Réttur - 01.01.1969, Page 2
Á síðustu tveim árum hefur Réttur birt um 50 greinar og ritverk eftir 20
islenzka höfunda og um 30 erlendar greinar, auk fastra smáþátta. Tímaritið
hefur átt þátt í mótun stefnu vinstrihreyfingarinnar hér á landi, auk þess að
það kynnir starf erlendra bræðraflokka og baráttu þjóðfrelsishreyfinga.
Það er rætt um kynslóðaskipti á Islandi í dag. Réttur hefur, hvað snertir
áskrifendur orðið var við þau skipti. Áskrifendur tímaritsins eru á annað þús-
und talsins, þar af hafa á fjórða hundrað bæzt í hópinn á síðustu tveim ár-
um. Þegar áskrifendalisti tímaritsins er athugaður, kemur í Ijós, að mikið
skortir á, að hinir nýju liðsmenn sósíalískrar hreyfingar, sem slegizt hafa i hóp
sósíalista á síðustu 10 árum, hafi gerzt áskrifendur að tímaritinu. Það er erf-
itt verk að gefa út tímarit í þjóðfélögum fjöldamenningar nútímans. Réttur
hefur ekki farið varhluta af þeim sannindum. Til þess að tímarit beri sig á
Islandi þarf það að hafa vel á þriðja þúsund áskrifendur. Auglýsingar er nú
stöðugt erfiðara að fá og því þurfa tímarit að byggja afkomu sína nær ein-
göngu á áskrifendafjölda.
Liðsmenn sósíaliskrar hreyfingar á Islandi þarfnast tímarits um þjóðfélags-
mál og það tímarit — Réttur — þarfnast aðstoðar liðsmanna hennar. Ef góð-
um árangri á að ná í baráttu hreyfingarinnar, verður nú þegar að hefja sam-
stilt átak til að efla Rétt.
Ritnefnd Réttar hefur því ákveðið að hefja það átak, sem þarf, með þessu
hefti og beinir því til áskrifenda um allt land, að safna nýjum kaupendum.
Fyrir lok þessa árs verður það mark að nást, að áskrifendatalan verði komin
á þriðja þúsundið. Því marki er hægt að ná með samstilltu átaki núverandi
lesenda, sem við vitum að vilja, að út komi tímarit hér á landi um þjóðfélags-
mál og sósíalisma.
Ólafur Einarsson.