Réttur


Réttur - 01.01.1969, Page 21

Réttur - 01.01.1969, Page 21
sem framinn er með gengislækkuninni, heiðarlega og drengilega aðferð og taki síðan afstöðu með Atlantshafsbandalaginu. Islenzk verklýðshreyfing hefur hinsvegar orðið fyrir slíkum áföllum fyrr og komizt yfir þau. 3. Að reyna að sundra sósialistiskum forustu- flokki verkalýðsins. Eftir að Alþýðubandalagið er nú orðið hinn sósíalistiski flokkur verklýðshreyfing- ingarinnar, er Ijóst ekki sízt af áróðri Morgunblaðs- ins hvert ofurkapp er á það lagt að reyna að veikja flokkinn, rægja og sundra. Nokkur árangur náðist, en það mun sem oftar sýna sig, að þegar út í eld- hríðina kemur stendur sá verklýðsflokkur fastar saman, sem losnað hefur við þá ótryggu aðila, sem ella hefðu brugðizt alveg þá mest á reið. Höf- uðatriðið er að Alþýðubandalagið sýni í verki for- ustuhæfileika sína, þegar í odda skerst, — og þá vinnast slik töp sem nú hafa orðið óðar upp. öllum þessum herbrögðum valdhafanna verður verkalýðurinn og launafólk allt að sjá við og verj- ast. En jafnhliða verður að undirbúa sókn —- á öll- um sviðum. KAUPGJALDSBARÁTTAN — LÍKA UM RÍKISVALDIÐ Hver verður að vera herstjórnarlist verkalýðs- hreyfingarinnar, — yfirleitt allra þeirra 70% Islend- inga, sem lifa af launavinnu? Það er Ijóst að verkalýðurinn verður að efla sinn sósíalistíska flokk, Alþýðubandalagið, hnekkja öllum tilraunum til að sundra honum eða veikja hann — og gera hann færan um að hefja þá gagn- sókn, sem öll framtíðin byggist á, jafnt alþýðunnar sem Islands. Það er og Ijóst að verklýðssamtökin þurfa að þrýsta svo á forustu sína að aftur skapist traust og róttæk forusta í Alþýðusambandsstjórn, samhliða því sem sjálfstæði og róttækni einstakra verklýðs- félaga og fagsambanda vaxi. En tvenn eru þau vopn, sem frekar öllu þarf að beita, ef alþýðan á að sigra í þessari úrslitahrið um lifskjörin framvegis.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.