Réttur


Réttur - 01.10.1985, Page 40

Réttur - 01.10.1985, Page 40
Kröfuganga Verklýðs- og sjómannafélags Ólafs- fjarðar 1. maí 1945. Maðurinn scm ber félagsfánann er Kristinn Sigurðs- son formaður félagsins. Eitt er það orð, sem öðrum fremur virðist setja svip á erlend tíðindi þessa vordaga. Það er orðið endurreisn. Vítt um lönd eru þjóðir að rísa úr rúst- um stríðsins, hegna hinum háttsettu skemmdarvörgum og hefja nýja uppbygg- ingu til að reisa við að nýju efnahag sinn og þjóðmenningu. Hér á landi fengu þessir dæmalausu stjórnmálamenn ofþróaðs auðvalds ekki tækifæri til eyðingarstarfsemi sinnar. — Þessvegna er ekki talað um endurreisn á sama hátt og erlendis, en í stað þess er annað orð komið á dagskrá hér á landi. Það er orðið nýsköpun eða nýbygging. Það er kjörorð íslendinga í dag. — Aukn- ing atvinnutækjanna — endurbætt tækni í atvinnuvegum þjóðarinnar — meiri fræðsla — fleiri skólar — fullkomnari fé- lagstryggingar — þensla þjóðmenningar á öllum sviðum, það er verkefni líðandi stundar. Þetta er það sem íslenskur verkalýður til sjós og lands talar um og berst fyrir. Það er meðal annars vegna þessara or- saka að verklýðshreyfingin hefur samið vopnahlé við atvinnurekendur, þar sem báðir aðilar, verkafólkið og atvinnurek- endur, hafa séð sér hag í því að nýta sem best þann auð sem þjóðin á nú, til alhliða aukningar á atvinnuvegum þjóðarinnar, heldur en verja honum í tilgangslausa eyðslu. Ástandið er nú þannig að verkafólkið telur kaup, fyrir hvern unninn tíma, við- unandi. Síðasta ár hafa verið stigin stór skref til samræmingar þar sem kaup var lægst áður. Andstæðingar verkafólks hafa lengi spáð því að kjörin sem nú gilda myndu fljótlega lækka, þar sem útflutningsvörur þjóðarinnar muni ekki seljast, vegna hins háa kaupgjalds við framleiðsluna. Þessu hefur verkafólkið svarað með því að benda á að tæknin við framleiðsluna sé orðin á eftir tímanum, hráefnið væri illa nýtt. Af þessum orsökum og fleirum verði framleiðslan dýrari en annars væri ástæða til. I stað þess að viðurkenna nauðsyn versnandi lífskjara, gerir verkafólk nú 216

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.