Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 32
20 6. mars 2009 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is ALAN GREENSPAN ER 83 ÁRA Í DAG. „Ég verð að vara ykkur við, ef þið eigið auðvelt með að skilja það sem ég segi hafið þið sennilega misskil- ið mig.“ Greenspan er hagfræðing- ur og fyrrverandi seðlabanka- stjóri Bandaríkjanna. Rússneski efnafræðingurinn Dmitri Medelejev kynnti þennan dag árið 1869 fyrsta uppkast lotukerfisins. Lotukerfið er yfirlit yfir öll þekkt frumefni sett fram í töflu. Efnunum er raðað í töfluna eftir rafeindaskipan þannig að hún sýnir hvernig margir eðliseiginleikar efnanna breyt- ast í gegnum töfluna. Hvert efni er sýnt með sætistölu sinni og efnatákni. Taflan sýnir ýmis grundvallareinkenni efnanna. Til eru fleiri kerfi sem sýna eiginleika frumefnanna, annaðhvort í meiri smáatriðum eða frá öðru sjónarhorni. Hver lárétt lína í töflunni nefnist lota. Hver dálkur í töflunni nefnist hins vegar efnaflokkur eða bara flokkur. Mendelejev fæddist hinn 8. febrúar árið 1834 í þorpinu Verhnie Aremzyani. Hann lést í Pétursborg 2. febrúar árið 1907, 72 ára að aldri. ÞETTA GERÐIST: 6. MARS ÁRIÐ 1869 Fyrsta uppkast lotukerfisins kynnt Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK), oft nefnt Kristniboðssamband- ið, er áttatíu ára í ár. Sambandið var stofnað í framhaldi af heimkomu Ólafs Ólafssonar kristniboða sem hafði verið við störf í Kína. „Íslenskir kristniboðar voru við störf í Kína þar til um miðja síðustu öld þegar landinu var lokað fyrir kristniboðum. Eftir stendur kirkjan í Kína og mikill fjöldi kristinna manna í landinu,“ segir Skúli Svavarsson, kristniboði til fjöru- tíu ára og starfsmaður Kristniboðssam- bandsins. „Í dag starfar SÍK aðallega í Afríkulöndunum Eþíópíu og Keníu.“ Kristniboðar starfa undir kjörorð- inu „Kristnið allar þjóðir“ en kristni- boði fylgja alltaf kærleiksverk. „Við byrjuðum að senda kristniboða til Eþí- ópíu árið 1953 og til Keníu 1978. Í Eþí- ópíu sameinuðumst við öðrum lútersk- um kristniboðsfélögum og var stofnuð lútersk kirkja í landinu árið 1959. Hún fagnaði 50 ára afmæli í janúar og nú tilheyra henni um 5 milljónir kristinna manna. Íslenskir kristniboðar hafa átt mik- inn þátt í uppbyggingu landanna. Þeir hafa komið á fót fjölmörgum barna- skólum, framhaldsskólum, háskólum og heilbrigðisstofnunum. „Hugmynd- in með kristniboði er að hjálpa mann- inum heildstætt. Þá er rík áhersla lögð á það að setja ekkert í gang nema vitað sé að fólkið á staðnum geti tekið við og séð um þau verkefni sem við komum á fót. Þetta er því hjálp til sjálfshjálpar enda er það í eðli kristniboða að vera á ferðinni og fara sífellt á nýja staði og þangað sem neyðin er mest,“ segir Skúli. Hann segir það gefa sér mikið að fylgjast með árangrinum af starfinu. „Þetta er mér hjartans mál og menn segja þetta köllun.“ Starfsemi SÍK er að mestu fjár- mögnuð með einstaklingsframlögum en auk þess reka samtökin nytjamark- að á Grensásvegi 7. Í tilefni afmælis- ins mun sambandið halda afmælishá- tíð í húsi KFUM og K að Holtavegi 28 sunnudaginn 15. mars en auk þess verð- ur sérstök afmælisdagskrá alla næstu viku. Ská nánar á www.sik.is. vera@frettabladid.is SAMBAND ÍSLENSKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA: FAGNAR ÁTTATÍU ÁRUM Kristniboð er hjartans mál KRISTNIBOÐI Í 40 ÁR Skúli Svavarsson á nytjamarkaði Kristniboðssambandsins sem er opinn virka daga allan ársins hring. