Tíminn - 24.08.1996, Page 7

Tíminn - 24.08.1996, Page 7
La ui^ð ágfi® <24: ág líifsf ' 7 ö Lífiö heldur áfram nokkurn veginn sinn vanagang, segir Magnea Cubmundsdóttir um tilveruna á Flateyri. s A Flateyri gengur lífiö nokkurn veginn sinn vanagang þrátt fyrir áföll: íbúar takast á við framtíðina ífiö heldur áfram nokkum veginn sinn vanagang. Fólk vinnur hér af fullum krafti," sagöi Magnea Guömundsdóttir fyrrum oddviti á Flateyri í samtali viö Tímann, en leit- aö var til hennar til aö fá upplýsingar um mannlífiö á Flateyri. Magnea vakti þjóö- arathygli og aödáun í októ- ber, fyrir tæpu ári, þegar hörmungar dundu yfir Flat- eyri og náttúran tók sinn háa toll. Þá stóö Magnea, styrk sem klettur, og stýröi aögeröum af festu og æöm- leysi. Hjólin fóru fljótlega að snú- ast á ný á Flateyri, enda var lögð áhersla á að koma lífinu í eins réttar skorður og kostur var, eins fljótt og kostur var. íbúar Flateyrar takast á við framtíðina og e.t.v. er fátt sem gefur bjartari vonir um fram- tíðina en ungviðið, enda er verið að byggja nýjan leik- skóla á staðnum og segir Magnea að byggingin gangi mjög vel. „Þetta er skemmtilegt og spennandi verkefni, nýtt sem maður hefur ekki séð áður. Okkur voru gefnir peningar til þessa verkefnis. Við áttum gamlan lélegan leikskóla sem var mjög nálægt óhappinu öllu saman. Það varð til þess að við ákváðum að byggja nýj- an leikskóla. Við hefðum aldr- ei gert það nema af því að okk- ur bárust þessir fjármunir, vegna þess að við höfðum ekki ráð á því að byggja nýjan leik- skóla." Atvinnulífið á Flateyri er mjög gott og næg vinna. Fyrir- tækin ganga vel fyrir utan óhappið sem varð hjá Vest- firskum skelfiski á dögunum, „en það er bjartsýni í hugum manna og mér finnst á öllu að á þeim bæ ætli menn ekkert að gefast upp. Það verður von- andi ekki langt þangað til við sjáum nýtt skip sigla til þeirra og hjólin þar fara að snúast á fullu." Andinn á Flateyri er því nokkuð góður miðað við að- stæður. „Mér finnst fólk bara standa sig vel. Auðvitað er það þannig að margt er erfitt, en þaö er bara samt þannig að fólk sem er hér það ætlar sér að halda áfram og trúir á fram- tíðina. Ég bara dáist að fólki, ég verð að segja það alveg eins og er. Mér finnst það alveg hreint aðdáunarvert hvernig fólk hefur látið hlutina ganga með þessa von í huga." Nýlega sameinaðist Flateyri nýju sveitarfélagi á Vestfjörð- um, ísafjarðarbæ. Magnea seg- ir breytingarnar náttúmlega töluverðar, en hún telur það taka svolítinn tíma að pússa þetta saman þannig að hlut- irnir verði eins og þeir eiga að verða, þetta sé í mótun. „Ég er bjartsýn á þetta, ég held að þetta hafi verið rétt ákvörðun sem var tekin í ljósi breyttra og bættra samgangna. Mannlífið allt ætti að komast í mun já- kvæðari farveg með því að við erum eitt en ekki hvert á sín- um stað en samt svona nálægt hvert öðru." Jarðgöngin sem tengja þrjá byggöakjarna saman eru í raun ein forsendan fyrir því að sameining sveitarfélaganna var möguleg. Göngin verða tekin formlega í notkun 14. september nk. og segir Magn- ea fólk farið að hlakka mikið til. „Við fengum að nota þau í vetur og ég held að það hafi skipt sköpum. Bæði veðrið og göngin gerðu það að verkum að hér gekk þó eins og gekk." Magnea heldur áfram: „Mér finnst fólk vera ákveðið í því að halda