjóö
og Danmörk 47 stig hvort land.
Þá voru einnig íslensk ung-
lingasöfn á sýningunni og
hlutu þau eftirtalin verðlaun:
Safn Guðna Árnasonar, hæstu
verðlaun í B-flokki, 81 stig, gyllt
silfurverðlaun og heiðursverð-
laun. Safn Björgvins Inga Ólafs-
sonar hlaut 76 stig, stórt silfur
og heiðursverðlaun. Steinar
Friöfinnsson og Gísli Geir Harö-
arson hlutu svo báðir 71 stig
fyrir söfn sín og silfurverðlaun. I
C-flokki hlaut svo safn Péturs H.
Ólafssonar 67 stig og silfurverð-
laun. Skal þeim öllum óskaö
heilla meö þessa frammistööu.
Ritverk um teg-
undasöfnun
Á síöasta degi frímerkisins
sendi Garðar Jóhann Guö-
mundarson frá sér bók er hann
nefnir Landnámsmerm, ásatrú,
frímerki, stimplar. Bókin er 132
blaösíður aö stærö í quartobroti,
tölvuunnin og gefin út sem
handrit á kostnaö höfundar
1995. Skiptist bókin í fjóra aðal-
kafla: Kynning og formáli.
Landnámsmenn, ásatrú, frí-
merki. Landnámsmenn, ásatrú,
stimplar. Síðast er svo heimilda-
skrá. Þetta er geysilega yfirgrips-
mikil bók, bæöi að því er varðar
frímerkin og stimplana. Veröur
seint byggt upp safn þar sem
öllu því, er þarna er getiö, veröi
fyrir komið. Hinsvegar hefir ver-
ið lögö mikil vinna í bókina, en
það er svo safnaranna aö velja
og hafna hvað þeir taka með í
safn sitt, en þarna er nær því allt
þekkt um þessi efni. Þó sakna ég
í skrá um frímerkja- og stimpla-
lista að minnsta kosti tveggja,
jafnvel þriggja lista frá hendi
Þórs Þorsteins. Þá vantar aö
Forsíba bókarinnar sem Qarbar jó-
hann Cubmundarson hefir gefib
út.
mínu viti í heimildaskrá hina
stóru íslandssögu dr. Björns
Þorsteinssonar og síðustu ís-
landssögu Jóns R. Hjálmarsson-
ar. En þarna velur og hafnar
náttúrlega höfundur hvaöa
heimildir hann notar. Ekki hef
ég lesið bókina til aö leita lúsa
um villur, en komst þó ekki hjá
að reka augun í aö Narfi Þránd-
arson er talinn fyrsti landnáms-
maöur í Hrísey, sem er rangt.
Þarna var Steinólfur hinn Iági
Ölversson nefnilega á undan,
en Narfi kom á eftir, þótt Hrís-
eyjar- Narfi sé nefndur.
Þetta er að mínu viti fyrsta
raunverulega bókin, sem gefin
er út um eitt sviö tegundasöfn-
unar, sem stenst að einhverju
máli samanburð viö til dæmis
A.T.A., sem ég hefi oft minnst á
í þáttum mínum. Er þetta vel og
skal höfundi óskaö heilla meö
framtakið.
■
DAGBÓK
Fimmtudaqur
9
nóvember
313. daqur ársins - 52 daqar eftir.
45. vlka
Sólris kl. 09.35
sólarlag kl. 16.46
Dagurinn styttist
um 6 mínutur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Brids, tvímenningur, í Risinu
kl. 13 í dag. Þátttakendur skrái
sig fyrir þann tíma.
Hjólab umhverfis Breib-
holtshverfi
Hjólreiðahópurinn fer frá
Fákshúsunum við Reykjanes-
braut kl. 20 í kvöld, 9. nóvem-
ber. Hjólað verður upp fyrir
Fella- og Hólahverfi og um
Seljahverfi niöur í Mjódd og
ferðinni lýkur við Fákshúsin.
Öllu hjólreiðafólki velkomið aö
slást í hópinn.
