Tíminn - 30.12.1995, Blaðsíða 11
Laugardagur 30. desember 1995
11
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi:
Flutningur grunn-
skólans efstur í huga
Árið sem er að líða hefur ein-
kennst af undirbúningi þess að
sveitarfélögin taki við grunnskól-
unum, hjá Sigrúnu Magnúsdótt-
ur, borgarfulltrúa og formanns
skólamálaráðs Reykjavíkur. Sig-
rún er bjartsýn á komandi ár.
„Um áramót kýs ég helst að
horfa fram á veginn. Ég er
mjög bjartsýn á komandi ár og
á von á að þá komi ýmislegt í
ljós sem hefur verið undirbúiö
á þessu ári. Stærsta verkefnið er
auðvitað yfirfærsla grunnskól-
ans, sem er viðamesta verkefni
sem sveitarfélögin hafa tekið að
sér, ef af því veröur. Það er gíf-
urlega spennandi, en jafnframt
ögrandi."
Sigrún segist einnig horfa til
atvinnumála og ferðamála. „í
Sigrún Magnúsdóttir.
þeim málaflokkum á ég von á
að ýmislegt muni glæðast og
reyndar er margt fleira í deigl-
unni. Mér finnst þetta nánast
eins og rós, sem við vorum að
gróðursetja vorið 1994 og mun
byrja að sprengja utan af sér
fyrstu blöðin á næsta ári."
Sigrún segir engin sérstök
átakamál standa upp úr í minn-
ingunni frá þessu ári. „Það hef-
ur ekki verið deilt um stefnu-
mál eða framtíðarsýn, heldur er
eftirminnilegast hvað minni-
hlutinn hefur gert ótrúlega lítil-
mótleg mál að einhverju deilu-
efni. Hjá mér hefur árib auðvit-
að einkennst af undirbúningi
þess að borgin taki við grunn-
skólanum, sem er jafnframt
framtíðarmálefni." -GBK
Drífa Sigfúsdóttir, forseti bœjarstjórnar í Reykjanesbœ:
Nafnamáliö
eftirminnilegast
Skipulagsmál í kjölfar samein-
ingar sveitarfélaga hafa verið
efst á blaði á vettvangi bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar á ár-
inu. Deilur um nafn á nýja
sveitarfélagið eru Drífu Sigfús-
dóttur, forseta bæjarstjórnar,
eftirminnilegastar á árinu.
„Við höfum verið að vinna
að sameiningu sveitarfélaganna
frá því að Keflavík, Njarðvík og
Hafnir voru sameinuð á árinu á
undan. Það er eftirtektarvert
hvað bæði starfsmenn og íbúar
hafa verið samhuga um að láta
þetta takast vel. Sameiningin
hefur gengið ákaflega vel. Það
eina, sem voru mjög skiptar
skoðanir um, var nafnamálið.
Það er kannski það sem stendur
upp úr í bæjarmálunum í mín-
um huga, allar umræðurnar og
afgreiðslan á nafnamálinu."
Drífa segir að skipulagsmál
hafi tekið mestan tíma bæjar-
Drífa Sigfúsdóttir.
stjórnar á árinu, en minna ver-
ib um framkvæmdir. „Þetta er
vinna sem er tímafrek, en sést
lítið fyrr en hún er búin. Við
urðum líka fyrir smá áfalli, þeg-
ar viðlegukanturinn opnaðist í
óveðrinu í haust. Það er ekki
búib að gera við hann."
Gott gengi íþróttamanna
bæjarins er einnig eftirminni-
legt frá árinu, að mati Drífu.
„Bæði í körfubolta og í sund-
inu. Við eigum margt afreksfólk
í þessum greinum og það hefur
staðið sig ákaflega vel."
Drífa segist spá því að Reykja-
nesbær verði eitt öflugasta
sveitarfélag landsins, þegar
fram líði stundir. „Við höfum
fjölmarga möguleika sem aðrir
landsmenn hafa ekki. T.d. ná-
lægb vib alþjóðlegan flugvöll,
mikla jarðorku, mikið og gott
vatn og góðar og djúpar hafnir.
Síðast en ekki síst eigum vib
mikið af vel menntuðu starfs-
fólki, sem er tilbúið að vinna."
-GBK
Listahátíö í Reykjavík 1996:
Ljóöasam-
keppni
Listahátíð verður haldin í júní
1996 og hefur framkvæmda-
stjórn hátíðarinnar efnt til Ijóða-
samkeppni. Ljóðin eru farin að
streyma inn á skrifstofu Listahá-
tíðar en síðasti frestur til að skila
ljóðum er þann l.jan. 1996.
Hvert skáld má senda inn allt að
þremur ljóðum undir sama dul-
nefni í umslagi merktu Ljóðasam-
keppni. Nafn höfundar verður að
fylgja með í lokuðu umslagi. Dóm-
nefnd, sem skipuð er Silju Aðal-
steinsdóttur, rithöfundi, Vilborgu
Dagbjartsdóttur, skáldi og Kristjáni
Árnasyni, dósent, velur ljóð til
verðlauna og útgáfu en úrval þeirra
ljóða sem berast í samkeppnina
verður gefið út á bók á hátíðinni.
Úrslit verða kunngjörö við setn-
ingu hátíðarinnar 31. maí 1996 en
þrenn verðlaun verða veitt. 1. verð-
laun kr. 150.000, 2. verðlaun kr.
