Tíminn - 30.12.1995, Qupperneq 12
12
Laugardagur 30. desember 1995
IVIeð sínu nefi
í tilefni áramótanna verður lag þáttarins gamalkunnugt ára-
mótalag sem sungið er víða um heim. Upphaflega er ljóðið eft-
ir Burns en Árni Pálsson gerði íslenska ljóðið en lagið er skoskt
þjóðlag.
Góða söngskemmtun! .
HIN CÖMLU KYNNI
D A
Hin gömlu kynni gleymast ei,
D G
enn glóir vín á skál!
D Em A7
Hin gömlu kynni gleymast ei
Hm Em A7 D
né gömul tryggðamál.
G D A
Ó, góða, gamla tíð
D G
með gull í mund!
D Hm Em A7
Nú fyllum, bróðir, bikarinn
Hm Em A 7 D
og blessum liðna stund.
Við leiddumst fyrr um laut og hól,
er lóan söng í mó.
En draumar svifu, söngur hvarf
úr Silfrastaðaskóg.
Ó, góða, gamla tíð . . .
Við óðum saman straum og streng
og stóðumst bylgjufall.
En seinna hafrót mæðu og meins
á millum okkar svall.
Ó, góða, gamla tíð .. .
Þótt sortnað hafi sól og lund,
ég syng und laufgum hlyn
og rétti mund um hafið hálft
og heilsa gömlum vin.
Ó, góða, gengna tíð
með gull í mund!
Nú fyllum, bróðir, bikarinn
og blessum liðna stund.
< 11 1 ( •
X 0 1 2 3 0
G
2 1 0 0 0 3
Hm
I
4
4 n
X ( ' ° 4 n i i
Em
0 2 3 0 0 0
Jólatrés-
skemmtun VR
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmtun fyr-
ir börn félagsmanna, sunnudaginn 7. janúar nk. kl. 16.00 á
Hótel íslandi. Miðaverð er kr. 600,- fyrir börn og kr. 200,- fyrir
fullorðna. Miðar eru seldir á skrifstofu V.R. í Húsi verslunarinnar,
8. hæð. Nánari upplýsingar í síma félagsins 568-7100
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
BELTIN BARNANNA VEGNA
Klassískur ilmur og
hófsamur er abals-
merki þeirra fínu
Mesta samkvæmishátíð ársins
gengur nú í garð. Allir fara í sitt
fínasta púss og þá er vel við
hæfi að klæðast svarta kvöld-
klæðnaðinum, setja á sig fín-
ustu skartgripina og ilmsætasta
parfumið. Nú á við að vera í
svörtu. En eins og komið hefur
fram áður, hlýtur svarta tískan
aö vera á undanhaldi á kom-
andi ári, að minnsta kosti sem
dagklæðnaður sem tröllriðið
hefur æsingafólki íslensku tísk-
unnar að undanförnu. En sem
samkvæmisklæðnaður er svart
alltaf í tísku, litli svarti kjóllinn
er klassískur kvöldklæðnaður og
karlmenn þurfa að eiga að
minnsta kosti ein svört eða
mjög dökk föt.
Margar konur og karlar hafa
fengið ilm í hverskyns mynd í
jólagjöf og hefur Heiðar bent á
að tískuæsingurinn íslenski sé
ekki síður á því sviði en hvað
varðar klæðaburð.
Spurningin er hvers vegna
ekki eigi að breyta til með ilm,
eins og annað í tískuheiminum.
Stendur af sér alla
strauma
Ekkert er eðlilegra en að ný
ilmvötn komi á markaðinn,
eins og annað í heimi tísku og
breytinga. En fatatískan sækir
oft í gamla tísku og segja má að
til sé klassík í fatahönnun, sem
kemur upp aftur og aftur,
kannski með örlitlum breyting-
um.
í ilmefnum eru til klassískir
meistarar og hafa sum parfum
ekki breyst í marga áratugi. El-
egant konur eiga gjarnan klass-
ískan ilm, en nota svo nýjan í
hófi, eins og þarf auðvitað að
gera varöandi allan ilm.
Til er ilmur sem staðið hefur
af sér alla strauma og erlendar
tískudömur og fínar konur bera
kannski sama ilminn í 30 ár, og
líta ekki við því þótt það komi
einhver nýr.
Eins og komið hefur fram, er
sami ilmurinn til í mörgum
formum, allt frá sápu til fínasta
parfums. Þetta á bæði við um
dömu- og herrailm. Nú eru
herrasnyrtivörur orðnar þannig
að þar er til baðgel, baðsápa,
jafnvel eitthvað til að mýkja lík-
amann, þar er eau de toilette,
rakspírinn og rakskúmið. Það er
hægt að fá þetta allt með sama
ilmi og þá kemur þetta mjög
mjúkt og vel út.
Dömuilmur og
herra
Hver er svo munur á ilmi fyrir
dömur og herra?
í herrailmi eru yfirleitt meiri
skógar- og tóbakstónar, en það
er gífurlegur fjöldi kvenna, er-
lendis og hér á íslandi, sem nota
herrailm og herrum sem nota
dömuilm. Þetta fer voðalega
mikið eftir húð, þannig að karl-
menn sem hafa þunna og fín-
gerða húð koma oft betur út
með dömuilm og kona sem hef-
ur frekar þykka húð getur kom-
ið betur út meö karlailm.
Þykk húð hefur svona grófari
áferð. Við strákarnir erum betur
varðir frá náttúrunnar hendi
fyrir veðri og vindum, líklega
vegna þess að í gegnum aldirnar
höfum viö verið meira í veðri og
vindi. En svo er það bara svo, að
ein og ein kona fær svona gróf-
ari húð og einn og einn maður
Heiðar
Jónsson,
snyrtir,
svarar
spurningum
lesenda
Hvernig
áégað
vera?
er með ungmeyjarhúðina, sem
þeir fá einhvers staðar úr gen-
unum, ef forfeðurnir hafa alltaf
verið inni í húsi. Þeim körlum
hæfir kannski betur dömuilm-
ur.
Ofnotkun gerir ilm
að fýlu
Herrailmurinn verður stund-
um dálítið sterkur á þunnu húð-
ina, en herrailmir eru sterkari
en þeir sem ætlaðir eru konum.
Karlar eru líka miklu frekari til
að nota ilm en konur. Allir
þekkja aö sumir karlar lykta
langar leiðir af rakspíra og komi
þeir inn í stofu þar sem margs
kyns ilmur er fyrir yfirgnæfir
einn rakspírakarl allan annan
ilm.
Karlar verða að reyna að venja
sig af að úða á sig rakspíranum
næstum eins og þeir séu að þvo
sér upp úr honum. En sem bet-
ur fer gufar spírinn fljótlega
upp.
En þegar karlar nota sterkari
ilm og endingarbetri, eins og
eau de toilette, verða þeir að
varast að skvetta honum á sig
eins og rakspíra, því ofnotkun
getur gert það að verkum að
ilmur verði að dauni og þá er
illa farið með góðan hlut.
Konur eru hófsamari í notkun
ilmefna, enda vanari þeim. All-
ar raffineraðar dömur vita
hvernig ilmur eykur á elegan-
sinn, en subbustelpur skvetta
þessu á sig og af þeim verður
þefur en ekki ilmur. ■