Tíminn - 10.02.1996, Page 24

Tíminn - 10.02.1996, Page 24
MtfiMí Laugardagur 10. febrúar 1996 Veftrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær) • Suburtand og Faxaflól: Austan og norbaustan gola eba kaldi. Skýjab en þurrt ab mestu. Hiti frá 3 stigum nibur í 3ja stiga frost í uppsveitum. • Bretbafjttrbur til Norburlands eystra: Subaustan og austan gola eba kaldi. Skýjab meb köflum. Frost á bilinu 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum. • Austuriand ab Clettlngi: Austan gola eba kaldi, Él, einkum vib ströndina. Frost verbur á bilinu 0 til 5 stig. kaldast inn til landsins. • Austflrblr: Austan og norbaustan kaldi. Él, einkum vib ströndina. Hiti ná- lægt frostmarki. • Subausturland: Austan og norbaustan kaldi eba stinningskaldi en sums stabar allhvasst. Hiti 0 til 3 stig víbast hvar. Nefnd leitar hagkvœmustu leiöanna viö líffceraskipti: Yfir 300 m. á tveimur árum Nefnd sem skipuö hefur ver- ib á vegum heilbrigöisráö- herra mun skoöa ýmsa val- kosti til aö ná niöur kostnaöi viö líffæraskipti. Meöal ann- ars veröur kannaö hvort hægt sé aö lækka kostnaö viö aögeröirnar í Sahl- grenska sjúkrahúsinu í Gautaborg og hvort ódýrara geti veriö aö flytja eitthvaö af meöferbinni hingaö heim. Þeir sem bíba nú eftir nýjum líffærum veröa ekki fyrir skaöa vegna uppagnar samningsins vib Sahl- grenska. Karl Steinar Guönason, for- stjóri Tryggingastofnunar ríkis- ins, segir aö samningnum viö Sahlgrenska sjúkrahúsiö hafi veriö sagt upp sem varnaöaraö- gerö til aö reyna aö ná niöur kostnaði og hagræða. Hann seg- ir aö nefndin sem skipuð hafi verið muni kanna valkosti í Bandaríkjunum, Noregi, Skot- landi, London og á fleiri stöö- um. Einnig veröi kannað hvort hugsanlegt sé aö ná hagstæðari samningum viö Sahlgrenska. Tak- ist það komi jafnvel til greina aö auka viðfangsefni þar, t.d. líffæra- skipti í börnum. Annar möguleiki sem nefndin mun skoða er hvort hagstæðara geti verið að framkvæma nýrna- ígræöslur hér heima og/eöa láta eftirmeðferð fara fram hér aö hluta til eöa öllu leyti. Samningurinn við Sahlgrenska felur í sér aö þangað eru sendir sjúklingar sem þurfa á líffæra- ígræðslu aö halda og sjúkrahúsið sendir reikninga fyrir meöferð- inni til Tryggingastofnunar. ís- lendingar hafa samkvæmt samn- ingnum aögang að líffærabanka Sahlgrenska sem er mjög mikil- vægt atriöi að sögn Karls Steinars. Ekki er um það aö ræða að greidd sé ákveðin upphæö fyrir hverja aðgerð heldur ræöst kostnaður- inn fyrst og fremst af því hvernig fyrir- og eftirmeðferð sjúklinga gengur. Karl Steinar segir að Trygginga- stofnun hafi þegar rætt við Sa- hlgrenska um ákvebna reikn- inga og hafi verið tekið vel í að skoða þá. Að öðru leyti sjái nefndin um samningaviöræöur. Á síðasta ári fengu fimmtán ís- lendingar ígrædd líffæri í Sa- hlgrenska. Þar af fengu tíu ný nýru, fjórir lifrar og einn hjarta. Kostnaöurinn síðustu tvö ár var 323 milljónir króna. Nokkrir íslendingar bíða nú líf- færaígræðslu í Gautaborg og eins bíða nokkrir hér heima. Karl Steinar vill taka það skýrt fram að þótt samningnum vib Sa- hlgrenska hafi verið sagt upp þýði það ekki að klippt hafi verið á þessa þjónustu. Samningurinn gildi þar til búið verði að ganga frá öðrum samningi. Þeir sem bíöi nú eftir líffæraígræðslu, í Gauta- borg eða hér heima, þurfi því ekki að óttast afleiðingar þess að samningnum hafi verið sagt upp. ,-GBK 25 ár frá komu handritanna Þann 21. apríl nk. veröa 25 ár liöin frá því aö fyrstu íslensku handritin komu til landsins frá Kaupmannahöfn. Af því tilefni verbur haldin sam- koma í hátíöasal Háskólans og sett upp handritasýning á Árnastofnun. Stefán Karlsson, forstöðumað- ur Árnastofnunar segir að á sýn- ingunni verði a.m.k. þau tvö handrit sem komu með herskipi til landsins þennan dag fyrir 25 árum, þ.e. Konungsbók Eddu- kvæða og Flateyjarbók. Dagskrá samkomunnar í hátíðasal Há- skólans er ekki endanlega ákveðin en þar verða bæði haldnar stuttar ræður og flutt tónlist. -GBK Aöstoöarframkvœmdastjóri VSÍ segist skilja vel andstööu ASI viö hœkkun matarskattsins. Skattkerfisbreytingar vegna afnáms vöru- gjaldskerfisins: Finna veröur aöra út- færslu sem sátt er um „Ég held ab þaö sé eölilegt ab reyna ná einhverri sátt um máliö viö verkalýbshreyf- inguna. Þab eru mjög margir hagsmunir þarna í húfi fyrir atvinnulífiö. Þarna er veriö ab hræra viö hlutfallslegum veröum hjá geysilega mörg- um fyrirtækjum og atvinnu- greinum," segir Hannes G. Sigurösson abstobarfram- kvæmdastjóri VSÍ um fram- komnar tillögur nefndar um viöamiklar skattkerfisbreyt- ingar í framhaldi af niöur- fellingu núgildandi vöru- gjaldskerfis vegna kæru Eft- irlitsstofnunar EFTA. Hannes segir að viöbrögð VSÍ við þessum tillögum séu í sjálfu sér engin á þessu stigi málsins. Hinsvegar sé ljóst aö þaö verður að finna aöra út- færslu sem sátt verður um enda ekki hægt að líta framhjá því að ASÍ telur sig vera með samkomulag um lækkun mat- arskattsins úr 24,5% í 14% til „afar langs tíma sem ekki væri hægt að. kippa til baka við næstu fjárlög." Aðstoðarframkvæmdastjóri VSÍ segist því skilja mjög vel viðbrögð ÁSÍ við þessari til- lögu nefndarinnar við hækk- un matarskattsins, en ASÍ telur að það sé brot á kjarasamning- um. í því sambandi minnir hann á að þessi skattalækkun stjórnvalda hefði verið grund- völlur kjarasamninga á al- mennum vinnumarkaði árið 1993. Á móti féllst verkalýðs- hreyfingin á það að kauptaxt- ar yrðu óbreyttir frá fyrri samningi. Hannes segir ab tillögur nefndarinnar heföu verið kynntar fyrir fulltrúum VSÍ og ASÍ á sínum tíma og þar hefði verkalýöshreyfingin tekið afar illa í þær. En tillögurnar miða m.a. ab því að bæta ríkissjóði upp fyrirsjáanlegt tekjutap vegna breytingana meö því að hækka matarskattinn um 1% og efsta þrep virðisaukaskatts um 0,5%, afnema endur- greiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingarstað og taka upp magntolla. Hann- es gerir ráb fyrir að hugmynd- ir nefndarinnar hljóti að verða til áframhaldandi skoðunar og umfjöllunar. Hann er jafn- framt á því að núgildandi vörugjaldskerfi sé vont og þurfi ab afnema, enda þekktist hvergi sú skipan sem hefur verið á þessum málum hér- lendis. -grh Guörún jónsdóttir, formaöur Menningarmáianefndar, segir aö margir litlu styrkjanna heföu komiö aö notum. Tímamynd cs. Tvö börn komu frá Grcenlandi í sjúkraflugi í gœr og hafa því 5 börn alls verib flutt meb þyrlu í sömu vik- unni. Yfirlœknir á barnadeild Sjúkahúss Reykjavíkur: Mjög óvanalegt ástand