Tíminn - 19.06.1996, Side 1

Tíminn - 19.06.1996, Side 1
80. árgangur Miðvikudagur 19. júní 113. tölublað 1996 Gullleit í Mosfellsbæ Fyrirtækið Melmi ehf mun í sumar leita að gulli á svæð- um sem hafa gefiö jákvæðar niðurstöður í fyrri rannsókn- um. Til að byrja meö verður leitað í löndum jarðanna Þormóðsdals og Búrfells í Mosfellsbæ, en þar hefur fundist vottur af gulli á gömlu jafrðhitasvæði. Áætl- að er að bora fimm til tíu kjarnaholur skáhallt í gegn- um jarðhitasprungurnar, en gullmagn í borkjarnanum verður mælt nákvæmlega svo að reikna megi magn af gulli í hverju tonni. Reiknað er með að niður- stöður um hvort nægjanlega mikið sé þarna af gulli til að standa undir námarekstri liggi fyrir í árslok. Fyrirtækið Melmi ehf var stofnað í apríl sl. í þeim til- gangi að leita að gulli og öðr- um góðmálmum og er það í 80% eigu Kísiliðjunnar en Iðn- tæknistofnun á 20% eignar- hlut. Bæði Kísiliðjan og Iðn- tæknistofnun hafa um nokkr- urra ára skeið stundað gullleit hér á landi, og hefur vottur af gulli fundist á nokkrum stöð- um án þess þó að fjármagn hafi verið fyrir hendi til að fullrannskaka svæðið. Nú hins vegar hefur tekist að fá erlenda fjárfesta með í damið og er gert ráð fyrir að leitin við þennan næsta áfanga verði um 30 milljónir króna. ■ BSRB fagnar ræbu Davíös I yfirlýsingu sem stjórn og formenn aðildarfélaga BSRB sendi frá sér í gær er því sér- staklega fagnað að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi talað fyrir styttri vinnu- tíma í hátíðarræðu sinni á 17. júní. Er bent á aö þetta hafi verið krafa BSRB um langt skeið en atvinnurek- endur hafi jafnan spyrnt við fótum í þessu máli. Sjá ræðu forsætisráðherra bls. 5 og einnig viðbrögð ASÍ á baksíðu. ■ Knattspyrnuskólar íþróttafélaganna í Reykjavík *», gangi og drengirnir í skólanum hjá Fram, en skólinn erá 18. starfsári, sýndu mikla snilldartakta í Safamýrinni ígœr. Fyrirmyndirnar eru líka óvenju aö- gengilegar í sjónvarpinu þessa dagana vegna útsendinganna frá EM. Atvinnuleysi minnkaö töluvert á landsbyggöinni en ekkert / höfubborginni frá maí ífyrra: Atvinnulausum fækkar mikið á landsbyggöinni Fækkun atvinnulausra hefur fyrst og fremst orðið á lands- byggðinni. Atvinnulausir utan höfubborgarsvæðisins vom um 2.000 núna í maí í staðinn fyrir 3.000 á sama tíma í fyrra. Á höf- ubborgarsvæðinu vom um 4.200 manns án vinnu og hefur nær ekkert fækkab milli ára. Hlutfall atvinnulausra á höfub- borgarsvæbinu (5,4%) er því óbreytt milli ára, en á lands- byggbinni hefur það lækkað um fjórbung á sama tíma (í 3,6%). Atvinnuleysi í maí var hlutfallslega þribjungi minna á landsbyggbinni en á höfub- borgarsvæbinu. Eina hlutfalls- talan sem ekki er hæst á höfub- borgarsvæðinu er 8,4% at- vinnuleysi meöal kvenna á Sub- urnesjum. Skráð atvinnuleysi í maímán- ubi samsvaraði um 6.300 manns án vinnu ab meðaltali, eba 4,7% af mannafla, sem er hámark þess sem Vinnumálaskrifstofan