Réttur - 01.01.1969, Blaðsíða 24
RAGNAR ARNALDS:
ÍSLENZKUR
VERULEIKI
KALLAR Á
ÍSLENZKAN
SÓSÍALISMA
Sósíalisminn er hvort tveggja í senn: hug-
sjón og vísindi. I meira en eina öld hefur það
verið kjarninn í þjóðfélagsgagnrýni sósíalista,
að kapítalisminn sé í eðli sínu ómennskur og
byggi ekki á virðingu fyrir mannlegum verð-
mætum. Hugsjón sósíalismans er að skapa
nýtt og heilbrigðara þjóðfélag, sem reist sé
á félagseign og samvinnu hins vinnandi
fjölda.
En þessari hugsjón verður ekki hrint í
framkvæmd með venjulegu pólitísku starfi,
fjöldafundum og kosningasigrum, og enn
síður með innántómum vígorðum. Fyrsta
skilyrðið er, að það þjóðfélag, sem við búum
við, sé rannsakað á vísindalegan hátt og mót-
sagnir þess séu dregnar fram í dagsljósið, svo
að ljóst megi verða, hvar má byggja á því,
sem fyrir er, og hvar þarf að reisa frá grunni.
Einmitt vegna þess að sósíalisminn er ekki
trúarbrögð heldur þjóðfélagsvísindi, verða
sósíalistar stöðugt að vera reiðubúnir að end-
urskoða hugmyndir sínar í ljósi breyttra við-
horfa.
Veigamesta mótsögnin í kapítalistísku
þjóðfélagi er í því fólgin, að framleiðslan
er í eðli sínu félágsleg og byggir á samstart'i
fjöldans, en framleiðslutækin eru í eigu og
undir stjórn örfárra manna. Afleiðingin er
sú, að framleiðslan er ekki í samræmi við
raunverulegar þarfir þjóðfélagsins, heldur
miklu fremur háð því, hvar gróðavonin er
mest. I sósíalísku hagkerfi opnast möguleikar
til að stjórna fjárfestingu og framleiðslu i
samræmi við þarfir heildarinnar. Aætlunar-
búskapur kemur í staðinn fyrir sundurvirkt
gróðakerfi.
Þegar rætt er um sósíalisma á íslandi verð-
ur að sjálfsögðu að hafa það stöðugt í huga,
að framkvæmd hans mun hafa æði mörg sér-
íslenzk einkenni, ekki sízt vegna þess að
kapítalisminn á Islandi er talsvert frábrugð-
inn hliðstæðum þjóðfélögum í nágranna-
löndunum. Hér eru til dæmis voldugustu
bankarnir ríkiseign, og mörg stærstu atvinnu-
fyrirtækin á Islandi eru í eigu hins opinbera.
Astæðan er sú, að vegna smæðar þjóðfélags-
24