Tíminn - 30.12.1995, Page 20
Laugardagur 30. desember 1995
Vebrlb (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Suburland og Faxaflói: Austangola eða kaldi. Víbast léttskýjað.
Frost 6 til 16 stig.
• Breibafjörbur til Austfjarba: Hæg breytileg átt og víðast létt-
skýjað. Frost 7 til 25 stig.
• Subausturland: Austangola eða kaldi, skýjað en þurrt að mestu.
Frost 0 til 8 stig.
Formabur Sambands íslenskra sveitarfélaga
um tekjumissi Reykjavíkurborgar vegna af-
náms skrifstofuskattsins:
Átti ekki að koma
neinum á óvart
„Þab á ekki að koma neinum á
óvart aö Reykjavíkurborg missi
tekjur þegar skattur á skrif-
stofu- og verslunarhúsnæ&i
verbur afnuminn eba ab frum-
varp þess efnis yrbi samþykkt á
Alþingi fyrir jól," segir Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi og formabur Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Alþingi samþykkti fyrr í þess-
um mánuði frumvarp sem gerir
ráb fyrir að sérstakur skattur á
skrifstofu- og verslunarhúsnæöi
veröi felldur nibur í áföngum á
næstu fjómm ámm. Skatturinn
var lagöur á þegar abstööugjaldib
var lagt nibur árib 1993. Þá þegar
var tilgreint að sú ráöstöfun væri
til bráðabirgða þar til Samband
íslenskra sveitarfélaga og félags-
málaráöuneytiö hefðu unnið ab
nánari útfærslu málsins. Skattur-
inn hefur skilab sveitarfélögum
samtals 470 milljónum króna.
Um leib og hann er felldur nibur
á fasteignaskattur á atvinnuhús-
næöi ab hækka um sömu krónu-
tölu og bæta sveitarfélögunum
þannig tekjumissinn.
Þessi breyting kemur misjafn-
lega vib sveitarfélögin. Reykja-
víkurborg hefur sérstöðu ab því
leyti ab þar er mikib af skrifstofu-
og verslunarhúsnæði. Borgin
hefur því haft hærri tekjur en
gert var ráð fyrir í upphafi af
skrifstofuskattinum svokallaba
(áætlab 380 milljónir á þessu ári).
Reiknað er með að tekjutap borg-
arinnar nemi allt ab 160 milljón-
um króna á ári þegar skrifstofu-
skatmrinn hefur aö fullu verib af-
numinn.
Borgarstjóri hefur lýst yfir
undmn sinni á því hvernig Al-
þingi stóö ab breytingunni á lög-
unum. Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi tekur undir þaö ab
frumvarpib hafi veriö afgreitt í
miklum flýti og því ekki gefist
Össur maöur
ársins
nægur tími til aö huga ab afleiö-
ingum þess. Sigrún telur jafn-
framt aö Samband íslenskra
sveitarfélaga heföi átt aö láta
borgaryfirvöld vita af því hvaö
breytingarnar á lögunum þýddu
fyrir borgina.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúi hafnar þessari
gagnrýni.
„Borgin missir tekjur vegna
þess að það er hlutfallslega miklu
meira af skrifstofu- og verslunar-
húsnæöi í Reykjavík en öömm
sveitarfélögum. Þetta hefur öll-
um veriö ljóst sem hafa kynnt sér
lagasetninguna frá 1993. Það átti
heldur ekld ab koma neinum á
óvart aö frumvarpið yrði afgreitt
frá Alþingi á þessu ári.‘ Ég var bú-
inn aö skýra frá því a.m.k. í tví-
gang í borgarstjórn að þessi
vinna væri í gangi. Félagsmála-
ráöherra skýrbi einnig frá því aö
fmmvarp lægi fyrir Alþingi á ráö-
stefnu um fjármál sveitarfélaga
sem haldin var í nóvember sl. Þar
vom viöstaddir margir borgar-
fulltrúar." -GBK
Bifreibaskoöun Islands:
Kerruskoðun í algleymingi
Þab var nóg að gera hjá Bifreiða-
skoöun íslands í gær viö skoðun á
kermm, en um áramót rennur út
frestur til aö skrá og skoöa bremsu-
lausar kermr. Fyrr á árinu vom sett-
ar reglur um aö allar kermr þyngri
en 750 kg. skuli vera búnar brem-
sum, en þar sem mikið er til af
gömlum kermm, þá var gefin und-
anþága til áramóta aö skrá bremsu-
lausar kermr, en eftir áramót skulu
allar kermr sem skráðar em búnar
bremsum. Karl Ragnars, fram-
kvæmdastjóri Bifreiöaskoöunar,
sagöi aö nokkuð mikiö heföi verið
aö gera á milli jóla og nýárs og þá
sértaklega í gær, en þaö verður
einnig opiö í dag, bæði vegna þess-
ara nýju reglna og einnig vegna
þess að margir eiga enn eftir aö láta
skoöa bifreiðar sínar. Meðfylgjandi
mynd var tekin viö kerruskoðun í
gær og eins og sjá má var nóg að
gera. Tímamynd: BG
Ágúst Guömundsson:
ÁramótaskauD með
söngleikjaíva
Frjáls verslun og Stöö 2 út-
nefndu í gær Össur Kristinsson,
stoðtækjafræðing og aöaleig-
enda Össurar hf, sem mann árs-
ins í íslensku viöskiptalífi. Út-
nefninguna fær hann fyrir út-
flutning á íslensku hugviti. ■
Þótt enginn einn atburbur eba
málefni sé að þessu sinni uppi-
staba í áramótaskaupi Sjón-
varpsins segir Ágúst Gub-
mundsson leikstjóri ab þaö
sem tengi þau fjölmörgu atriði
sem fyrir koma sé ef til vill
það, ab flestöll músíkatribin
séu byggb á lögum úr söng-
leikjunum sem voru færöir
upp á árinu, en þeir voru
óvenjumargir.
