Réttur


Réttur - 01.01.1969, Blaðsíða 48

Réttur - 01.01.1969, Blaðsíða 48
ERLEND VÍÐSJÁ KÚB A Byltingin á Kúbu átti 10 ára afmæli um síðustu áramót. Hin sósíalistíska bylting í menningarmálum er þar að vinna sinn mesta sigur með útrýmingu ólæsis. Og Castro sagði: 1959 táknaði ólæs þann sem hvorki kunni að lesa né skrifa, 1980 mun það verða notað um nemanda sem aðeins hefur sótt lægri skóla. Fyrir nokkrum árum settu yfirvöldin það mark að framleiða 10 miljónir smálesta af sykri á ári 1970. Því marki verður náð. Fyr- ir byltinguna unnu 500.000 verkamenn í sykuriðnaðinum 16—17 tíma á dag fyrir sultarlaun og þeir hjuggu niður 40—50 milj- ónir smálesta af sykurreyr og hlóðu með höndum á vagna. Ur þeim reyr komu 5— 5 Vz miljónir smálesta. — Nú þarf 80—90 miljónir smálesta af sykurreyr til að ná 10 miljónum smálesta af sykri. En þótt enn sé þar erfitt verk að vinna, þá verður raunveru- lega allur sykurreyrinn settur á bíla með vélafli. Nú eru á Kúbu yfir 40.000 dráttar- vélar, en voru aðeins 7000 fyrir byltinguna. — Og nú á alþýða Kúbu sykurinn sjálf, en ekki sykurhringur Bandaríkjanna. GUYANA Kosningar í Guyana voru falsaðar á síð- asta ári svo sem alræmt er orðið um allan heim. Voru færðir á kjörskrá sem dveljandi erlendis tugir þúsunda manna, sem ekki voru til, — og kusu auðvitað stjórnarflokk Burn- hams. Tókst þannig að hindra að P.P.P. — Framfaraflokkur alþýðunnar — undir for- ystu Jagans fengi þann meirihluta á þingi, sem hann hefði líklega fengið hafandi 47% kjósenda, hefðu ekki verið brögð í tafli. Nú er afturhaldsstjórnin að setja lög um einskonar átthagafjötra: menn mega ekki flytja af eða á sérstök landssvæði án leyfis stjórnarvalda. Ennfremur er ríkisstjórnin að setja lög um að banna verkföll. Hefur sú fyrirhugaða löggjöf þegar verið tafin í heilt ár með mótmælum verkalýðssamtakanna, en nú virðist stjórnin ætla að knýja þessa þræla- löggjöf fram. Þá er framferði ríkisstjórnarinnar gagn- vart fátækum bændum á vissu landsvæði (Black Bush Polder), sem er ríkiseign, mjög harðneskjulegt. Þeim var leyft að setjast að á svæði þessu og yrkja landið fyrir nokkr- um árum, en ríkisstjórnin hefur vanrækt að halda við áveimkerfinu, svo bændur hafa misst uppskeru sína og ekki getað greitt landleigu. Lætur nú ríkisstjórnin rífa hús þeirra í refsiskyni og flæmir þá burt. A sama tíma lætur hún bandaríska alúminíum- auðfélagið Reynolds Metal Co. fá 250.000 ekrur lands til 25 ára, skattfrjálst. A stjórnartímum Jagans var Black Bush Polder blómlegt landsvæði, þar sem þúsund- ir bænda höfðu ofan af fyrir sér, en nú er það sem eyðimörk. — Flokkur alþýðunnar (P.P.P.) hefur skipulagt mikil mótmæli gegn þessu framferði. (Nánar um P.P.P. og Guy- ana í Ritsjá 1967, bls. 179). 48

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.