Ævintýra-Kringlan:
Trúlr þú á álfasögur?
í dag kl. 17 í Ævintýra-Kringl-
unni ætlar Ólöf Sverrisdóttir
leikkona ab tala viö börnin um
álfa og huldufólk og segja þeim
frá þjóösögum okkar. Einnig
ætlar hún aö lesa eina þjóösögu.
Á morgun kemur B2 í heim-
sókn í Kringluna og Iítur við í
Ævintýra- Kringlunni á milli kl.
16 og 17. Þar er alltaf líf og fjör
og foreldrarnir geta verslaö í ró-
legheitum á meðan krakkarnir
una sér þar í góðu yfirlæti. í Æv-
intýra- Kringlunni fá krakkarnir
aö spreyta sig á myndlist, leik-
list, dansi, söng og mörgu öðru.
Ævintýra-Kringlan er á þriöju
hæö í Kringlunni og er opin alla
virka daga frá kl. 14 til 18.30 og
laugardaga frá kl. 10 til 16.
Tónleikar í Hinu Húsinu
Hljómsveitin VINDVA MEI
heldur tónleika í Hinu Húsinu,
Aðalstræti 3, á morgun, föstu-
daginn 10. nóvember, kl. 17. Yf-
irskrift tónleikanna er: „It came
from outer space...".
Kompukast í Kolaport-
inu næstu þrjár helgar
Svokallað kompudót er mjög
vinsæl söluvara í Kolaportinu
og aldrei nóg af slíku á boðstól-
um. Aöstandendur Kolaportsins
hafa því ákveðið aö leggja sér-
staka áherslu á að fá seljendur
kompudóts í Kolaportiö næstu
þrjár helgar og er slíkum selj-
endum boöiö sérstakt afsláttar-
verö á sölubásum þessar helgar.
Þetta átak er kynnt undir slag-
oröinu „Kompukast" og er
væntanlegum seljendum bent á
að henda engu, því í Kolaport-
inu sannast þaö rækilega aö eins
manns drasl getur veriö annars
manns fjársjóöur.
Sölutíma á laugardögum hef-
ur nú einnig verið breytt í Kola-
portinu, þannig aö sami sölu-
tími er á laugardögum og
sunnudögum, eða kl. 11-17.
Harmóníkutónar á
Café Læk
Veitingahúsiö Café Lækur,
Lækjargötu 4, býður upp á
harmonikutónlist á sunnudög-
um á næstunni, milli kl. 15 og
18. Þaö er Jóna Einarsdóttir sem
þenur nikkuna og mun hún
leika lög eftir beiöni. Veriö vel-
komin.
Steinskálar í Listhúsi 39
Myndhöggvararnir Einar Már
Guövaröarson og Susanne
Christensen halda sýningu á
skálum, sem flestar eru hoggnar
í íslenskar steintegundir. Sýn-
ingin veröur í sýningarrýminu
bakatil i Listhúsi 39, sem er
gegnt Hafnarborg við Strand-
götuna í Hafnarfiröi. Sýningin
opnar laugardaginn 11. nóvem-
ber kl. 15 og stendur til mánu-
dagsins 27. nóvember.
Einar Már sýnir geómetrísk og
lífræn skálaform, sem öll eru
unnin í íslenskan grástein meö
innbrenndu bývaxi. Susanne
sýnir skálar unnar í rauöan
Hólastein, móberg og alabastur..
Listhús 39 er opið virka daga
kl. 10-18, laugardaga kl. 12-18
ogsunnudaga kl. 14-18.
Útlagar á Nætur-
galanum
Útlagarnir skemmta á Nætur-
galanum föstudag og laugardag
og hafa þeir örugglega aldrei
ARNAÐ HEILLA
95 ára afmæli
{ dag, fimmtudaginn 9. nóv-
ember, er 95 ára Jón E. Jóns-
son, fyrrum bóndi Skálanesi,
Austur- Barðastrandarsýslu.
verið betri um þessar mundir.
Nú er ráö aö skella sér á „Gal-
ann" og sletta úr klaufunum.