„Eins og vant er má ekki segja
neitt um skaupiö, en viö getum
orðaö það svo að þar sé tæpt á
ýmsu sem íslenzka þjóöin hefur
mátt þola á þessu ári," segir Ág-
úst.
Stundum hefur borið á rit-
skoðunartilhneigingum af hálfu
pólitísku varðliöanna í útvarps-
ráöi, t.d. í fyrra þegar aöstand-
Agúst Guömundsson.
Frceöslusjóöur Jóns Þórarinssonar:
Styrkir sálfræbinema
Ragnar Gautur Steingrímsson.
Ragnar Gautur Steingrímsson
hlaut styrk úr Fræðslusjóði Jóns
Þórarinssonar vib brautskrán-
ingu stúdenta í Flensborgarskól-
anum,
Sjóðurinn var stofnaður meb
erfbaskrá Önnu Jónsdóttur ljós-
myndara í Hafnarfirði og er hlut-
verk hans „að styrkja til framhalds-
náms efnilegt námsfólk sem lokið
hefur fullnaðarprófi við Flensborg-
arskólann í Hafnarfirbi."
Ragnar Gautur, f. 1966, lauk
stúdentsprófi frá Flensborgarskól-
anum 1985 og stundaði að því
loknu frönskunám við Sorbonne-
háskólann í París. Hann lauk BS-
prófi í tölvunarfræði frá Kaup-
mannahafnarháskóla árib 1991 og
voriö 1994 lauk hann MA-prófi í
enskum bókmenntum frá Chap-
mann University í Kaliforníu. Nú
stundar hann nám og rannsóknir í
hugfræði — cognitive science —
viö Kaliforníuháskólann í Irvine og
stefnir að doktorsgráðu í sálfræði.B
endur Skaupsins þóttu ganga
fullnærri persónu þáverandi
ráöherra menntamála, en
spurningunni um þaö hvort
æöri máttarvöld heföu reynt aö
krukka eitthvaö í Skaupið nú
svarar Ágúst Guðmundsson svo:
„Nei, alls ekki. Þaö hefur verið
venja aö útvarpsstjóri og fram-
kvæmdastjóri horfi á Skaupiö
ásamt dagskrárstjóra Sjónvarps-
ins. Ég held að þeir hafi gert þaö
fyrir jól en ég hef ekkert frá
þeim heyrt um þetta, svo ég geri
ráð fyrir aö þaö sé í lagi."
Það er Hákon Már Oddsson
sem sér um dagskrárgerö en
handritshöfundur er Karl Ágúst
Úlfsson.
„Aö vísu haföi Karl Ágúst sér
til aðstoðar hugmyndasmiði
sem hittust daglega í mánuð,"
segir Ágúst Guðmundsson.
„Þetta var fjögurra manna hóp-
ur, Ólafía Flrönn, Siguröur Sig-
urjónsson, Þröstur Leó og ég, en
í framhaldinu settist Karl Agúst
niður og skrifaöi þetta allt sam-
an."
Helstu leikendur eru Bergur
Ingólfsson, Gísli Rúnar Jónsson,
Guölaug Elísabet Ólafsdóttir,
Halldóra Geirharösdóttir, Helga
Braga Jónsdóttir, Kjartan Guö-
jónsson, Magnús Ólafsson,
Pálmi Gestsson, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Þórhallur Sig-
urösson og Þröstur Leó Gunn-
arsson. ■
Ríkisstjórnin:
Óskir um
nafnleynd
ekki teknar
til greina
í frétt frá forsætisráðuneyt-
inu segir ab á ríkisstjórnar-
fundi í gær hafi ab tillögu for-
sætisráðherra verið tekin
ákvörbun fyrir Stjórnarráb ís-
lands í heild um ab framvegis
verbi ekki unnt ab verba vib
óskum umsækjenda um op-
inberar stöður um nafnleynd
gagnvart almenningi, þ.m.t.
fjölmiblum.
„í því felst að skylt verður að
veita upplýsingar um nöfn og
starfsheiti umsækjenda um op-
inberar stööur eftir aö umsókn-
arfrestur er liöinn og eftir því
leitað og sérstök þagnarskyldu-
ákvæöi í lögum standa því ekki
í vegi," segir í frétt forsætis-
ráöuneytisins sem mun á næst-
unni gefa út tilmæli til stjórn-
arráðsins um framkvæmd þess-
arar ákvörðunar og gildistöku
hennar. ■