Tíminn - 24.08.1996, Side 6
6 K
Kvennasveit Keilis
Islandsmeistari '96
Sigrabi þribja árib í röb
Kvennasveit Keilis var& íslands-
meistari þri&ja áriö í rö& sl.
sunnudag, er hún lagöi sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur aö
velli.
Keiliskonurnar unnu alla leiki
sína og má me& sanni segja að
þaö sé vel af sér vikiö. Margir
spennandi og tvísýnir leikir urðu
á leið Keiliskvenna að meistara-
titlinum, en þær efldust við
hverja raun og stóðu uppi sem
sigurvegarar.
Síðasti leikurinn var á móti GR-
sveitinni. Fjórmenninginn léku
þær Kristín Pálsdóttir, nýkrýndur
Islandsmeistari öldunga og Lilja
Karlsdóttir. Sá leikur vannst 3/2
gegn þeim Sigríði Th. Mathiesen
og Ágústu Guðmundsdóttur.
Hinir tveir leikirnir voru tvísýn-
ir, en sigurinn var tryggður þegar
Þórdís Geirsdóttir vann Ragnhildi
Sigurðardóttur á 19. holu. Ólöf
María Jónsdóttir gulltryggði svo
sigurinn með því að sigra Her-
borgu Arnardóttur, einnig á 19.
holu.
Golfklúbbur Reykjavíkur varð
semsagt í öðra sæti, en þriðja sæt-
ið hreppti Golfklúbbur Suður-
nesja. Golfklúbbur Akureyrar og
Golfklúbbur Sauðárkróks féllu í
aðra deild, en Golfklúbburinn
Kjölur í Mosfellsbæ og B-sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur koma í
staðinn í fyrstu deildina næsta ár.
Auk þeirra kvenna sem áður er
getið í GK skipaði Inga Magnús-
dóttir, margfaldur meistari sveit-
ina, en Iiðsstjóri var Guðbrandur
Sigurbergsson. ■
Onnur deildin
Sigurvegarar í annarri deild
karla varð A-sveit Golfklúbbs
Vestmannaeyja með 4 stig.
Annað sætið skipaði sveit Nes-
klúbbsins einnig með 4 stig. B-
sveit Keilis varð þriðja með 3
stig.
I annarri deild kvenna sigraði
B- sveit Golfklúbbs Reykjavíkur,
Golfklúbbur Kópavogs og
Garðabæjar varö í öðru sæti, en
sveit Golfklúbbsins Hamars á
Dalvík í því þriðja.
Þribja deild
Þriðja deild sveitakeppni GSl í
karlaflokki keppti á Katlavelli
við Húsavík að þessu sinni. Sig-
urvegari varð sveit GKG, vann
alla sína leiki. Sveitina skipuöu
Svanþór Laxdal, Ottó Sigurðs-
son, Björn Halldórsson, Róbert
Björnsson og Óli Laxdal sem var
á Katlavelli
liðsstjóri. Sveit GH varð í öðru
sæti en hana skipuðu Magnús
Hreiðarsson, Sigurður Hreins-
son, Hreinn Jónsson, Skúli
Skúlason og Axel Reynisson.
Liðsstjóri var Kristinn Lúðvíks-
son. Þessar sveitir munu leika í
annarri deild að ári. ■
Golfarinn
Golfari dagsins er Óskar Friðjónsson, Skari rakari, nýkrýndur
sigurvegari í Einherjamótinu.
Sw’ÍSÍ ilc'jS : ;í
mir w m
Birgir Björnsson, eöa Biggi Björns ÍFH, er ekki aöeins landsþekktur fyrir afrek sín íhandknatt-
leik. Hann er einnig liötœkur kylfingur og hefur leikiö fyrir íslands hönd í Evrópukeppni eldri kylfinga. Birgir var
einn af þeim fjölmörgu sem fylgdust meö sveitakeppni GSÍ á Hvaleyrarvelli um og fyrir síöustu helgi. Biggi veit aö
tvisvar veröur sá feginn er á steininn sest og því haföi hann meö sér tjaldstól og lét fara vel um sig. Hér situr
hann á stólnum góöa á fyrsta teigi og fylgist meö því sem er aö gerast úti á golfvellinum. Golfskáli GK í baksýn.
Golftímamynd R. Lár.
Suðurnesjamenn sigruðu
í sveitakeppni GSÍ
A-sveit Golfklúbbs Suöumesja
sigraöi nokkuö óvænt í fyrstu
deild sveitakeppninnar. Leynis-
menn frá Akranesi voru taldir
sigurstranglegastir í deildinni
og Keilismenn úr Hafnarfiröi
ekki fjarri sigurmöguleikum.
Þessar þrjár sveitir urðu allar
jafnar að stigum, en eftir að taldir
höfðu verið innbyrðis sigrar sveit-
anna kom í ljós að sveit GS stóð
uppi sem sigurvegari.
Þegar lagt var upp í síðasta
hring á Hvaleyrarvellinum á
sunnudag höfðu Leynismenn
Einherjamótið, árlegt mót þeirra
sem farið hafa holu í höggi, var
að þessu sinni haldið á Nesvellin-
um. Mótið fór fram sl. sunnudag í
sólríku veðri en vindasömu.
