Réttur - 15.07.1935, Qupperneq 32
staðfest, að stefna Alþjóðasambandsins var rétt, þrátt
fyrir lítilsháttar mistök sumra deilda þess í einstökum
atriðum. Þessari réttu stefnu er það að þakka, að heims-
styrjöldin er enn ekki skollin á, að fasisminn hefir ekki
sigrað víðar en orðið er. En sigur fasismans í Þýzka-
landi, Austurríki og öðrum löndum varð ekki hindrað-
ur, af því að stefna sósíaldemókrata, sem ruddi honum
brautina, átti of mikil ítök meðal verkalýðsins.
Atburðir síðustu ára sýna, að verkalýðshreyfingin
er æ meir að losna undan áhrifum sósíaldemókrata, að
verða byltingasinnuð. Kínverska byltingin, uppreisnirn-
ar í Áusturríki og á Spáni, samfylkingarbaráttan í
Frakklandi sanna þetta greinilega. Samfylkingarstefna
III. Alþjóðasambandsins er að sigra. 0g samfylking
verkalýðsins er það málið, sem alþjóðaþingið snýst um
framar öllu öðru.
Á meðan II. Alþjóðasambandið er að hrynja í rústir,
ásamt öllum hinum „endurbótasinnaða" hugmyndaheimi
sósíaldemókrata, stælist og styrkist III. Alþjóðasam-
bandið með hverjum degi, vaxa áhrif Kommúnistaflokk-
anna um allan heim. VII. heimsþing Alþjóðasambands
kommúnista er þýðingarmikill liður í þessari eflingu
hinnar byltingasinnuðu verkalýðshreyfingar.
f næsta hefti mun VII. heimsþing III. Alþjóðasam-
bandsins og það, sem þar hefir gerzt, verða tekið til
ítarlegrar meðferðar.
152