100.000 og 3. verðlaun kr. 50.000. ■
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
Tollkvótar veqna
innflutnings á
blómum
Meb vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleibslu,
verblagningu og sölu á búvörum, sbr. breytingu meb
lögum nr. 87/1995 og meb vísan til reglugerbar frá 28.
desember 1995 er hér meb auglýst eftir umsóknum um
tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning:
Vara Tímabil Vör- Verb- Magn-
magn tollur töllur
Tollnúmer: kg. % kr./kg
0601.2002 Blómstr. pottapl. undir 1 m. 01.01.-30.04. 500 30 0
0601.2003 Crænar pottapl. undir 1m. 01.01.-30.04.2.000 30 0
0603.1009 Annars (Afskorin blóm) 01.01.-30.04.4.000 30 0
Skriflegar umsóknir skulu sendar bréfleibis eba meb sím-
bréfi til landbúnabarrábuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150
Reykjavík, oq skulu hafa borist fyrir kl. 16.00föstudaginn
5. janúar 1996.
Landbúnabarrábuneytib, 29. desember 1995
María Ellingsen og Baltasar Kormákur.
Frambærileg
og vel gerö
Agnes ★★★
Handrit: Jón Ásgeir Hreinsson og
Snorri Þórisson
Kvikmyndataka og framleibsla:
Snorri Þórisson
Leikstjóri: Egill Ebvarbsson
Abalhlutverk: María Ellingsen, Baltas-
ar Kormákur, Egill Ólafsson, Hilmir
Snær Cubnason, Magnús Ólafsson,
Hanna María Karlsdóttir, Árni Pétur
Cubjónsson og Cottskálk Dagur Sig-
urbarson.
Laugarásbíó og Stjörnubíó.
Bönnub innan 16 ára.
Það eru margir sem þekkja
söguna af Agnesi Magnús-
dóttur og
Friðriki Sig-
urðssyni,
síðasta fólk-
inu sem líf-
látið var á
íslandi. Sá atburður, sem
gerðist árið 1830, er kveikjan
að myndinni þótt sagan sé
að nær öllu öðru leyti skáld-
verk. Áherslan hér er á Ag-
nesi og sambandi hennar við
Natan. Þegar á heildina er
litið tekst vel að glæða þessar
íslensku sögupersónur lífi en
myndin líður þó dálítið fyrir
hæga framvindu í upphafi.
Agnes er vinnukona hjá
sýslumanni og unir vist
sinni þar illa. Hann beitir
hana því sem í dag væri kall-
að kynferðisleg áreitni á háu
stigi. Natan á í útistöðum
við þennan sama sýslumann
vegna sekta fyrir grasalækn-
ingar sínar þótt hann bjargi
síðan lífi sýslumannsfrúar-
innar. Á ferðum sínum til
þeirra hjóna kynnist hann
Agnesi og gerist hún bústýra
hans og ástkona. Framkoma
Natans í garð Agnesar ein-
kennist í fyrstu af ást og
riddaramennsku en í skap-
gerð hans eru líka afbrýði-
semi, hatur og mannvonska,
sem skyggja smátt og smátt á
góðu hliðarnar. Þegar Agnes
telur sig svikna í tryggðum
og fær nóg af ofbeldi Natans
tekur hún til sinna ráða.
Það hefur löngum verið
deiluatriði meðal kvik-
myndaáhugamanna hvernig
taka skuli á sögupersónum
og ævi þeirra. Skemmst er að
minnast mikilla skrifa sem
spunnust í kringum efnistök
Immortal Beloved, sem fjall-
aði öðrum þræði um ævi Be-
ethovens. í lok Agnesar er
tekið skýrt fram að um
skáldverk sé að ræða þannig
að það væri varla réttmætt
að fara að fetta fingur út í
meðferð á sögulegum stað-
reyndum, sem lúta að ævi
persónanna.
Handrit Jóns Ásgeirs
Hreinssonar og Snorra Þóris-
sonar er því uppdiktuð út-
gáfa þeirra af sögunni, ef svo
má að orði komast. Það er að
mestu leyti mjög vel unnið
og uppbyggt. Hnökrar eru
þeir helstir hversu framvind-
an er hæg í
byrjun og
einkenni-
legt lauf-
b 1 a ð a á t
N a t a n s ,
sem á að vera örlagavaldur í
breytingu skapsmuna hans
til verri vegar. Þegar líður á
tekur dramað hins vegar að
magnast og dágóð spenna er
yfir öllu saman. Uppgjörið á
Illugastöðum, heimili Nat-
ans, er óumflýjanlegt en þab
vantar aðeins upp á að það
atriði verði trúverðugt. Það
er hins vegar greinilegt að
mest hefur verið legið yfir
lokaatribi myndarinnar enda
er þab snilldarlega vel unniö,
áhrifamikið og sterkt. Öll
umgjörð og leikur er þar til
fyrirmyndar og Snorri Þóris-
son sýnir enn hversu góður
tökumaður hann er. Hann
gerir það reyndar alla mynd-
ina.
Af leikurum mæðir lang-
mest á Maríu Ellingsen. Hún
er í mynd nær allan tímann
og kemur krefjandi hlutverki
Agnesar mjög vel til skila.
Baltasar Kormákur leikur
Natan og er þar um vægast
sagt erfitt hlutverk að ræða
en Baltasar stenst prófið með
lábi og nær að gera því trú-
verðug skil.
Egill Eðvarðsson virðist
reyndar hafa náð að virkja
leikarana sérlega vel því fáir
hnökrar eru á framgöngu
þeirra í myndinni en af au-
kaleikurum verða Hanna
María Karlsdóttir og Hilmir
Snær Guönason að teljast
fremst meðal jafningja.
Agnes er í heildina fram-
bærileg og vel gerb kvik-
mynd og góður endir á þessu
mikla íslenska kvikmyndaári.
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON