Tíminn - 02.03.1996, Side 15
Laugardagur 2. mars 1996
15
Kaldrifjaö
bankarán
6. október 7 989 mœtti Patsy Cooper gjald-
keri óvenju snemma til vinnu í Ríkisbankann í
Noei, Missouri. Þaö kom Patsy á óvart þegar
hún sá aö starfsmannadyrnar voru ólœstar.
Hún lœddist varlega innfyrir og leit inn á
auöan ganginn. Lyklarnir stóöu í skránni og
einhver óhugnaöur lá í loftinu. Hún sneri viö
í dyrunum og hljóp út.
Dan Short bankastjóri, sem myrtur var á grimmilegan hátt.
Frank Marshall lögreglustjóri
sagði síðar: „Hún kom hlaup-
andi og hafði samband við mig.
Við höfðum samstundis sam-
band við alla starfsmenn bank-
ans og vöruðum þá við því að
halda til vinnu. Það náöist í alla
nema bankastjórann sjálfan,
Dan Short. Er viö fórum heim
til hans, sáum við að bakdyrnar
stóðu opnar og aðaldyrnar voru
ólæstar. Þá var jeppinn hans
horfinn, þannig ab við lögðum
fljótt saman tvo og tvo."
FBI í málið
Bankar eru verndaöir af alrík-
islögum Bandaríkjanna, þannig
að samstundis var haft sam-
band við FBI, alríkislögregluna.
Ráðist var til inngöngu í
bankann og þaö fyrsta, sem tek-
ið var eftir, voru tvö skothylki
fyrir neban aðalmyndavél bank-
ans, en hún haföi verið eyöi-
lögð með tveimur byssuskotum.
Þá voru dyrnar að peninga-
geymslunni opnar og síðar kom
í ljós að það vantaði 71.666.51
dali í hirslur bankans.
Viðvörun var þegar gefin út
til þjónustuaðila að varast 100
dollara seðla og myntrúllur sem
hægt var að rekja til bankans.
Hlutur bankastjórans?
Hvab varðaöi bankastjórann,
Dan Short, kom tvennt til
greina. Annað hvort hafði hon-
um verið rænt og hann þving-
aöur til að abstoða ræningjana
við ránið, eða þá að hann var
sjálfur flæktur í glæpinn. Dan
Short var 57 ára gamall og hafði
vammlausan feril að baki fram
að þessu. Þegar FBI grandskoð-
aði skrifstofu og glæsilegt ein-
býlishús bankastjórans, fannst
dökkur blettur á gangstéttinni
sem gat verið blóð. Hópur
manna vann að því að leita
fingrafara inni í húsinu eða að
öðrum vísbendingum.
Klukkustundu eftir ab ránið
komst upp, fannst bíll banka-
stjórans í fimm kílómetra fjar-
lægð frá bankanum. Hann var
mannlaus. Bíllinn hafbi verið
skilinn eftir á bílastæði skammt
frá þéttum skógi, og strax vakn-
aði sú spurning hvort Dan Short
hefði verið myrtur eftir ránið og
lík hans væri hugsanlega að
finna í skógarkjarri í námunda
við bílinn.
Tveir næstu dagar fóru í að
kanna svæðib með hjálp sér-
þjálfabra sporhunda, en það
varð til einskis.
Rannsóknarmenn komust að
því að sést hafði til tveggja
grunsamlegra manna, sem bibu
fyrir utan bankann í brúnum
sendiferðabíl, daginn fyrir rán-
ib. Mennirnir voru taldir 30-35
ára gamlir, annar hár og þrek-
vaxinn með rautt skegg. Félagi
hans smávaxnari og skegglaus,
en jafnvel var talið að þriðji að-
ili hefði verið með í för. Samt
sem áður liðu næstu dagar án
þess ab nokkuð bitastætt gerðist
í málinu.
Líkiö finnst
Miðvikudaginn 11. október
tók málib nýja stefnu, þegar lík
fannst í grunnri tjörn skammt
frá Noel. Dan Short bankastjóri
var fundinn. Svo virtist sem lík-
ið hefði verið 4-5 daga í vatn-
inu. Dauðdagi bankastjórans
hafði verið skelfilegur. Hann
hafði verið bundinn á höndum
og fótum og síðan varpað í
tjörnina án þess að hann gæti
sér nokkra björg veitt. Dánaror-
sökin var drukknun og engir
áverkar fundust á líkinu.
„Hrikalegur dauðdagi," sagði
talsmaður lögreglunnar. „Hann
átti sér aldrei von og háði
dauöastríðið með fullri meðvit-
und."
Það þótti sannað ab glæpur-
inn hefði ekki verið framinn í
skyndi.
Allt haföi verið þaulskipulagt
og íbúar hinnar friðsælu borgar
Noel voru skelfingu lostnir yfir
atburðunum. Enginn vissi
nema morðingjarnir létu aftur
til skarar skríða.
SAKAMÁL
Grunur kviknar
Dagar urðu að vikum og vikur
að mánuðum. Búið var að yfir-
heyra fjölda manna og þeir sem
helst þóttu grunsamlegir voru
svokallaðir Agofskybræður. Þeir
hétu Shannon, 19 ára, og Jos-
eph, 24 ára. Þeir höfðu verið í
tygjum við George nokkurn So-
well og saman höfðu þremenn-
ingarnir gengið glæpabrautina
frá unga aldri. Þeim svipaði að
verulegu leyti til útlitslýsingar
vitnanna. Samt sem áður höfðu
bræðurnir báðir fjarvistarsönn-
un, annar sagðist hafa verið hjá
kærustu sinni á þeim tíma sem
morðið fór fram, og ættingi
hins vottaði ab hann hefði sofið
í hvílu sinni alla nóttina.
