Tíminn - 07.02.1996, Side 4
4
VUntom
Mi&vikudagur 7. febrúar 1996
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: jón Kristjánsson
Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson
Fréttastjóri: Birgir Guðmundsson
Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík
Sími: 563 1600
Símbréf: 55 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Tæknideild Tímans
Mynda-, plötugerð/prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Mánaðaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu 150 kr. m/vsk.
Furöufrétt um
forsetaframboð
Útvarpsfréttir fluttu í gær þann boðskap Svavars Gests-
sonar, alþingismanns, að samkvæmt eigin hugmynd
ættu forsetaefni að kveöa upp úr um það fyrir kosning-
ar hvort þau ætla að beita því valdi að stöðva lagafrum-
vörp sem Alþingi samþykkir eða ekki. Þessari furðufrétt
fylgdi viðtal við þingmanninn sem hótaði frambjóð-
endum í hönd farandi forsetakosningu, að krefja þau
svara við spurningunni og væri þeim skylt að svara já
eða nei. Það er næsta furðulegt að þingmaður með
langa starfsreynslu á Alþingi og á ráðherrastóli skuli
hafa uppi hótanir við verðandi forseta um að hann
skuldbindi sig til að gefa sérstaka yfirlýsingu um stjórn-
arathafnir sem upp kunna að koma í forsetatíð hans.
Forseti hefur vald til að neita að undirrita lög frá Al-
þingi og hann þarf ekki að tilkynna Svavari Gestssyni
eða nokkrum manni öðrum hvort hann hyggst beita
því valdi eða ekki.
í 10. grein stjórnarskrárinnar segir að forseti vinni eið
eða drengskaparheit að stjórnarskránni er hann tekur
vib störfum.
26. grein er svohljóðandi: „Ef Alþingi hefur sam-
þykkt lagafrumvarp, skal það lagt fyrir forseta lýðveldis-
ins til staðfestingar eigi síðar en tveim vikum eftir að
það var samþykkt, og veitir staðfestingin því lagagildi.
Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær
þaö þó engu að síður lagagildi, en leggja skal þab þá svo
fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra
manna í landinu til samþykktar eða synjunar með
leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef sam-
þykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu."
Svo mörg eru þau orð og er þarna greinilega kveðið á
um valdsvið forseta og skyldur hvab varöar undirskrift
laga frá Alþingi. Einnig er skýrt kvebib á um ab forseti
heiti að virða stjórnarskrána.
Það er fráleitt að forsetaefni fari að flækja sig í ein-
hvers konar kosningaloforðum um á hvern hátt það
hyggst haga stjórnarstörfum sínum og hvort frambjóð-
andinn hyggst ganga í berhögg við vilja Alþingis á kjör-
tímabilinu án tillits til þess hvaða mál kunna að verða
borin undir hann til undirskriftar.
Kröfu sína um að binda hendur forseta fyrirfram
byggir Svavar Gestsson á gríðarlegri lýðræðisást sem
tekiö hefur sér bólfestu í brjósti hans. Hún byggist á því
aö forseti leggi í vana sinn að hunsa vilja Alþingis og
standa fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum um þau málefni
sem eru hinum gamla foringja Alþýðubandalagsins
hugfólgin.
Vel má skjóta fleiri málum til þjóðarinnar með því að
láta kjósa beint um þau og má gera það meb ýmsu móti.
En að fara að skylda forseta íslands fil að gefa það upp
fyrirfram hvort hann ætlar að beita því valdi sem 26.
grein stjórnarskrárinnar veitir honum er fráleitt og nán-
ast dónaskapur við hið háa embætti.
Allir sæmilegir menn vona ab barátta forsetaefna
verði drengileg og fari fram af þeim virðuleika sem
embættinu hæfir. Að fara að setja frambjóðendum kost-
ina er ekki við hæfi og síst ættu alþingismenn að hafa
uppi ósæmilegan áróður og hvetja forsetaefni til ab
ganga í berhögg við vilja Alþingis ef út í það fer.
Forsetaefni geta gengið út'frá því sem vísu að þau
verða ekki strengjabrúður Svavars Gestssonar og þurfa
aldrei að gefa honum nein kosningaloforð. Þeim er nóg
að heita að virða stjórnarskrána.
