Fréttablaðið - 06.03.2009, Page 2
2 6. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Sindri, áttu von á fullu húsi á
næsta mót?
„Það verður að minnsta kosti röð.“
Sindri Lúðvíksson stóð fyrir pókermóti
árið 2007 sem lögreglan stöðvaði. Nú
hefur verið ákveðið að hann skuli ekki
ákærður.
STÓRIÐJA Álverð lækkaði um 13
prósent frá áramótum og fram
til síðustu mánaðamóta, en hefur
hækkað lítillega síðan. Ál er sú
hrávara sem mest hefur lækkað á
þessu ári og einnig á því síðasta.
Birgðir hafa hrúgast upp og hafa
fyrirtæki dregið úr framleiðslu.
Kínversk stjórnvöld hafa
hamstrað ál, en Kína er stærsti
álframleiðandi í heimi, með um
34 prósent af heimsframleiðslu.
Þar í landi íhuga menn að setja 5
prósent innflutningstolla á ál með
það fyrir augum að hvetja kín-
versk fyrirtæki til að nota inn-
lenda framleiðslu. Óttast er að
það dragi enn frekar úr eftirspurn
eftir áli á heimsmarkaði.
Álverð fór niður undir 1.200
dollara á tonnið í febrúar, en hefur
hækkað upp undir 1.300 dollara í
mars. Um mitt ár 2008 fór álverð
í tæplega 3.400 dollara á tonnið.
Kínversk stjórnvöld borga yfir-
verð fyrir innlent ál og hafa verið
að greiða um 1.800 dollara á tonnið
fyrir innlenda framleiðslu. Þannig
niðurgreiðir stærsti álframleið-
andi heims í raun framleiðslu sína.
Fyrirtækið IFS ráðgjöf spáir því
að ál muni eiga mjög erfitt upp-
dráttar á næstunni.
Álrisinn Century Aluminium til-
kynnti á þriðjudag að dregið yrði
úr framleiðslu álvers í Kentucky,
vegna slæms ástands á heims-
mörkuðum. Álverið þar framleið-
ir 250 þúsund tonn árlega í fimm
kerskálum og verður einum þeirra
lokað og framleiðsla dregin saman
um fimmtung. Segja þarf upp 120
manns vegna lokunarinnar.
Century Aluminium er eigandi
álvers Norðuráls við Grundar-
tanga og hyggur á byggingu álvers
í Helguvík, en gert er ráð fyrir að
það verði 250 þúsund tonn einn-
ig. Nokkur titringur hefur verið
innan ríkisstjórnarinnar vegna
þeirrar framkvæmdar, Samfylk-
ingin hefur verið fylgjandi henni,
en hinn stjórnarflokkurinn,
Vinstri græn, á móti.
Fyrirtækið tilkynnti nýverið um
slæma afkomu á fjórða ársfjórð-
ungi ársins 2008. Tap fyrirtækis-
ins nam 700,2 milljónum dollara,
tæpum 80 milljörðum íslenskra
króna. Logan W. Kruger, forstjóri
félagsins, segir þó að ekki sé fall-
ið frá áformum í Helguvík og litið
sé á það sem góðan fjárfesting-
arkost. „Við erum að endurskoða
verkefnið frá grunni og kanna
fjáröflunarkosti.“
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu greindi Alcoa, sem
er með álver á Reyðarfirði, frá því
í lok síðasta árs að dregið yrði úr
framleiðslu fyrirtækisins um 350
þúsund tonn. Ónýtt framleiðslu-
geta er um ein milljón tonn eftir
samdráttinn. kolbeinn@frettabladid.is
Framleiðsla á áli
dregst enn saman
Heimsframleiðsla á áli hefur enn dregist saman og því er spáð að ál muni
eiga erfitt uppdráttar. Kínversk stjórnvöld hyggja á stuðning við þarlenda ál-
framleiðendur. Century Aluminium dró enn frekar úr framleiðslu í vikunni.
