Réttur


Réttur - 01.01.1969, Side 47

Réttur - 01.01.1969, Side 47
sambandi samvinnufélaganna sendu út til- kynningu um að þeir mundu ekki greiða vísitölubætur 1. marz samkvæmt vísitölunni I. febrúar. Verkalýðsfélögin mótmæltu þess- ari aðför þegar í stað, þannig að tilkynningar atvinnurekenda höfðu ekkert gildi. Sú regla hefur lengst af gilt að greitt væri eftir fyrri samningum enda þótt ssamningstímabilið sjálft væri útrunnið. Þessi hefð hefur ótvírætt lagagildi. Þannig greiddu atvinnurekendur að samningum til 1. marz, en hafa kosið að brjóta þá síðan — flestir, en ýmsir aðilar þar á meðal KRON og atvinnurekendur í Nes- kaupstað greiða vísitölubætur á launin. Tilkynning atvinnurekenda er því mark- laust plagg en ber að skoða sem kröfu um kauplækkun. Eins og kunnugt er, sömdu verkalýðsfélögin í fyrra um takmarkaða vísi- tölu á launin, þannig að laun yfir 10 þúsund krónur fá ekki fulla vísitöluuppbót. Miðað við þetta skerta vísitölukerfi eru kauplækk- unarkröfur atvinnurekenda þessar: A 10 þúsund krónur greiðist fyrir 1. marz II, 35% vísitöluuppbót eða 1135 krónur. Núgildandi vísitöluuppbót á að vera 23,3% ofaná grunnlaunin eða 2330 krónur. At- vinnurekendur heimta því 1195 krónur í kauplækkun í marzmánuði. Laun frá 10—16 þús. kr. eiga að verðbætast um sömu krónu- tölu þannig að kauplækkunin yrði sú sama í krónum. Laun frá 16—17 þúsund krónur eiga að verðbætast um helming krónutölunn- ar — kr. 1165,00. Hin ósvífna kauplækkunarkrafa er liður í ofbeldisstefnu ríkisstjórnarinnar gegn verka- fólki. 1964 gafst ríkisstjórnin upp við að framkvæma stefnu sína í launamálum og féllst á að taka verðtryggingu launa í lög, en 1967 var þetta ákvæði fellt úr lögum og verkafólk varð að heyja allsherjarverkfall til þess að fá vísitöluákvæðið inn í samninga aftur. Enn er Ijóst að verkalýðshreyfingin verður að heyja harða baráttu til þess að koma þessu máli fram. Frásagnir af henni bíða næsta heftis af Rétti, en samningafundir hafa nú staðið yfir alllengi, en hafa engan árangur borið fram til þess. Forysta verkalýðs- hreyfingarinnar er einhuga um að ekki megi kvika frá vísitölukröfunni — a.m.k. í orði einhuga. Nú er í athugun hvaða aðferðum á að beita til þess að knýja stefnu verkalýðs- hreyfingarinnar fram. Augljóst er að ný vinnubrögð verða að koma og nýjar aðferðir einkum með tilliti til atvinnuástandsins í landinu. En öll þau mál bíða næsta heftis. 47

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.