Forsetaraunir s jálfstæöismanna
Spakvitrir stjórnmálaáhuga-
menn hafa talaö um það sem
helstu pólitísku tíöindi síöustu
helgar, aö teningunum var kast-
aö um forsetaframboð Davíös
Oddssonar þegar Guörún Pét-
ursdóttir tilkynnti um framboö
sitt. Framboð Guörúnar gerir
það að verkum, segja menn, aö
nú kemst Davíð ekki hjá að fara
í framboð, vilji hann ekki eiga
þaö á hættu aö eftirminnileg-
asti atburöur stjórnmálaferils
hans veröi sá aö hann þorði
ekki í framboð gegn Guörúnu
Pétursdóttur. Þau flokkssystkin-
in Davíð og Guörún elduöu
sem kunnugt er grátt silfur sam-
an út af Ráðhúsmálum í Reykja-
vík, auk þess sem Guörún hefur
verið aö skattyrðast viö Hrafn Gunnlaugsson,
einkavin Davíðs, út af skáldskap Hrafns.
Vissulega má viö því búast að Davíö muni una
því illa, ef málum veröur stillt upp þannig að
hann hafi ekki þorað í framboö gegn Guðrúnu, og
þaö eitt gæti stóraukið líkurnar á að hann skellti
sér í slaginn.
„Valhallarfræbingar''
En fleira viröist nú benda til þess að Davíð sé
eftir allt á leiö í forsetaframboð, og Garra er kunn-
ugt um þá skoðun fjölmargra „Valhallarfræðinga"
— sem eru íslenskir arftakar hinna útdauöu
„kremlólóga" — aö ýmislegt í atburöarásinni
bendi eindregið til þess aö stórtíöindi séu í upp-
siglingu. Einkum er þaö sú staðreynd aö verið er
aö teygja flokksreglur og reyna á þanþol þeirra
varöartdi tímasetningu á landsfundi. Þaö er eitt af
einkennum formannsins aö láta til skarar skríöa í
sínum málum í kjölfar slíkra breytinga á reglum
flokksins. Minnast menn í því samhengi gjarnan
á prófkjörsreglubreytingar áriö 1982, þegar núm-
erakerfið var tekiö upp í stað
krossa þegar kosið var. Albert
heitinn Guömundsson og
stuðningsmenn hans útskýröu
sigur Davíðs þá með þessari
breytingu. Þá minnast menn
einnig á aö landsfundi var flýtt
1991 og fluttur framfyrir kosn-
ingar. En á þeim fundi fór Dav-
íð einmitt fram á móti Þorsteini
og haföi betur eins og lands-
frægt er.
Verið vibbúnir!
Nú hafa endurteknar frestan-
ir landsfundar framkallaö
væntingar hjá flokksmönnum,
sem eru vel undirbúnir fyrir
einhvers konar óvænt og djarft
útspil af hálfu formanns síns. „Valhallarfræðing-
arnir" ráðleggja því flokksmönnum aö vera viö-
búnir forsetaframboði, ekki síst eftir viðtöl við
formanninn í fjölmiölum um helgina þar sem
hann lýsir huggulegum fundum sínum meö hin-
um ýmsu stórmennum, eins og Margréti Thatcher
og Símoni Peres. Benda menn á aö þaö geti verið
erfitt fyrir þjóðina að hafna manni sem þjóðhöfð-
ingja, sem ýmist situr viö arineld með Möggu
Thatcher og er sérstaklega skemmtilegur, eöa
drekkur rauövín frá Gólanhæöum meö Peres í
garöveislu á Þingvöllum og hlýðir á þann ísra-
elska leiötoga segja frá leyndarmálum sem ekki
einu sinni Bandaríkjaforseti veit um! En allt þetta
kom einmitt fram í viötölunum við ráðherrann
og formanninn.
Þaö væri því ótrúlegt ef slíkur heimsmaöur léti
nær óþekkta stúlku (a.m.k. óþekkta í Laugarnes-
inu) fæla sig frá því aö bjóöa sig fram, jafnvel þó
hún sé allt í senn: vel ættuö, vel gift, vel menntuð
og mikil madame.
Garri
Lélegt verksvit og skuldabasl
Hérlendis eru undirstöðuat-
vinnuvegirnir reknir með
stórtapi og má ekki á milli
sjá hverjir barma sér meira,
forystusauðir landbúnaðar
eöa stórfiskarnir í sjávarút-
vegi og fiskvinnslu. Allt er
þetta á heljarþröminni og er
ónógum eöa of miklum af-
skiptum ríkisvaldsins yfir-
leitt kennt um.
Stuðningur við búvöru-
framleiðsluna er svo tíkarl-
egur aö ekki er lengur bú-
andi meö kvikfénaö eða
aukabúgreinar í landinu.