spáði fyrir mánubi. Atvinnulausum körlum fækkabi um 370 milli mánaða (12%), þar af um 210 á landsbyggbinni. Atvinnulausum konum fjölgabi aftur á móti um nærri fjóra tugi á höfuðborgar- svæðinu, en fækkabi lítillega á landsbyggbinni. Atvinnuástandib virbist hafa batnað mest á Norðurlandi, Aust- urlandi og Suburlandi. Hlutfall atvinnulausra af mannafla var sem hér segir í maí: Höfubb.svæbi Landsbyggð 6,8% 5,6% 4,3% 2,3% 5,4% 3,6% Heildaraflinn 1.485 þús. tonn á fiskveiöiárinu, eöa á tímabilinu 1. sept. 1995 til maíloka 1996: Meö betri aflaárum í sögunni Heildarafli landsmanna fyrstu fimm mánuði árins nam um 1.111 þúsund tonnum og hef- ur sjaldan eða aldrei verið meiri á þessum árstíma. Verð- mæti aflans upp úr sjó á þessu tímabili nemur um 24,9 mil- jörbum króna. Þab er 2% meira en á sama tíma í fyrra þegar verbmætib var um 24,4 miljarbar króna. Þab sem af er fiskveiöiárinu, eba frá 1. sept- ember 1995 til maíloka í ár nemur heildaraflinn hinsveg- ar 1.485 þús. tonnum. Miðað vib magn er þetta meb betri aflaárum í sögu landsins. Þetta kemur m.a. fram í bráðabirgðatölum um fiskafl- ann í sl. maímánuði í Útvegstöl- um. Þar kemur einnig fram ab þessi mikli afli er einkum vegna góbrar loðnu- og síldveiði, en heildarafli þessara tegunda nam um 850 þúsund tonnum fyrstu fimm mánuði ársins á móti 690 þús. tonnum á sama tíma í fyrra. Af afla annarra fisktegunda á þessu tímabili miðað við fyrstu fimm mánuði ársins í fyrra, þá jókst þorskafli um 8%, steinbíts- afli um 30%, skarkoli um 11%, úthafskarfinn um 58% og 7% aukning varð í rækjuafla, eða 32.400 tonn á móti 30.200 í fyrra. Samdráttur varð hinsveg- ar í ýsu, eða um þriðjungur, 20% í ufsa, 16% í karfa og grá- lúðuafli minnkaði um þriðjung. Svipað er uppi á teningnum á fiskveiðiárinu, eða frá 1. sept. 1995 til maíloka 1996 miöað við sama tímabil þar á undan. Á þessu tímabili hefur þorskur aukist um tæp 9%, steinbítur um 27%, úthafskarfi um 66% og annar botnfiskur um 7%. Aftur á móti hefur ýsuafli dreg- ist saman um 23%, ufsinn um 18%, karfi um 11% og grálúða um 16%. -grh Landiballt: 6,4% 3,5% 4,7% Atvinnulausir karlar voru þannig orðnir nærri helmingi færi hlutfallslega á landsbyggð- inni en á höfuðborgarsvæðinu. Og atvinnuleysi meðal karla var líka nærri helmingi minna heldur en meðal kvenna. Síðasta virkan dag í maí voru um 6.300 manns á atvinnuleys- isskrá, eða jafn margir og að meðaltali í mánuðinum öllum. Vinnumálaskrifstofan áætlar samt að atvinnulausum fækki þó nokkuð í júní og verði á milli 3,9% til 4,4% af mannafla. Útgefin atvinnuleyfi í maí- mánubi voru alls 87, þar af 75 ný og/eða framlengd tímabund- in leyfi, en 10 ótímabundin. Alls hafa þá verið gefin út rúm- lega 420 atvinnuleyfi það sem af er árinu. ■ M iiii EINAk|. SKÚLASON HF \WREVF/1Z/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22 STOFNAÐUR 1917

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.