Úthlutanir menningarmálanefndar Reykjavíkurborgar: 30 milljónir í listina Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir á barnaspítala Hringsins, segir ástandiö sem skapast hefur vegna RS- vírussins svokallaöa á Grænlandi vera mjög óvana- legt. í gær var flogiö meb tvö ung börn til landsins og eru grænlensku ungbörnin því fimm talsins sem hafa komiö meö sjúkraflugi á einni viku. „Það var mjög mikilvægt að koma þessum börnum í sérhæföa meðferð og allar ákvarðanirnar um flugin voru réttar. Við fáum endrum og eins einn og einn krakka frá Grænlandi en þetta er mjög óvenjulegt núna. Skýring- arnar eru algjörlega ókunnar en þetta er mjög sérstakt að fimm ung böm veikist svona illa á jafn- skömmum tíma í þessum litla bæ Ammassalik," sagði Ásgeir í sam- tali við Tímann í gær. Aöspurður hvort ekki hefði komið til tals að senda lækna ásamt hjúkrunarbúnaði til dvalar í Grænlandi vegna vírussins sagði Ásgeir að slíkt leysti engan vanda. Börnin þyrftu fyrst og fremst á vöktun og sérhæfðri barnahjúkr- un ab halda og vonlaust væri ab koma því við á Grænlandi.- BÞ Menningarmálanefnd Reykjavík- ur fær 30 milljónir til að styrkja menningarstarfsemi í borginni í nýsamþykktri fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. Sama upp- hæb var veitt til málaflokksins á síöasta ári en litib var á áriö 1995 sem hálfgert tilraunaár þar sem þá var í fyrsta sinn gert ráb fyrir aö menningarmálanefnd tæki af- stöbu til allra styrkbeiönanna og afgreiddar þar. Þaöan fóru beibn- irnar einungis til borgarráös til samþykktar en ábur höfbu styrk- beiönir ýmist veriö afgreiddar beint frá borgarráöi eba leitaö eft- ir umsögn nefndarinnar. Nýlega auglýsti menningar- málanefnd eftir umsóknum um styrki til listamanna, hópa og stofnana vegna liststarfsemi eöa einstakra verkefna. Umsóknar- frestur er til 1. mars og skal um- sóknum skilað á sérstökum eyöu- blöðum þar r sem taka á fram til- efni umsóknar og kostnaöaráætl- un, hvort gert er ráð fyrir tímabundnum eða viðvarandi styrk o.fl. Ekki er bundib framlag til ein- stakra listgreina en á árinu 1995 var 6,5 milljónum veitt til myndlistar, öbru eins til leiklistar, 12,5 milljón- um til tónlistarmála og tæpar fimm milljónir fóru til bókmennta og ýmislegs. Aö sögn Guörúnar Jóns- dóttur, formanns menningarmála- nefndar, komu margir litlu styrkj- anna að notum en alls voru veittir 90 styrkir til 82 aöila. Hún tók einnig fram aö meiri áhersla yrði lögb á að fá greinargerðir frá styrk- þegum um þaö hvernig styrkirnir hafi nýst, en áður hefur verið. Á síðasta ári fóru fram þrjár út- hlutanir en á þessu ári verður meiri- hluta fjárins úthlutað um mánaöa- mótin mars/apríl en um fjóröungi verður úthlutað í haust. Menningarmálanefnd velur borgarlistamenn og er hann út- nefndur þann 17. júní. Viðurkenn- ingin nemur 500.000 kr. og fylgja henni engar kvaðir. Einnig veröa veitt starfslaun úr borgarsjóði en menningarmálanefnd velur þá sem starfslaun hljóta eftir umsóknum og verður valið tilkynnt 18. ágúst. Auk þess verbur veittur styrkur til starfrækslu strengjakvartetts hjá Reykjavíkurborg en styrkurinn er auglýstur til umsóknar í apríl og veröur veittur l.sept. sama ár,-LÓA

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.