hér áfram þrátt fyrir allt. Það er von og birta þó auövitað sé líka erfitt. Það þýð- ir ekkert að horfa framhjá því, það er líka erfitt. En fólkið hérna á staðnum það er ein- hvern veginn þannig, finnst mér, að það ætlar sér að halda áfram, og þeir sem stjórna hér atvinnulífinu gera það af myndarskap og öryggi. Ef við hefðum það ekki, þá horfði sjálfsagt öðruvísi viö. Við vilj- um byggja hérna upp og halda áfram vegna þess að við höf- um þetta trausta atvinnulíf. Því að án þess væri þetta dap- urt. Við þurfum að geta unnið og sofið örugg til þess að geta lifað svo lífinu sem kemur í leiðinni þar á eftir." Fyrir dyrum standa fram- kvæmdir við mikinn varnar- garð ofan við byggðina á Flat- eyri og standa vonir manna til að hann dugi til að verja byggðina fyrir snjóflóðum í framtíðinni. Flateyringar bíða með eftirvæntingu eftir því að sjá garðinn rísa. „Við erum svolítið leið yfir því að þetta skyldi ekki fara fyrr af stað. En við treystum því að um leið og þetta fari af stað komi öryggis- tilfinningin. Það er öryggis- leysi að sjá þetta ekki fara af stað. Það er það sem maður hefur fundið í fólki, öryggis- leysi gagnvart því að þetta komi ekki, því þá þurfi það að óttast eitthvað. Ég get náttúru- lega ekkert alhæft, en ég held að flestir séu þeirrar skoðunar að þetta sé það sem skipti sköpum fyrir framtíð byggðar hér." Hún segir menn hafa trú á þessu mannvirki. „Þetta er gert víða úti um lönd þar sem þessi vandi er og þar er þetta í lagi. Því skyldi þetta ekki vera í lagi hjá okkur íslendingum? Kannski eru íslendingar skept- ískir á þetta vegna þess að þetta er fyrsta mannvirkið þessarar gerðar sem rís. Það þarf tíma til að vinna tiltrú á þessu og hafa trú á því að þetta sé varanlegt og framtíðin. Auðvitað á það að vera fram- tíðin að verja byggöir vegna þess að í þessum byggðum eru verðmæti. Það skal ekki neitt vera óeðlilegt þó einhverjum finn- ist þetta vera einhver bölvuð vitleysa. Það fólk verður bara að fá að hafa þá skoðun þang- að til annað kemur í ljós." -ohr Afsökunarbeiöni frá fréttastjóra Alþýöublaösins: Vegna smáfréttar eða slúðurs um Ásgeir Hannes í Alþýðublaðinu Kæri Ásgeir Hannes. í Alþýðublaðinu 13. ágúst birt- ist „fréttamoli", klausa eða það sem oftast er kallað slúður, þar sem ýjað er að því með afar ósmekklegum hætti að þú sért nú vert í Lettlandi og veitingastaður þinn sé af vafasömu tagi. Þar segir að furðulegustu sögur gangi um nýjustu viðskiptaævintýri þín og síðan er klykkt út með því að þess- ar fregnir hafi ekki fengist stað- festar — rétt eins og það afsaki birtinguna. Undirritaður getur ekki annaö en lotið höfði í skömm og þú ert hér meb beðinn margfaldlega af- sökunar á þessum áburði og „fréttaflutningi" sem auðvitað er fyrir neðan allar hellur. Þessa kjaftasögu heyrði ég á skotspón- um og í hita leiksins varð mér þab á að láta hana frá mér fara án þess ab leiða hugann að því að þetta gæti haft slæmar afleiðingar fyrir þig. Jafnframt braut ég fyrstu reglu blabamennskunnar sem er auðvitað sú ab fá „fréttina" stað- festa ábur en hún er birt. Eins og áður sagbi á ég mér fátt eitt til málsbóta og vil að endingu biðja þig enn og aftur afsökunar á þessum skrifum. Jakob Bjamar Grétarsson fréttastjóri Alþýðublaðsins

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.