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Margrét Magnúsdóttir, Álfaskeiði 78, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju mánudaginn 9. mars n.k. kl. 13.00. Jón Olgeirsson Sigurjón Jónsson Kolbrún Sjöfn Indriðadóttir Holgeir Jónsson Guðbjörg Ragnarsdóttir Magnús Jónsson Guðlaug Fjóla Arnardóttir og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, Sólborg Marinósdóttir Laugarnesvegi 116, sem lést á Landspítalanum þann 23. febrúar síðast- liðinn, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju föstu- daginn 6. mars klukkan 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás, styrktarfélag. Sérstakar þakkir fá læknar og hjúkrunarfólk á blóðlækningadeild Landspítalans við Hringbraut fyrir góða umönnun og alúð. Rudolf Ásgeirsson Ásgeir Marinó Rudolfsson Guðbjörg D. Tryggvadóttir Sverrir Þór Rudolfsson Anna Wahlström Anna Rudolfsdóttir Reynir Þór Reynisson Áslaug J. Marinósdóttir Þorsteinn Marinósson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Einar Franklín Steinarsson, lést á Hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum 4. mars. Steinar Ingi Einarsson Gunnhildur María Eymarsdóttir Sigurður Arnar Einarsson Á. Bergljót Stefánsdóttir María Björk Steinarsdóttir Konstantín Shcherbak Einar Ísfeld Steinarsson Erin Jorgensen Sigurgeir Sigurðsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Halldór Garðarsson fyrrverandi bifreiðastjóri, Hringbraut 50 (áður Þorfinnsgötu 12), andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 23. febrúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð. Alúðarþakkir færum við öllu starfsfólki Grundar en þó sérstaklega þeim er starfa á deild V-4 fyrir frábæra umönnun og elskulegt viðmót. Guð blessi ykkur öll. Hulda Halldórsdóttir Stefán Ásgrímsson Garðar Halldórsson Björg Ingþórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Gunnar Salómonsson Núpalind 8, Kópavogi, andaðist á líknardeild Landspítalans 23. febrúar. Útförin hefur farið fram. Kærar kveðjur til allra þeirra sem studdu hann og okkur í veikindum hans, ekki síst til Kristínar útfararstjóra á Kanarí. Erla Gerður Högnadóttir Sigursteinn Gunnarsson Guðjón Gunnarsson Kolbrún Ýr Jóhannsdóttir Guðrún Erla Sigursteinsdóttir. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, sonur, bróð- ir og fyrrum maki, Ragnar Jón Gunnarsson arkitekt og skipulagsfræðingur, Reynimel 31, lést á heimili sínu 4. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hilmir Berg Ragnarsson Arnar Jón Ragnarsson Janus Christiansen Birgitta Baldursdóttir Guðlaug Erna Jónsdóttir Gunnar G. Einarsson Einar Berg Gunnarsson Svandís Bára Karlsdóttir Þórey Björg Gunnarsdóttir Guðbjartur I. Torfason Hafdís Lilja Gunnarsdóttir Karl H. Karlsson og systkinabörn hins látna. MERKISATBURÐIR 1902 Sögufélagið er stofnað til að „gefa út heimildar- rit að sögu Íslands í öllum greinum frá því á miðöld- um og síðan“. 1905 Coot, fyrsti togari í eigu Íslendinga, kemur til Hafnarfjarðar. 1921 Portúgalski kommúnista- flokkurinn er stofnaður. 1957 Afríkuríkið Gana fagn- ar sjálfstæði sínu frá Bret- landi. 1983 Helmut Kohl er kjörinn kanslari Þýskalands. 1992 Tölvuvírusinn Michelang- elo fer af stað og herjar á tölvur um allan heim. 1998 Frost mældist -34,7°c í Mývatnssveit, það mesta á landinu í áttatíu ár.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.