ÁLVER Heimsframleiðsla á áli hefur dregist mikið saman undanfarið enda er álverð í
lægstu lægðum og hefur lækkað um 13 prósent frá áramótum. Myndin er úr álverinu
í Straumsvík. MYND/EIRÍKUR KRISTÓFERSSON
í 4. sæti
Hauk Þór
www.haukurthor.is
Prófkjör sjálfstæðismanna
í SV-kjördæmi
Ráðdeild og lausnir
DÓMSMÁL Lögreglumenn brutu lög
þegar þrír saklausir nítján ára
piltar voru handteknir á harkaleg-
an hátt af vopnaðri sérsveit í júlí
árið 2007, færðir á lögreglustöð og
berstrípaðir. Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi íslenska ríkið í gær
til að greiða piltunum 200 þúsund
krónur hverjum í bætur.
Umrætt júlíkvöld hafði lög-
reglu borist tilkynning um hvell
sem hljómaði eins og skothvellur
úr haglabyssu. Í kjölfarið stöðv-
uðu vopnaðir lögreglumenn bíl í
nágrenninu sem í voru piltarnir
þrír. Lögregla miðaði skammbyss-
um á drengina, lét þá leggjast flata
og illa klædda í blautan vegkant
og handjárnaði þá fyrir aftan bak.
Þeir voru síðan fluttir á lögreglu-
stöð þar sem tveir þeirra voru ber-
háttaðir og líkamsleit gerð. Öðrum
þeirra var sérstaklega gert að
beygja sig fram á meðan.
Lögregla bar að aðgerðin hefði
verið eðlileg í ljósi grunsemda um
refsiverða háttsemi. Á það fellst
héraðsdómur ekki, heldur segir
ekki hafa verið tilefni til að beita
piltana slíku harðræði og meðal-
hófs hafi ekki verið gætt. Þá segir
að líkamsleitin hafi verið óþörf
með öllu, hvað þá að berhátta þá,
sem hafi verið „óþarflega sær-
andi“ og „niðurlægjandi“ að mati
dómsins.
Kristín Edwald, lögmaður pilt-
anna, er ánægð með niðurstöðuna.
„Þessi dómur hlýtur að kalla á að
lögregla endurskoði verklagið hjá
sér,“ segir hún enn fremur.
- sh
Fá bætur frá ríkinu fyrir ólögmæta handtöku og niðurlægjandi líkamsleit:
Lögregla braut gegn þremur piltum
SKATTAMÁL Í áliti sem Skúli Egg-
ert Þórðarson ríkisskattstjóri
sendir frá sér eftir helgi er skorið
úr um að eftirgjöf skulda þeirra
sem stunda atvinnurekstur beri
ætíð að telja til tekna í rekstrin-
um. Síðustu daga hefur nokkuð
verið fjallað um niðurfellingu
skulda fyrirtækja, sem sett eru í
svokallað söluferli hjá ríkisbönk-
unum.
Skattasérfræðingur sagði í
blaðinu í gær að af slíkri niður-
fellingu þyrfti að gjalda fimmt-
án prósent til skattsins. Þetta
staðfestir ríkisskattstjóri með
álitinu. Hins vegar ber að hafa í
huga að fyrirtækin geta yfirleitt
fært mikið tap á móti, tekjunum
til frádráttar. - kóþ
Ríkisskattstjóri um skuldir:
Niðurfelling
skattskyld
Lögregla var á leið á vettvang
þegar hún fékk tilkynningu um að
þrír menn hefðu sest upp í bíl sem
væri á leið á móti þeim og að einn
þeirra kynni að vera viðriðinn málið. Á þeim
grundvelli var ákveðið að handtaka piltana
með vopnavaldi. Hins vegar kemur fram í dómi
að grunur hafi leikið á að um heimilisofbeldismál væri að
ræða og þykir lögmanni piltanna undarlegt í því ljósi að
grunur lögreglu hafi beinst að þremur piltum um tvítugt.
ÁSTÆÐA HANDTÖKUNNAR
VIÐSKIPTI Samkomulag er svo gott
sem í höfn á milli skilanefndar
gamla Glitnis og seðlabanka Lúx-
emborgar um málefni dóttur-
félags Glitnis þar í landi. Sam-
kvæmt Erlu S. Árnadóttur í
skilanefndinni felur samkomu-
lagið í sér að skilanefndin fái
fulla heimild til að fara með eign-
ir dótturfélagsins.
Glitnir í Lúxemborg fór í
greiðslustöðvun í október og
hefur síðan lotið stjórn nefndar
sem fjármálaeftirlitið ytra skip-
aði. Skilanefnd gamla Glitnis
hefur hvorki haft aðgang að eign-
um né gögnum frá félaginu.
„Þetta er mjög góð niðurstaða
fyrir alla sem eiga hlut að máli,“
segir Heimir Haraldsson í skila-
nefnd gamla Glitnis. Tilkynning-
ar er að vænta um málið í dag. - sh
Samið um Glitni í Lúxemborg:
Fá dótturfélagið
í sínar hendur
STJÓRNSÝSLA Forsætisráðuneytið
hefur auglýst störf bankastjóra
og aðstoðarbankastjóra Seðla-
banka Íslands laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 31. mars
og gert er ráð fyrir að ráðið verði
í starfið í maí næstkomandi.
Umsóknum skal skila í forsætis-
ráðuneytið.
Fram kemur í tilkynningu
frá ráðuneytinu að nefnd verði
skipuð í samræmi við ný lög um
Seðlabankann til að meta hæfni
umsækjenda um stöðurnar.
Svein Harald Øygard var skip-
aður seðlabankastjóri tímabund-
ið í síðustu viku og Arnór Sig-
hvatsson aðstoðarbankastjóri. - sh
Leit að seðlabankastjórum:
Störf banka-
stjóra auglýst
PAKISTAN, AP Mushahid Hussain,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar
í Pakistan, segir árásina á
krikketlandslið frá Sri Lanka
í vikunni sýna að öryggiskerfi
landsins sé hrunið.
Stjórnin sé of upptekin við að
halda völdum til þess að geta
sinnt öryggismálum. Chris
Broad, sem var í hópi íþrótta-
manna, segir lögregluna ekki
hafa verið til taks þegar ráðist
var á hópinn. Lögreglan í Pak-
istan vísar þessum fullyrðing-
um á bug. - gb
Leiðtogi stjórnarandstöðu:
Segir öryggis-
kerfið hrunið
MÓTMÆLI Í KARACHI Pakistanar mót-
mæla árás á íþróttalið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Um hundrað manna
lið lögreglu og björgunarsveitar-
manna leitaði
Aldísar Wester-
gren í nágrenni
Reynisvatns í
gær. Leitin bar
engan árangur,
að sögn varð-
stjóra lögreglu.
Engin ummerki
fundust.
Aldís hvarf
sporlaust af
heimili sínu á þriðjudaginn í síð-
ustu viku. Talið er að síðast hafi
sést til hennar í Grafarholti á
þriðjudaginn. Lögregla stendur
ráðþrota frammi fyrir hvarfinu.
Engar haldbærar vísbendingar
hafa borist og umfangsmikil leit
engu skilað.
Leitinni verður líkast til haldið
áfram á næstu dögum. - sh
Mikill fjöldi leitaði Aldísar:
Leitin engan
árangur borið
ALDÍS
WESTERGREN
LÖGREGLUMÁL Hníf var kastað í átt
að manni í átökum sem brutust út
á milli tveggja hópa ungmenna í
Lönguhlíð á ellefta tímanum í gær-
kvöldi. Sá sem kastað var að fékk
hnífinn í bakið en meiddist ekki.
Sjónarvottar sögðu að barefli hefði
einnig sést á lofti.
Mikið lið lögreglu kom á vett-
vang og mátti telja minnst fimm
lögreglubíla og einn sjúkrabíl á
staðnum. Talið er að á þriðja tug
ungmenna hafi verið saman komin
við verslun Bónusvídeós þegar
tveimur hópum ungmenna laust illa
saman. Enginn slasaðist og eng-
inn hafði verið handtekinn þegar
Fréttablaðið fór í prentun. - sh
Mikið lið lögreglu í Hlíðum:
Hníf beitt í
hópslagsmálum
Á VETTVANGI Lögregla fann í gærkvöldi hnífinn sem beitt var í átökunum, en hann
var með löngu blaði og hefði getað valdið miklum skaða. Tveimur hópum ung-
menna laust saman á svipuðum stað fyrir skemmstu. Annar hópanna var aftur að
verki í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPURNING DAGSINS