Réttur


Réttur - 01.01.1969, Page 20

Réttur - 01.01.1969, Page 20
ánfaldast, en helmingurinn af allri hækkun hans er eftir október 1967, fram að þeim tíma hafði dollar- inn tæplega sexfaldazt. 3. Það var lengst af full atvinna, a.m.k. á Reykja- víkursvæðinu þar sem harðasta stéttabaráttan fór fram. Ef full atvinna er, er ekki hægt að framkvæma einræði atvinnurekenda á vinnumarkaðnum. Þess- vegna var það frá sjónarmiði verkalýðsins jafnt í stéttabaráttunni sem lífsbaráttunni almennt, nauð- synlegt að tryggja fulla atvinnu. Þessvegna beittu sósíalistar áhrifum sínum í ríklsstjórn í því skyni: Áhrif nýsköpunarinnar tryggðu fulla atvinnu til 1950, — og sakir þess að Lúðvík Jósepsson varafor- maður Sósíalistaflokksins var bæði sjávarútvegs- og viðskiptamálaráðherra í vinstri stjórninni 1956— 58 tókst þá að afmá atvinnuleysið um land allt. Hagsmunir þjóðarheildarinnar og verkalýðsins fóru saman um það að tryggja fulla vinnu. En núverandi valdhafar skeyta engu um það þótt þjóðarheildin bíði stórtjón vegna atvinnuleysisstefnu þeirra. Þegar þetta þrennt fór saman: sterk pólitísk flokksforysta, voldug fagleg samfylking og full at- vinna hafði verkalýðurinn þvi allgóða aðstöðu til að halda minnsta kosti í horfinu hvað lífskjörin snerti, — varðveita það, sem vannst með lífskjarabylting- unni 1942 og bæta það á vissum sviðum, — sér- staklega ef hann hafði sterka aðstöðu i ríkisstjórn. Þetta vissu valdhafarnir og því var annar þáttur i herstjórnaráætlun þeirra sá að rýra þessa stöðu verkalýðsins og skemma. III. HERBRAGÐ HERRANNA NÝJU — HIÐ SÍÐARA Aðferðirnar í því eru þessar: 1. Að skipuleggja atvinnuleysi. Um það var þeg- ar rætt sem þátt í aðförinni að verkalýðnum. En á nokkur önnur atriði skal minnt: Verkalýður Is- lands þarf að muna það að full og örugg atvinna eru frumstæð mannréttindi, sem hann á kröfu á og — og það á engri stjórn að una, sem leiðir at- vinnuleysi yfir þjóðina. — Annars á verkalýðurinn 20 og að minnast, þegar atvinnuleysistryggingarnar draga nú úr sárasta skortinum: Það er eigið fé verkamannanna, eign verkalýðsins sjálfs, sem verið er að borga út til þeirra — kaupgjald, sem þeir hafa geymt sér. Þeir gátu nú eins fengið þetta fé að láni til ibúðaþygginga, ef þjóðfélagið hefði rækt frumskyldu sína: að sjá um atvinnuöryggi. — Og að síðustu: Það er hætta á að reynt verði að umsnúa því fé atvinnumálanefnda, sem verkalýðssamtökin hafa knúið fram handa þeim, upp í að verða eins- konar keppikefli, sem verklýðsfélögin eigi hreppa- pólitískt að slást um, þegar sjálfsagða krafan er: full atvinna allsstaðar, — sem er auðvelt að fram- kvæma. 2. Að lama forystu Alþýðusambands Islands i stéttabaráttunni. Það var Ijóst i upphafi þings A.S.I. í nóvember 1968 að samband sérstaks eðlis var komið á milli forystu Sjálfstæðisflokksins annars- vegar og Hannibals og Co. hinsvegar. Samkvæmt því fengu íhaldsfulltrúarnir á þinginu fyrirmæli um að kjósa Hannibal og Co. Framsóknarfulltrúarnir voru blekktir til hins sama. Það var hinsvegar mikið giftuleysi verklýðshreyfingarinnar, að ekki skyldi nást traust samstarf milli verklýðsfulltrúa Alþýðu- bandalagsins og Alþýðuflokksins og fleiri aðila, sem samanlagt höfðu um tvo þriðju þingfulltrúa og, takist ekki úr því að bæta síðar, getur það orðið íslenzkri verklýðshreyfingu örlagarikt. Árangur her- bragðs herranna nýju var að sundra hinni fyrri for- ustu ASÍ. Þegar sú róttæka samfylking, sem verið hafði í forystunni frá 1954, var rofin og eigi tókst að skapa aðra samstæða og trausta, opnuðust valdhöfunum möguleikar til þess að reyna að villa sýn og sundra með hverskonar vélabrögðum og baktjaldamakki. Það eina sem gæti afstýrt ógæfu væri að i forust- unni skapaðist þegar út í alvöru eldhríðanna kemur, traustur og sjálfstæður meirihluti, sem megnaði að veita leiðsögn í þeim hörðu átökum, sem biða verk- lýðshreyfingarinnar. Það er hinsvegar alltaf sorglegt að sjá, þegar menn sem eitt sinn hafa unnið verklýðshreyfingunni vel, ánetjast valdhöfunum og gerast slíkir umskipt- ingar að þeir telji ránsskap og stórþjófnað þann,* * Stórþjófnaður: Með tveim gengislækkunum er stolið smátt og smátt helmingnum af raungildi: 1300 miljóna króna í atvinnuleysistryggingasjóði verkamanna, 8 miljarða króna í sparifé, 1100 miljóna króna í Bygg- ingarsjóði ríkisins o. s. frv. — Itánskapur: 20% af kaup- mætti verkakaups er rænt með gengislækkun, enn stærri hluta af tekjum verkamanna er svo rænt með skipulögðu atvinnuleysi.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.