Framhjá því varb þó ekki litiö
að teikningar af mönnum, gerð-
ar eftir lýsingu vitnanna, voru
nauðalíkar bræðrunum. Og
Shannon Agofsky og joseph Agofsky.
annað, fyrir utan heimili Jos-
ephs stóð brúnn sendiferbabíll,
nákvæmlega eins og sá sem
staðið hafði utan við bankann
daginn fyrir ránið. Joseph hélt
því hins vegar fram að bíllinn
hefði lengi stabið bilaður og
væri í óökuhæfu ástandi.
Sannanir
Það komst skriður á málin
þegar lögreglan hafði uppi á
manni, sem sagöist hafa leigt
Agofskybræðrunum lítiö ein-
býlishús sitt í fimm daga, á
sama tíma og bankaránið var
framið. Það, sem meira máli
skipti, var að hann saknaði
nokkurra hluta úr húsinu og bíl-
skúrnum, sem fylgdi einbýlis-
húsinu, m.a. járnkeðju sem
hékk í bílskúrnum. Lík Dans
heitins Short bankastjóra hafði
einmitt verið vafið járnkeðju og
þegar lögreglan sýndi leigusal-
anum kebjuna, bar hann kennsl
á hana sem sína eign.
Þá var það ekki til að minnka
grunsemdir lögreglunnar þegar
Agofskybræðurnir fóru aö slá
um sig með fasteigna- og bíla-
kaupum. Engin eðlileg ástæða
gat verið fyrir skyndilegu ríki-
dæmi þeirra, en enn um stund
beið lögreglan átekta og aflaði
frekari gagna.
Örlagaríkt umferöar-
lagabrot
11. desember 1990, meira en
ári eftir bankaránið, kom tæki-
færið. Agofskybræðurnir voru
stöbvaðir af lögreglu fyrir um-
ferðarlagabrot og við skoðun
bílsins fundust myntrúllur
sömu tegundar og saknað hafði
verið úr bankanum. Jafnframt
fundust afsöguð haglabyssa og
22ja kalíbera riffill. Þegar var
haft samband við FBI og þótt
þeir sýni meðferð ólöglegra
skotvopna yfirleitt ekki áhuga,
urðu sýnishornin úr bankanum
til þess að her manna var send-
ur á vettvang til að kynna sér
málið. Gögnin þóttu nægilega
sterk til handtöku og lauk þar
með 14 mánaða hóglífi bræbr-
anna.
Játningin
Yngri bróðirinn, Shannon,
reyndist ekki jafn harðsvíraður
glæpamaður og verknaður hans
gaf til kynna. Hann varð brátt
tvísaga og öryggisleysi hans og
beittar spurningar FBI- mann-
anna leiddu að lokum til þess að
hann játaði og sagði sólarsög-
una.
Þeir höfðu fengið hugmynd-
ina u.þ.b. mánuði áður en ránið
var framiö. Fyrst höfðu þeir upp
á heimilisfangi bankastjórans
og síðan leiddi eitt af öðru. Þeir
leigðu sér hús í tíma, útveguðu
vopn og héldu síðan til banka-
stjórans, sem var ekkill og bjó
einn, aðfaranótt 6. október. Þeir
vöktu hann og misþyrmdu hon-
um þannig að hann þorði ekki
annað en að gera eins og þeir
skipuðu fyrir. Hann aftengdi ör-
yggiskerfið, myndavélina sá Jos-
eph Agofsky um og allt gekk
eins og i sögu.
Shannon kvabst aldrei hafa
dottið í hug að nokkur léti lífið,
en Joseph ákvaö að losa sig við
vitnið með fyrrgreindum hætti.
Shannon sagðist hafa verið á
móti því, en fékk ekki við ráðiö.
Dauöarefsing?
Joseph bar ekki beinlínis af sér
framburð bróður síns, en var
ósamvinnuþýöur og vildi sem
minnst við lögregluna tala.
Við réttarhöldin kom m.a.
fram að hendur og fætur banka-
stjórans höfðu verið límdir með
sterku límbandi. Þrátt fyrir
vatnib varðveittust nothæf
fingraför á límbandinu og þau
reyndust vera af bræðrunum.
Ekki þurfti því frekar vitnanna
við og málið var upplýst.
Þriöji maburinn í ráninu var
vinur Agofskybræðranna, Ge-
orge Sowell. Hann hafði ekið
bílnum og var því meðsekur
bræðrunum. Vib yfirheyrslur
opnaði Joseph hins vegar
munninn og sagði bróður sinn
hafa drepiö bankastjórann.
Ómögulegt verður að sanna
hvor þeirra hafi framið morbið,
en sennilega verða bræðurnir
fundnir jafnsekir þegar málið
verður til lykta leitt. Ekki er tal-
ið ólíklegt aö dauðarefsingunni
veröi beitt gegn Agofskybræðr-
unum ungu. Eins og sækjandi
hefur orðað það: „Þeir eiga há-
marksrefsingu skilið fyrir mis-
kunnarlausan glæp sinn."
■