Tíminn - 22.12.1995, Síða 20

Tíminn - 22.12.1995, Síða 20
tfmtmt Föstudagur 22. desember 1995 Ve6ri6 (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland: Austan kaldi og skýjab meb köflum. Hætt vib smá snjó- komu vib ströndina. Frost 3 til 9 stig. • Faxaflói til Vestfjarba: Austan og norbaustan gola eba kaldi og bjartvibri. Frost 4 til 11 stig. • Strandir, Norburland vestra og Norburland eystra: Austan og norbaustan kaldi. Smáél á annesjum. Frost 5 til 12 stig. • Austurland ab Clettingi og Austfirbir: Norban kaldi eba stinnings- kaldi. Víba él. Frost 5 til 12stig. • Subausturland: Subaustan kaldi. skvjab meb köflum. Hætt vib smá snjókomu vib ströndina. Frost 2 til 9 stíg. Hœgt aö nýta skattpeninga betur meö samkeppni og útboöum verkefna. Hœkkun tryggingagjalds gengur þvert á efnahagssjónarmiö á Vesturlöndum. VSÍ: Trúverðugri fjár- lög en oft ábur Þórarinn V. Þórarinsson fram- kvæmdastjóri VSÍ telur aö fjárlög næsta árs séu trúverb- ugri en mörg fjárlög önnur sem Alþingi hefur samþykkt til aö minnka halla ríkissjóös. Hinsvegar séu þaö vonbrigöi aö skattar á fyrirtæki séu hækkaöir og m.a. hækkun á launatengdum sköttum eins og tryggingagjaldi. VSÍ telur ab þessi hækkun gangi þvert á viburkennd sjónarmiö í efna- hagsstjórn á Vesturlöndum. Framkvæmdastjóri VSÍ segist hinsvegar sakna þess í umræö- unni um fjárlögin á hvern hátt sé hægt aö bæta nýtinguna á skatttekjum ríkissjóös. I þeim efnum sé samkeppni og útboð á ýmsum verkefnum ríkisins einna hagkvæmasti kosturinn til aö fá sem mest úr þeim skatt- peningum sem ríkið hefur yfir aö ráöa. Þórarinn segir þaö sé ekki sjálfgefið að ýmis þjónusta sem ríkiö stendur straum af, þurfi endilega aö vera unnin af starfsmönnum og tækjum ríkis- ins. jólaveöriö: Stillt veður en kalt Búist er vib skaplegu jóia- veöri víöast um landið þótt gera megi ráb fyrir éljum á annesjum noröan lands og austan. Gunnar Hvammdal veöurfræöingur á von á ab tiltölulega hæg norban- og noröaustanátt veröi ríkjandi á landinu yfir hátíöina. Búist er viö aö á landinu veröi 5-8 stiga frost allt fram yfir áramót. Þaö er því von á hvítum jólum þar sem jöröin er þegar oröin hvít en ekki er gert ráö fyrir snjókomu aö ráöi næstu daga, a.m.k. ekki á suö- vesturlandi. Gunnar segir snjókomuna í fyrradag hafa veriö mjög staöbundna á Reykjanesskaganum, Árnes- og Rangárvallasýslunum. Hann segir aö enginn snjór sé t.d. á Akranesi og á mörgum stööum suövestanlands. Á þeim stööum á hann ekki von á aö snjó festi fyrir jól. í gær snjóaöi hins vegar á Suöausturlandi og gekk á meö éljum á Noröur- og Austur- landi. ■ dagar til jóla Tímamynd: BCS þinglok áherslu á að staðið yrði við áður gerð lög um ábyrgð hins opnbera á dæmdum bótum til þolenda of- beldisbrota. Meö nokkrum breyt- ingartillögum, sem meirihluti efna- hags- og viðskiptanefndar lagði fram, náðist sátt um afgreiðslu frumvarpsins í heild og endi var bundinn á ágreininginn. Meirihluti efnahags- og við- skiptanefndar lagði fram tillögu um hækkanir á bótum til þolenda af- brota þess efnis að bætur verði 600 þúsund krónur að hámarki í stað 400 þúsund króna og bætur vegna missis framfærenda verði 2,5 millj- ónir í stað 750 þúsunda. Þá lagði nefndin til að kröfur um bætur vegna verknaða sem framdir voru fyrir gildistöku laganna beri fyrst vexti frá 1. júlí 1996. Meirihluti efnahags- og við- skiptanefndar lagði einnig til að tenging bóta lífeyrisþega og at- vinnulausra við almenna launaþró- un yrði aðeins tímabundin, frá árs- byrjun 1996 til ársloka 1997 eða í tvö ár, en að þeim tíma liðnum yrðu núgildandi lagákvæði aftur tekin upp, þar sem bætur eru mið- aðar við ákveðna vísitölu sem bygg- ir á þróun launa og verölags í land- inu á hverjum tíma. Þá lagði meiri- hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að tillaga um að heimila ráöherr- um að sameina þjónustusvæði og semja við sveitarfélög eða einkaað- ila um að veita þjónustu sem til- teknum ríkisstofnunum er ætlað að veita, svo og að heimila einni ríkis- stofnun að taka að sér þjónustu sem er á ábyrgð annarrar ríkisstofnunar, yrði felld burt úr bandorminum. Stjórnarandstaðan hafði gagnrýnt þessar hugmyndir harðlega þar sem með þeim væri verið að veita ráð- herrum ákveðib vald til að ráðskast með ýmsa þætti ríkisbúskapsins umfram það sem eðlilegt væri. -Þ1 Nokkrir bankor og sparisjóöir opnir á iaugardag, Þorláksmessu. Ekki leitaö eftir samkomulagi viö SÍB: Bankafólki