Heimamaðurinn Óskar Friðþjófs-
son lék glæsigolf sem oftar, eða
þrjá yfir pari vallarins. Fyrir þenn-
an góða leik fékk Óskar 41 punkt,
en keppt var með punktafyrir-
komulagi. í öðra sæti varð Hall-
dór Ingólfsson, handknattleiks-
Aö þessu sinni er golfsagan
splunkuný af nálinni, geröist
nánar tiltekiö á fyrstu braut
Golfklúbbsins Kjalar í Mosfells-
bæ um síöastliöna helgi.
Jón Svan, margreyndur kylfing-
ur, var þar að leik ásamt félögum
sínum. Einsog þeir vita sem til
þekkja er fyrsta brautin á Hlíða-
velli par fimm og er innáskotið
vandasamt í meira lagi, en yfir
djúpt gil er að fara, sem reynst
hefur mörgum kylfingi dýrkeypt.
Ekki tókst betur til en svo hjá
Jóni við innáskotið, sem var eðli
málsins samkvæmt það þriðja, að
boltinn hans fór í stórum sveig til
hægri og hvarf ofan í gilið.
Félagar hans gengu yfir brúna á
gilinu og létu Jón um aö finna
boltann. Eftir dágóða stund sjá
þeir hvar „Svanurinn" klöngrast
upp úr gilinu holdvotur. Hafði
hann séð bolta sinn í lækjar-
skömminni sem rennur um gilið.
eins stigs forystu á hinar sveitirn-
ar tvær, fjögur stig á móti þremur
stigum GS og GK. í þeim leik
unnu Suðurnesjamenn A-sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur 3/0 og
vora því komnir með 4 stig. „Úr-
slitaleikurinn" var því milli Leyn-
ismanna og Keilismanna. Leynis-
menn unnu fjórmenninginn og
þá voru leikir Björns Knútssonar
Keili og Kristins G. Bjarnasonar
Leyni, og Björgvins Sigurbergs-
sonar Keili og Birgis Leifs Haf-
þórssonar Leyni eftir. Skemmst er
frá því að segja að Keilismenn
maðurinn góðkunni, einnig úr
Nesklúbbnum en Halldór náði í
40 punkta. Næstu sæti skipuðu
þeir Sigurjón, Sjonni, R. Gíslason
GK, Hörður Harðarson NK og
Bergsveinn Alfonsson GR, allir
með 38 punkta.
Þeir Hilmar Karlsson GR og
Kjartan KLP Pálsson NK sáu um
framkvæmd mótsins og fórst það
vel úr hendi.
Þegar hann var að teygja sig eftir
boltanum varð honum fótaskort-
ur og féll á bólakaf í lækinn.
Klöngraðist hann nú upp úr gil-
inu og stillti sér vígreifur en hold-
votur upp á bakkanum. Enn sló
hann í gilið, en nú var boltinn á
þurru. Félagar Jóns biðu rólegir í
góða veðrinu og loks tókst Jóni að
koma boltanum á flötina. Niður-
staða talningar urðu 9 högg á hol-
una. Rúsínan í pylsuendanum er
hinsvegar sú, að félagarnir kom-
ust að því að einum bolta fleira
var á flötinni en lög gerðu ráð fyr-
ir. Fyrsti bolti Jóns hafði semsagt
lent á steini niðri í gilinu, flogið
þaðan inn á flöt og sat þarna
skælbrosandi nokkur fet frá hol-
unni í góöu „bördífæri".
„Enginn er verri þó hann
vökni," segir máltækið og Svanur-
inn hélt áfram leik einsog ekkert
hefbi í skorist og þornubu föt
hans fljótt og vel í blíðunni. e
unnu báða leikina, Björgvin á 18.
holu en Björn eftir bráðabana og
var leikurinn því æsispennandi
fyrir leikmenn ekki síður en
áhorfendur sem fjölmenntu á
Hvaleyrina í góðviðrinu.
Það má því segja ab Keilismenn
eigi sinn þátt í sigri Suðurnesja-
manna.
Golftíminn óskar vösku liði
Golfklúbbs Suðurnesja til ham-
ingju með íslandsmeistaratitil-
inn, þeim Helga Þórissyni, Hilm-
ari Björgvinssyni, Erni Ævari
Hjartarsyni, Guðmundi Rúnari
Hallgrímssyni, Davíð Jónssyni og
liðsstjóranum Sturlaugi Ólafs-
syni.
Endanleg úrslit urbu þau, ab
Golfklúbbur Suðurnesja sigraði,
Golfklúbburinn Keilir varð í öðra
sæti og Golkflúbburinn Leynir í
því þriðja. Fjórba sæti skipaði A-
sveit Golfklúbbs Reykjavíkur.
A-sveit Golfklúbbs Akureyrar
og B- sveit Golfklúbbs Reykjavík-
ur falla í aðra deild, en í þeirra
stað koma A- sveit Golfklúbbs
Vestmannaeyja og sveit Nes-
klúbbsins. ■
Golfreglan
Ef þú slærð rangan bolta, eitt
högg eða fleiri (nema í torfæru),
tapar þú holunni í holukeppni,
en færð tvö vítishögg í höggleik
en þú verður að ljúka holunni
með réttum bolta áður en þú
slærð af næsta teigi. Ekkert víti
telst ef þú leikur röngum bolta í
torfæru (svo framarlega sem þú
telur að þú sért að leika þínum
bolta). Þau högg sem þá eru tal-
in teljast ekki með í skorinu, en
þú verður að finna þinn bolta
og ljúka leik um holuna með
honum.
Skari rakari vinnur á Nesinu
Golfsagan