Tíminn - 30.03.1989, Síða 3
Fimmtudagur 30. mars 1989
Tíminn 3
Hermann Stefánsson á Laugabakka í Miðfirði veiddi
20 tófur og tvo minka á þrem nóttum:
Fékk níu tófur
á einni nóttu
Tuttugu tófur og tveir minkar lágu í valnum eftir þriggja
nátta útilegu í skothúsi við Aðalból í Miðfirði. Eina nóttina
náði hann níu tófum og fyrir nokkrum árum náði hann ellefu
tófum á einni nóttu, en eftir því sem Tíminn kemst næst er
það mesta veiði, sem einn maður hefur veitt af tófu á einni
nóttu hér á landi. Veiðimaðurinn sem hér var á ferð heitir
Hermann Stefánsson rútubílstjóri að aðalstarfi og býr hann á
Laugabakka í Miðfirði.
Hermann sagði í samtali við Tím-
ann að tófurnar hefði hann allar
skotið í þessum mánuði. „Ég hafði
níu tófur eina nóttina," sagði
Hermann. Tófurnar veiddi hann all-
ar úr skothúsi, sem hann kom upp á
jörðinni Aðalbóli. sem nú er komin
í eyði og fyrir utan kofann er síðan
sett æti í hæfilegri fjarlægð til að
ginna tófuna að. Ætinu er komið
fyrir strax á haustin, og síðan endur-
nýjað eftirþörfum. Aðspurðursagði
Hermann að eyðibýlið væri í um sjö
kílómetra frá næsta bæ.
„Ég veit ekki hvort ég hafi nokk-
urn töframátt,“ sagði Hermann að-
spurður, „tíðarfarið hjálpar til. Það
er búið að vera mikili snjór og
harður vetur. þannig að þeim er ekki
mikið um bjargir, það hjálpar mikið
til. Ég hef annars haft 11 tófur á
einni nóttu fyrir nokkrum árum. en
ég hef aldrei veitt svona margar á
svo stuttum tíma,“ sagði Hermann.
Hermann sagði að líklega hafi
hann náð þessum tuttugu tófum á
rúmlega þriggja vikna tímabili á
þrem nóttum. „Það verður að líða
smá tími á milli þess scm maður fer
í skothúsið. Það þýðir ekkert annað,
þegar maður tekur svona mikinn
slurk í einu, en að láta liggja á milli.
Þær verða varar um sig og því verður
maður að láta þetta jafna sig. Þá er
betra að eiga við þær. Þær eru þá
ekki eins styggar sem cftir eru. því
það vita alltaf nokkrar af manni."
sagði Hermann. Hann sagði að best
væri að láta þær sem lengst óáreittar
í ætinu, því þá yrðu þær ekki eins
varar um sig.
Aðspurður hvað hann legði fyrir
þær sem æti til að ginna þær í
nágrenni skothússins, sagðist Her-
mann vanalega leggja út hrosshausa
á haustin, en einnig oft kindahræ.
„Síðast var það meri sem drapst sem
ég flutti á staðinn. Það er nú lang
best að leggja það fyrir tófurnar,"
sagði Hermann.
Hermann sagði að vel gæti verið
að tófurnar kæmu illa haldnar úr
óbyggðum. en þær hefðu allar verið
frekar vel í holdum sem hann veiddi,
enda tljótar að ná sér þegar þær
komast í æti.
Aðspurður hvort hann hefði náð
fleiri en einni í skoti, sagði hann svo
ekki vera. „Það er rnjög hæpið að
geta það. Ef maður tekur þetta jafn
óðum og það kemur þá er það
sjaldan að þær koma tvær í einu. Þó
kom það einu sinni fyrir, en önnur
þeirra slapp,“ sagði Hermann. Hann
sagðist telja að óvenju mikið væri af
tófu og frekar farið fjölgandi að
undanförnu. Hann sagði að ein-
göngu væri um villtar tófur að ræða,
en ekki aldar.
Hermann hefur stundað tófuveið-
ar í um fjórtán ár og notar hann
Winchester hálfsjálfvirka hagla-
byssu við veiðarnar. Hann fer í
skothúsið þegar fer að rökkva og er
þar til um ellefu um morguninn.
Páll Hersteinsson vciðistjóri sagði
í samtali við Tímann að það væri
mjög sjaldgæft að ná svo mörgum
tófum á svo stuttum tíma. Aðspurð-
ur sagði Páll að þessi mánuður væri
upphafið að fengitímanum og lík-
lega væri niegnið af því sem Hcr-
mann hefði veitt karldýr.