er gert að vinna á Þorláksmessukvöld Vilhelm G. Kristinsson fram- kvæmdastjóri Sambands ísl. bankamanna segir aö ein- hliöa ákvöröun Sambands ísl. viöskiptabanka og Sambands ísl. sparisjóöa um onpunar- tíma á Þorláksmessu án sam- komulags viö SÍB, sé brot á kjarasamningum banka- manna. Hann segir aö banka- menn séu því heldur súrir út atvinnurekendur vegna þessa, enda sé bankastarfsmönnum gert aö vinna á þessum tíma án þess aö þeir hafi neitt um þaö aö segja. Hann segir að í kjarasamning- um bankamanna séu skýr ákvæbi um það að þaö skuli leita samkomulags við samband bankamanna þegar breytingar verða á umsömdum opnunar- tíma. Þaö haföi hinsvegar ekki verið gert í gær, heldur fréttu bankamenn af opnunartímanum þegar bankar og sparisjóðir til- kynntu það einhliða í gær. í framhaldi af því höfðu margir bankamenn samband við skrif- stofu SÍB, enda vinnutíminn of- arlega í hugum fólks um þessar mundir. Ákvörðun banka og sparisjóöa um sérstakan opnunartíma ein- stakra útibúa á Þorláksmessu var tekin í framhaldi af ósk Kaup- mannasamtaka íslands þar aö lútandi. Samkvæmt því verða nokkrir afgreiöslustaöir opnir á Þorláksmessu frá kl. 20 - 24. Meö- al annars veröur opið í útbúi. Búnaðarbanka í Kringlunni, ís- landsbanka á Kirkjusandi, Lands- banka íslands að Laugavegi 77, Sparisjóði Reykjavíkur og ná- grennis aö Austurströnd 3 á Sel- tjarnarnesi og í útbúi Sparisjóös Vélstjóra aö Síðumúla 1. -grh Fjárlögin þrengja á margan hátt aö almenningi. ASÍ: Velferðarkerfið skert „Almennt séö þá er veriö aö skeröa veiferöarkerfiö og þá sér- staklega í heilbrigðismálunum. Þaö er alveg klárt," segir Gylfi Arnbjörnsson hagfræöingar ASÍ um fjárlög næsta árs. Hann býst hinsvegar fastlega viö ab því ab fariö veröi nánar ofan í saum- ana á fjárlögunum eftir hátíb- arnar þegar öll kurl veröa kom- in til grafar. Af einstökum niðurskurðar- þáttum í velferöarkerfinu nefnir Gylfi einkum þaö sem snýr að elli- og örorkulífeyrisþegum um aukna tekjutengingu grunnlífeyr- is o.fl. í heilbrigðiskerfinu gagn- rýnir hann aukna gjaldtöku hjá þeim sem þurfa að leita til heim- ilslækna og sérfræðinga. Hann segir að þessir þættir muni þrengja verulega að almenningi. Gylfi telur að þótt skattahækk- anir á fyrirtæki muni ekki hafa í för meö sér neina kollsteypu í at- vinnulífinu þá hefbu samtök launafólks frekar viljab sjá þá fjár- muni í launaumslögum sinna fé- lagsmanna. Hann bendir einnig á framkomin mótmæli ASÍ á 0,5% hækkun tryggingagjalds vegna þess ab þar meö sé verið aö skeröa möguleika til umsaminna kjara- bóta meö auknum byröum á at- vinnulífið. Hinsvegar lækka skattar á almenning vegna af- náms tvísköttunar á lífeyrisiö- gjöldum en á móti er afnumin verðtrygging á persónuafslætti. Þá hækka barnabætur á næsta ári og við fyrsta barn er tekjutenging lækkuð úr 7% í 6% sem Gylfi tel- ur ýera jákvætt. Hann tekur þó fram aö þetta sé gert til þess aö milda aðeins abrar abgerðir stjórnvalda í málefnum velferðar- kerfisins sem að mestu leyti eru fólgnar í skerðingum og m.a. með því að afnema verðtryggingu barnabóta og vaxtabóta. -grh Af einstökum efnisþáttum fjárlagafrumvarpsins sem sam- tök atvinnurekenda telja einna mest aðfinnsluvert viö er þegar sáttagjörö þingmanna endar á kostnaö skattgreiöenda. í því sambandi nefnir framkvæmda- stjóri VSÍ m.a. endurtekna upp- gjöf við aö fækka sýslumann- embættum og ríkisábyrgö á bótagreiðslum ofbeldismanna. Auk þess sé ákvörðun stjórn- valda um aö skattleggja útgerö- ina vegna slysatrygginga sjó,- manna dæmi um hversu var- hugavert sé að gera samninga við stjórnvöld um svona hluti þar sem engu er aö treysta. En samkvæmt samkomulagi ríkis- ins í tengslum viö kjarasamn- inga sjómanna og útgerðar- manna 1983 axlaði ríkið ákveö- inn hluta af þeim kostnaði sem því er samfara aö sjómönnum er tryggö svonefnd staögengils- laun í tvo mánuði í veikindum. -grh Samkomulag um Útlit var fyrir ab þinglok gætu orbið í gærkvöldi eftir aö sam- komulag náöist um ráöstafanir í ríkisfjármálum eba bandorm- inn á Alþingi. Miklar deilur höfbu stabib yfir um efni hans og hélt stjórnarsandstaöan uppi hörbu andófi í þinginu síödegis á þriöjudag og miö- vikudag. Tilefni andófsins var einkum til- lögur í bandormi þess efnis að rjúfa tengingu bóta lífeyrisþega og at- vinnuleysingja við almenna launa- þróun í landinu auk þess sem stjórnarandstaðan lagði mikla

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.