Ríkisvaldið skammtar út-
gerðinni kvóta eins og skít
úr hnefa og skattleggur sjáv-
arútveginn hreint ofboðs-
lega.
Fulltrúar undirstööunnar
í verömætasköpun og velmegun rekja raunir sínar í
öllum greinum fjölmiölunar oft á dag, og er maður
fyrir löngu hættur aö skilja hvað þetta fólk er aö
basla viö búskap og útgerö, svo hörmulega sem þaö
er leikiö af yfirvöldunum og þjóöinni allri. Er frekju-
gangurinn svo mikill aö jafnvel er
farið að heimta mat á verði sem
lýðurinn á eyrinni ræður viö og að
krefjast afgjalds af greifadæmum
fiskveiðilögsögunnar.
Óbjörgulegt ástand
Ekki er ástandið björgulegra í ríkisrekstrinum þar
sem fjármuni skortir til allra hluta og skatttekjur eru
ávallt mun minni en útgjöldin.
Heilbrigöisþjónustan er öll á hvínandi kúpunni og
hefur þjóðargarmurinn engin efni á aö nýta öll
sjúkrahúsin og tækin sem þau eru fyllt með. Deildir
tæmast, álmum er lokað og í ljós kemur aö heilu
stórspítalabáknunum er ofaukið og veit nú enginn
hvað á aö gera viö öll ósköpin.
Menntun hrakar vegna fjárskorts og ekki léttir þaö
lundina aö hlusta á ræður háskólarektors um sam-
bandið milli fátæktar æöstu menntastofnunarinnar
og þess árangurs sem hún nær meö aö útbreiða þekk-
ingu. En í svartnætti hrakandi skólakerfis er samt
það ljós í myrkrinu að R-listinn mun fyrir lok kjör-
tímabilsins veröa búinn aö vista öll sex mánaöa börn
og eldri á menntastofnunum fósturstigsins.
Þá blæs ekki byrlega í menningarmálunum þar
sem til aö mynda leikhúsin
ná ekki út í þær stórbygging-
ar, sem reistar eru yfir leiklist-
ina, og skítblönk þjóð ræður
ekkert viö aö koma listaaka-
demíum sínum í risavaxið
sláturhús í Laugarnesi og þaö
stendur sem galtómur minn-
isvarði um óforsjálni og getu-
leysi.
Eigendurnir
Sjálfhælnasta stofnun fjár-
vana þjóðar, Ríkisútvarpið, er
á slíku nástrái aö hún hefur
ekki efni á aö nýta eigur sínar.
Sjónvarpið hýrist í gömlu
bílasmiðjunni við Laugaveg,
en þúsunda rúmmetra bygg-
ing, sem því er ætluð í Efsta-
leiti, stendur auð og safnar
skuldum.
Þarna var sem víðar byggt stórt og dýrt án fyrir-
hyggju eða vitrænnar hugsunar um notagildi. Þegar
aö var fundiö á sínum tíma, var svaraö með venju-
legum hroka að efasemdamenn hefðu ekkert vit á
rekstri ríkisfjölmiðils eða listræn-
um ar-kitektúr.
Nú er sagt aö þaö kosti milljarð
að flytja myndbandstækin og
stúdíóið með talandi andlitum úr yfirbygginga-
smiðjunni við Laugaveg í Efstaleitið, og á því hefur
ríkið ekki efni fremur en að halda sinfóníuhljóm-
sveit úti. Nú, eða reka heilbrigðisþjónustu eða
menntakerfi sem hæfir framsækinni og tæknivæddri
þjóð.
Að hinu leytinu eru alltaf til næstum því nægir
peningar til samgörigubóta og til að þurrka upp vot-
lendi og til að standa við skuldbindingar viövíkjandi
lífeyri og biðlaunum hinna göfugri stétta hins opin-
bera og háttsettra ríkisbankastarfsmanna.
Raunamædd stjórnvöld standa frammi fyrir þeim
ofboðslega vanda að sýna verksvit og hagsýni í með-
ferð fjármuna. Bögglast er við að forgangsraöa verk-
efnum og standa gömlu klúörararnir í gömlu emb-
ættunum fyrir því að hvergi sé hróflað við gömlu
hagsmunaklíkunum, sem eiga stofnanir ríkisins,
landið og miðin, offjárfestinguna að ógleymdum
sjálfum landssjóönum.
Og áfram verðum við skuldug og fátæk vegna þess
að verksvitið vantar þegar forgangsverkefnum er
raðað. OÓ
*
A víbavangi