„Það má segja að það veiðist tveir
steggir fyrir hverja læðu að meðaltali
á þessum árstíma. Megnið af þcssu
er einnig ungt, líklega um 70% á
fyrsta vetri. Þetta eru ung dýr sem
Merktur refur fylgist með mannaferðuni.
eru að leita fyrir sér að svæði og ekki
eins hæf og eldri dýrin til að afla sér
fæðu. Þau fara yfir stærra svæði í
fæðuleit og hafa ekki afmarkað sér
fast svæði ennþá. Karldýrin eiga
erfiðara líf, þeir þurfa að afmarka
sér óðal til þess að geta laðað til sín
læðurnar,“ sagði Páll.
Hann sagði að einnig ætti hið
gífurlega fannfergi í vetur þátt í
þessu. „Rjúpan hcfur fyrir bragðið
ckki verið eins dreifð um hálendið
og undanfarna vctur og þar af lcið-
andi leiti refirnir kannski frekar í
ætíð fyrir bragöið," sagði Páll. Hann
sagði einnig að ekki mætti gleyma
því að vart hefur orðið við fjölgun
refa á vestanverðu landinu. Skýring-
arnar væru því nokkrar sem allar
kæmu til greina.
Páll sagði að veiðin hefði yfirleitt
verið lcleg í vetur, einkum vegna
veðurs, en ekki vegna skorts á
refum. Á Norðausturlandi hafa ver-
ið einkar slæm skilyrði til vetrarveiði
og því lítiðaf þeint veiðum aðsegja.
-ABÓ
ATHUGASEMD FFÍ
f tilefni af frétt Tímans í gær
varðandi ávöxtunarkröfu í kredit-
kortaviðskiptum skal eftirfarandi
tekið fram:
1. ÞegarFjárfestingarfélag íslands
hf. annast milligöngu á sölu úttektar-
seðla krítarkorta er þar fyrst og
fremst um að ræða langtímasamn-
inga um sölu þeirra við stærri aðila.
í þeim tilvikum er ávöxtunarkrafan
all verulega lægri en fram kom í frétt
Tímans í gær, eða 49%.
2. Þegar um minni og óregluleg
viðskipti er að ræða, sem þó eru
hverfandi, er kostnaður hærri eins
og kom fram í fréttinni.
3. Hjá Fjárfestingarfélaginu er sú
regla viðhöfð, að þjónustugjald til
kreditkortafyrirtækis er samkvæmt
samningum fyrirtækjanna sjálfra við
kreditkortafyrirtækin. Þannig er til
dæmis tekið 1% þjónustugjald ef
þannig hefur verið um samið, en
ekki 3% eins og haldið er fram í
greininni.
4. Með hliðsjón af framangreindu
er hagur umbjóðenda félagsins fyrir
vikið mun minni en fram kom í
Tímanum í gær.
5. Það er von félagsins að verð-
bólga og verðbólguvæntingar geti
hjaðnað þegar kemur fram á vorið
og lækkuð ávöxtunarkrafa fylgi í
kjölfarið. Er ríkisstjórninni óskað
allra heilla í að ná verðbólgunni
niður.
Gunnar Óskarsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri
Fjárfestingarfélags
íslands hf.
Þau Ieiðu mistök urðu í blaðinu í
gær að mynd sem birta átti af
Sigurvin Einarssyni, með frétt af
fráfalli þingmannsins, vantaði.
Tíminn biður aðstandendur af-
sökunar á þessum leiðu mistök-
um og vottar þeim um leið samúð
sína.
Hólmfríður
fyrsta konan
Hólmfríður Garðarsdóttir fram-
kvæmdastjóri hefur, fyrst kvenna,
verið skipuð formaður Æskulýðs-
ráðs ríkisins. Hún er skipuð til næstu
tveggja ára. Þá hefur Pálmar Hall-
dórsson verið skipaður varaformað-
ur og framkvæmdastjóri Æskulýðs-
ráðsins.
Æskulýðsráð ríkisins var stofnað
árið 1970 og hefur aðal verkefni þess
verið að skipuleggja og samræma
opinberan stuðning við æskulýðs-
starf í landinu og örva starfsemi
þeirra samtaka sem að æskulýðsmál-
um vinna. Ráðið hefur einnig beitt
sér fyrir þjálfun leiðbeinenda fyrir
félög og félagasamtök og stendur nú
yfir endurskoðun og endurútgáfa á
félagsmálanámsefninu í samstarfi
við fjölda samtaka og einstaklinga.
- ÁG
IMIS5AIM SUBARU l/mntirurg
Við flytjum varahlutina í
Sævarhöfða 2 (við EIMðaárnar)
Varahlutaverslun okkar verður lokuð fimmtudag og föstudag
vegna flutninganna. Við vonum að lokunin valdi viðskiptavin-
um okkar ekki of miklum óþægindum.
Opnum varahlutadeiidina
mánudaginn 3. apríl að Sævarhöfða 2
í nýju, glæsilegu húsi.
Enn um sinn verður söludeildin í Rauðagerði.
Nýtt símanúmer
á nýjum stað er
67-4000
Ingvar
s Helgason