Á Næturgalanum finnur þú
bestu skilyröi í bænum til aö
horfa á Sky- sport auk fjölda
annarra gervihnattastöbva og
þar getur fólk séö nær alla
íþróttaviðburði, sem sýndir eru
beint og óbeint, hvaðan sem er
úr heiminum. A meðan á leikj-
um stendur er bjórinn á 350 kr.
boltaveröi. Láttu ekki misbjóða
þér.
Næturgalinn er ab Smiðjuvegi
14 í Kópavogi.
APÓTEK___________________________
Kvðld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka (Reykjavlk
trá 3. tll 9. nóvember er I Laugames apótekl og Ár-
bæjar apótekl. Það apótek sem (yrr er nef nt annast eitt
vörsluna frá kl. 22.00 að kvðldl tll kl. 9.00 að morgnl
vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudðgum. Upplýslngar um
læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar I sfma 18888.
er starfrækt um helgar og á stórhátióum. Símsvari 681041.
Hafnarfjörður: Apótek Norðurbæjar. Miðvangi 41, er opió
mánud.-föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 10-14, sunnud., helgi-
daga og almenna frídaga kl. 10-14 6I skiplis vió Hafnar-
fjaróarapótek. Upplýsingar í simsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búða. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opió i þvi apótekl sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opið Irá kl. 11.00-12.00 og 20.00-
21.00. Á öórum timum er lytjalræðingur á bakvakt. Upplýs-
ingar eru gelnar í síma 22445.
Apótek Keflavfkur: Opió virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna fridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opió virka daga Irá kl. 8.00-
18.00. Lokaó i hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opió til kl. 18.30. Opió er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opk) rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
1. nóv. 1995 Minabargreibslur
Elli/örorkulifeyrir (gnrnnlifeyrir) 12.921
112 hjónaliTeyrir 11.629
Full tekjutrygging ellilifeyrisþega 23.773
Full tekiutrvqginq örorkulífeyrisþeqa 24.439
Heimilisuppbót 8.081
Sérstök heimilisuppbót 5.559
Bensínstyrkur 4.317
Barnalffeyrir v/1 bams 10.794
Meölag v/1 bams 10.794
Mæöralaun/feðralaun v/1 bams 1.048
Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja bama 5.240
Mæðralaun/feðralaun v/ 3ja bama eða fleiri 11.318
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða 16.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða 12.139
Fullur ekkjulífeyrir 12.921
Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190
Fæðingarstyrkur 26.294
Vasapeningar vistmanna 10.658
Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658
Daggreifolur
Fullir fæðingardagpeningar 1.102,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00
Sjúkradagp. fyrir hvert bam á framfæri 150,00
Slysadagpeningar einstaklings 698,00
Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri 150,00
GENGISSKRÁNING
Opinb. viðm.aengi Gengl
Kaup Sala skr.fundar
Bandarfkjadollar 64,52 64,70 64,61
Sterlingspund ....102,00 102,28 102,14
Kanadadollar 47,51 47,69 47,60
Dönsk kröna ....11,758 11,796 11,777
Norsk króna ... 10,333 10,367 10,350
Sænsk króna 9,690 9,724 9,707
Finnskt mark ....15,191 15,241 15,216
Franskur franki ....13,213 13,258 13,235
Belgfskur franki ....2,2174 2,2250 2,2212
Svissneskur franki. .......56,69 56,87 56,78
Hollenskt gyllinl 40,70 40,84 40,77
Þýsktmark 45,59 45,71 45,65
ítölsk Ifra ..0,04055 0,04073 0,04064
Austurrfskur sch 6,477 6,501 6,489
Portúg. escudo ....0,4336 0,4354 0,4345
Spánskur peseti ....0,5283 0,5305 0,5294
Japanskt yen ....0,6295 0,6315 0,6205
....104,38 104,80 104,59
Sárst. dráttarr 96Í38 96J6 96,57
ECU-Evrðpumynt.... 83,66 83,94 83,80
Grfsk drakma ....0,2765 0,2773 0,2769
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
568-6915
AKUREYRI
461-3000
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar