Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 25
6. mars föstudagur 5 „Ég held og vona að tískan í vor og sumar verði fjáls, bæði hvað varðar föt, fylgihluti og förðun,“ segir Sóley Ástudóttir, eigandi EMM school of make up, spurð um tískuna á komandi mánuðum. „Í förðun verður vinsæll farði sem varla sést með smá „glow“ í og það verður svolítið um 80´s look. Kóngablár og turkís augnskuggi verða mjög „inn“ og það nýjasta fyrir kinnar er gelkinna- litur sem fellur inn í húðina, en ekki kremaður eða púður kinnalitur. Eyelinerinn heldur áfram og dauf- ir berjalitir á varirnar,“ útskýrir Sóley. „Hvað varðar klæðn- að í vor og sumar, þá verður mikið um past- elliti og frjálst „look“ með blómamunstri og b jartar i l i tum eftir gráan og kaldan vetur. Vor og sumar frá H&M minnir svo- lítið á Miami Vice, stórir jakkar, skyrt- ur, síðir frakkar og svo framvegis. Það verður mikið um skyrtur yfir peysu og stuttbuxur yfir leggings. Fólk mun gera meira af því að blanda gömlum fötum við ný, hugsa um um- hverfið og endurnýja. Allt „print“ á eftir að minnka og það verður meira um lágstemmda liti, svolít- ið eins og að það sé búið að þvo flíkina oft,“ bætir hún við. „Fólk á vonandi eftir að þora að blanda gömlum fötum við ný og prufa að vera aðeins meira skap- andi þar sem buddan mun vænt- anlega ekki vera eins þung og áður fyrr. Það sem ger- ist þegar peningaflæðið minnkar er að fólk byrj- ar að hugsa og þar af leiðandi nota sköpunar- hæfileikana og það sem er þegar til í skápn- um. Það heitasta í vor- og sumartísk- unni verður því ekki það nýjasta frá tískuhúsun- um, heldur sjálfstæðar konur í nýju „looki“ sem þ æ r h a f a skapað sjálf- ar heima hjá sér og er ótrú- lega spenn- andi.“ - ag Það heitasta í vor- og sumartískunni: Frelsið í fyrirrúmi Flott Sóley segir mikið frelsi fylgja vor- og sumartísk- unni, og vonar að konur eigi eftir að þora að skapa eigið útlit. ior M on ic a B el lu cc i b y T ye n LOOSE POWDER FLUID FOUNDATION

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.