Tíminn - 10.02.1996, Blaðsíða 7

Tíminn - 10.02.1996, Blaðsíða 7
Laugardagur 10. febrúar 1996 7 — foreldrauppeldi Á opnum fundi um uppeldismál á Seltjarnarnesi kom fram þaö sjón- armiö aö foreldrar þurfi aö eiga kost á frceöslu um uppeldis- og fjöl- skyldumál: Leikskólauppeldi í leikskólum fer fram sérstakt uppeldi og kennsla sem er ólíkt því uppeldi sem fer fram á heimilum barnanna. Leik- skólauppeldi er sjálfsögö vib- bót vib uppeldi foreldra og þýbingarmikib ab allir foreldr- ar eigi kost á ab nýta sér þab. Þetta er mebal þess sem fram kom í erindi Kristjönu Stefáns- dóttur leikskólafulltrúa hjá Sel- tjarnarnesbæ á opnum fundi um uppeldismál sem nýlega var haldinn í bæjarfélaginu. Kristj- ana er leikskólakennari meö framhaldsmenntun í stjórnun og uppeldisfræöi. Yfirskrift fundarins var Gott uppeldi. Hann var ekki síst hald- inn í tilefni af umræöu undanfar- inna vikna um aukna vímuefna- notkun unglinga. í umræöunni hefur veriö leitaö ýmissa skýr- inga og m.a. veriö bent á mikla útivinnu foreldra sem fyrir vikiö hafi ekki tíma til að sinna börn- um sínum sem skyldi. Eins og fram kom í erindi Kristjönu hef- ur umræðan alið á óöryggi margra foreldra og vakið sektar- kennd hjá þeim. 8 stundir ekki verri fyrir barnið en 4 „Mér finnst þaö vera sjálfsögö réttindi barna aö fá leikskóla- dvöl. Foreldrar eru farnir að gera þá kröfu að fá leikskólapláss fyrir börn sín og vilja gjarnan fá upp- lýsingar um uppeldisstarf leik- skólans sem börnin fara á. Viö göngum út frá því aö ákveðinn tími á dag sé út frá försendum barnsins, í því sambandi er talað um aö fjórar klukkustundir á dag séu lágmarksdvöl. Síðan sé það sem er umfram vegna þarfa fjöl- skyldunnar. Það þýðir alls ekki aö þaö sé verra fyrir barniö að vera lengur heldur er aðalatriöib að því sé tryggð ákveðinn lág- marksdvöl til aö þaö nái tengsl- um við félaga og hafi gagn af leikskóladvölinni." Kristjana ræddi í erindi síriu um hlutverk leikskóla í uppeldi barna undir skólaaldri. Leikskólar starfa samkvæmt lögum um leik- skóla og uppeldisáætlun fyrir leikskóla. í góöum leikskólum fer fram leikskólauppeldi samkvæmt hugmyndafræöi þekktra heim- spekinga og uppeldisfrömuða frá ýmsum löndum. ✓ Abyrgbin fyrst og fremst foreldra Kristjana leggur áherslu á aö samt sem áður hljóti ábyrgðin á uppeldi barna fyrst og fremst aö vera foreldra. „Mér hefur fundist þaö áber- andi í umræðunni undanfarin ár ab foreldrar telji að einhverjir sérfræbingar eigi að taka viö upp- eldishluterkinu, þ.e. leikskólinn og grunnskólinn. En það getur aldrei neinn komiö í staöinn fyr- ir foreldrana. Þeir eiga börnin og þeirra er ábyrgðin. Við í leikskól- um megum í raun ekki gera neitt öðruvísi en í samráöi viö og með samþykki foreldra. Leikskólinn er hins vegar sjálfsögð viöbót viö foreldrauppeldið." Akureyrarbœr: ÚA-bréfin seld á þessu ári Hlutabréf Akureyrarbæjar í Útgerðarfélagi Akureyringa hf. veröa boöin til sölu á þessu ári. Kemur það fram í fjár- hagsáætlun Framkvæmda- sjóbs Akureyrar, sem er eig- andi hlutabréfanna, en fjár- hagsáætlun sjóösins var sam- þykkt á fundi bæjarstjórnar nú í vikunni. í fjárhagsáætlun framkvæmdasjóbs er gert ráö fyrir aö öll hlutabréf í eigu hans veröi seld á þessu ári. Verbmæti hlutabréfanna ligg- ur ekki fyrir en hlutur sjóösins í Útgerbarfélagi Akureyringa er nú ab nafnverði um 410 milljónir króna. í bókun meirihluta bæjarstjórnar kem- ur fram ab áætlab söluverb- mæti hlutabréfanna sé vart undir 1.450 milljónum króna. Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir skoðun sína aö bakhjarlar Útgerðarfélagsins eigi áfram aö vera í heimabyggð og hagsmunir heimamanna þannig að vera tryggðir. Hann segir aö leitaö verði faglegrar ráðgjafar um hvernig best veröi staöiö aö sölu bréfanna og rætt hafi verið viö Landsbréf um þau mál. Jak- ob segir aö vanda þurfi til allra verka varðandi svo mikilvægt mál en meginástæða þess aö selja eigi hlutabréf bæjarins í at- vinnufyrirtækjum sé aö minnka skuldir bæjar- og framkvæmda- sjóös og aö skapa aukið svigrúm til framkvæmda og þá einkum verkefna sem tengjast eflingu og uppbyggingu atvinnulífs. Itarlegar umræöur uröu á fundi bæjarstjórnar um þetta mál og lýstu bæjarfulltrúar Sjálf- stæöismanna, sem nú eiga sæti í minnihluta sig fylgjandi sölu hlutabréfanna enda verið stefna þeirra um lengri tíma aö losa bæjarfélagiö út úr atvinnu- rekstri. Þeir töldu aö þaö verö sem hlutabréfaeign bæjarins sé bókfærö á sé þó tæpast ásættan- legt þar sem verðmæti atvinnu- fyrirtækis á borö viö Útgerðarfé- lag Akureyringa hf. væri meira og leggja bæri áherslu á að fá sem mest fyrir bréfin. Bæjarfull- trúar Alþýöubandalagsins töldu bæjarstjórn nú standa frammi fyrir stærra álitamáli en í langan tíma og gagnrýnivert aö nú sé gert ráö fyrir mun meiri eigna- sölu en viö gerö fjárhagsáætlun- ar Akureyrar í lok liöins árs. Ekki hefur veriö tekin ákvörö- un hvenær eöa meö hverjum hætti hlutabréf Framkvæmda- sjóös Akureyrar verða boöin til sölu en þar mun álit þeirra sér- fræöinga er leitað veröur til haft til hliösjónar. Ljóst er þó sam- kvæmt samþykkt bæjarstjórnar aö þaö veröur gert á yfirstand- andi ári. -Þl Kristjana Stefánsdóttir. bókmenntir og fá margvísleg tækifæri til aö nota málið. í lýsingu Kristjönu á góðum leiksicóla er gengiö út frá því aö á honum starfi fagfólk sem er fært um aö uppfylla hlutverk leikskól- ans. En hvernig er íslenskur raunveruleiki í þessu samhengi? Geta íslenskir leikskólar uppfyllt þetta hlutverk og kallast góðir leikskólar? „Ég hef ferðast mikiö erlendis og skoöaö leikskóla og kynnt mér leikskólastarf. Eftir þær feröir sýnist mér að viö stöndum fram- arlega í sambandi við innra starf leikskóla, þótt það sé skortur á leikskólaplássum. Því er þó ekki hægt aö neita aö hlutfall fag- lærðs fólks er mjög mismunandi eftir leikskólum. Þar sem það er lágt kemur það auðvitað niður á starfinu. Þaö má kannski segja að þeir leikskólakennarar sem eru í þessu séu alltaf að lyfta grettis- taki. Við þurfum auðvitað fleira faglært starfsfólk og aö skapa meiri stööugleika í starfinu. Þar hafa kjaramálin mest að segja og hin eilífa spurning um gildismat. Þetta er ábyrgðamikið og krefj- andi starf ef það er vel unniö en ekki metið að sama skapi til launa." -GBK Kristjana segir aö lífleg um- ræða hafi skapast á fundinum um foreldrahlutverkið og hvern- ig fólk er í stakk búiö til aö takast á viö þaö. „Á fundinum var mikið rætt um að það ætti að koma upp skipulagðri fræðslu um fjöl- skyldu- og uppeldismál. Hún gæti annað hvort veriö í fram- haldsskólunum eða í formi nám- skeiðs sem fólk sækti t.d. áður en það gengur í hjónaband eða áður en börn eru skírð. Það þykir alveg sjálfsagt í dag að maður fái nám- skeið á öllum mögulegum svið- um en það á einhverra hluta vegna að vera meöfætt að ala upp börnin sín. Á þennan hátt væri hægt að stuðla að því að for- leikskóla er. í því kom fram að meðal einkenna góðs leikskóla- uppeldis er að borin er virðing fyrir börnum og því þroskaskeiði sem leikskólaaldurinn er. Leikur barna í leikskóla er helsta náms- og þroskaleið þeirra og hann er jafnframt helsta kennslutæki leikskólakennarans. í góðum leikskóla læra börn að starfa í hóp sem ábyrgir einstak- lingar. Börnin þroska með sér víðsýni og umburðarlyndi gagn- vart viðhorfum og skoðunum annarra svo og virðingu fyrir öðr- um. Börn í leikskóla takast á við margvísleg verkefni sem beinast að öllum þroskaþáttum. Leikskól- inn veitir börnum félagslega fjöl- breytni, þar eiga þau samskipti eldrar fái meira sjálfstraust í upp- eldi eigin barna og foreldrahlut- verkinu." í erindi sínu á fundinum rakti Kristjana hvert hlutverk góðs við fullorðna, yngri og eldri börn og ekki síst við jafnaldra. í góðum leikskóla læra börn að leysa deilur á jákvæðan hátt. Leikskólinn miðlar og viðheldur menningu samfélagsins. Þar læra börn vísur, þulur, þjóðsögur og gamla leiki. I góðum leikskóla er notað vandað og fjölbreytt mál- far. Börnin hlusta á góðar barna- Leikskólauppeldi er sjálfsögö viöbót viö uppeldi foreldra.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.