Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 4
4 6. mars 2009 FÖSTUDAGUR
ALÞINGI Fjórar greinar eru í nýju
frumvarpi forystumanna fjögurra
stjórnmálaflokka um breytingar á
stjórnarskrá lýðveldisins.
Í þeirri fyrstu er kveðið á um
að náttúruauðlindir sem ekki eru
háðar einkaeignarrétti séu þjóðar-
eign. Í annarri greininni er fjall-
að um hvernig breyta má stjórn-
arskránni í framtíðinni. Í þeirri
þriðju er kveðið á um þjóðarat-
kvæðagreiðslur og fjórða greinin
tekur til stjórnlagaþings sem koma
skal saman eigi síðar en 1. desem-
ber á þessu ári.
Flutningsmenn eru forystu-
menn allra flokka sem sæti eiga á
Alþingi utan Sjálfstæðisflokks.
Í greinargerð segir að ekki
hafi orðið af heildarendurskoð-
un stjórnarskrárinnar um langt
skeið þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir en ákveðnum hlutum henn-
ar hafi verið breytt í veigamiklum
atriðum. Í kjölfar bankahruns-
ins hafi verið kallað eftir endur-
skoðun ýmissa grundvallarreglna
íslenska stjórnskipulagsins og við
því sé brugðist með því að stofna
til sérstaks stjórnlagaþings með
þjóðkjörnum fulltrúum.
Í greinargerðinni segir jafn-
framt að frumvarpið sé í sam-
ræmi við verkefnaskrá ríkisstjórn-
ar Samfylkingarinnar og VG og
að ráðgjafarhópur undir forystu
Bjargar Thorarensen lagaprófess-
ors hafi unnið tillögur um breyt-
ingar á stjórnarskránni og verk-
efni stjórnlagaþings.
Frá lýðveldisstofnun hefur
stjórnarskránni verið breytt sex
sinnum. bjorn@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Dómsmálaráðherra
hefur ákveðið að taka upp tíma-
bundið landamæraeftirlit í Leifs-
stöð um helgina í tilefni af fyrir-
hugaðri komu hóps Vítisengla til
Íslands. Englarnir hyggjast sækja
opnun nýs klúbbhúss vélhjóla-
klúbbsins Fáfnis í Hafnarfirði.
Í tilkynningu ráðherra segir að
eftirlitið muni „sérstaklega koma í
veg fyrir væntanlega komu ákveð-
ins hættulegs hóps“, sem þó er
hvergi nefndur í tilkynningu ráð-
herra. Til aðgerðanna sé gripið „í
tilefni sérstakrar ógnunar gegn
allsherjarreglu og þjóðaröryggi“.
Tveimur Vítisenglum var vísað
til síns heima við komuna til
Íslands þegar á miðvikudag. Fáfn-
ir er opinber áhangendaklúbbur
Vítisengla, sem eru skilgreindir
sem alþjóðleg glæpasamtök. Þeir
hafa stefnt að því leynt og ljóst
undanfarin ár að verða fullgildir
meðlimir Vítisengla.
Hafnarfjarðarbær sendi frá sér
tilkynningu í gær þar sem fram
kemur að hvorki bæjaryfirvöld né
lögregla hafi veitt leyfi fyrir starf-
semi Fáfnis í hinu nýja klúbbhúsi,
ólíkt því sem talsmaður Fáfn-
is hélt fram í fréttum Stöðvar 2 í
fyrrakvöld.
Húsið sé iðnaðarhúsnæði og
ekki verði veitt leyfi fyrir annars
konar starfsemi þar. - sh
Gripið til hertra öryggisráðstafana vegna fyrirhugaðrar komu Vítisengla til Íslands:
Fáfnisteiti ógnar þjóðaröryggi
GAMLA KLÚBBHÚSIÐ Fáfnisliðar héldu
áður til í þessum húsum við Frakkastíg
en hafa nú flutt sig í Hafnarfjörðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Gísli Marteinn Baldursson er í fríi frá
störfum sem borgarfulltrúi í Reykja-
vík á meðan hann stundar nám í
Edinborg en ekki í námi með starfi
eins og ranglega var haldið fram í
Fréttablaðinu 26. febrúar.
LEIÐRÉTTING
flugfelag.is
Fundarfriður
Markvissir fundir í friði og ró
Upplýsingar:
Sími 570 3075
hopadeild@flugfelag.is
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
FÆREYJARVESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
GRÆNLAND
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
NARSARSSUAQ
KULUSUK
CONSTABLE POINT
NUUK
DÓMSMÁL Frjálsyndi flokkurinn
var í gær í Héraðsdómi Reykjavík-
ur dæmdur til að borga Margréti
Sverrisdóttur
614 þúsund
krónur. Mar-
grét var fram-
kvæmdastjóri
flokksins þegar
Guðjón Arnar
Kristjánsson,
formaður
flokksins, sagði
henni upp í lok
nóvember 2006
því Margrét vildi leiða framboðs-
lista á vegum flokksins í Alþing-
iskosningum vorið 2007. Margrét
taldi sig eiga rétt á launum í upp-
sagnarfresti sem næði til febrúar,
mars og apríl 2007 og vildi fá
rúmar 1,8 milljónir króna. Hér-
aðsdómur taldi hana hins vegar
aðeins eiga inni laun fyrir febrúar.
Þá var Frjálslyndi flokkurinn
dæmdur til að greiða Margréti 600
þúsund krónur í málskostnað. - gar
Dómur í deilum frjálslyndra:
Margrét fái ein
mánaðarlaun
Ákvæði um þjóðar-
atkvæði í stjórnarskrá
Fimmtán prósent kjósenda geta krafist þess að efnt verði til þjóðaratkvæða-
greiðslu, samkvæmt frumvarpi um breytingar á stjórnarskránni. Í því er einnig
kveðið á um að náttúruauðlindir verði þjóðareign. 41 á að sitja stjórnlagaþing.
Náttúruauðlindir sem ekki eru
háðar einkaeignarrétti eru þjóðar-
eign, samkvæmt frumvarpinu. Í því
segir að allar náttúruauðlindir beri
að nýta á sem hagkvæmastan hátt
á grundvelli sjálfbærrar þróunar til
hagsældar fyrir þjóðina og kom-
andi kynslóðir. Náttúruauðlindir í
þjóðareign megi ekki selja eða láta
varanlega af hendi.
Breyta má stjórnarskránni með
þjóðaratkvæðagreiðslu. Skal hún
fara fram eftir að Alþingi hefur sam-
þykkt frumvarp um breytinguna.
Ef fimmtán prósent kjósenda
krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um
tiltekin lög eða málefni sem varða
almannahag skal Alþingi efna til
slíkrar atkvæðagreiðslu. Á hún að
fara fram innan þriggja mánaða frá
því að staðfest krafa þar um liggur
fyrir. Niðurstaðan er bindandi. Ekki
verður hægt að krefjast þjóðarat-
kvæðagreiðslu um fjárlög, fjárauka-
lög, lög um skattamálefni og lög
sem sett eru til að framfylgja þjóð-
réttarskuldbindingum. Nánari reglur
um málsmeðferð verða bundnar í
sérstökum lögum.
Stjórnlagaþing, sem endurskoða
á stjórnarskrána, á að koma saman
eigi síðar en 1. desember og ljúka
störfum eigi síðar en 17. júní 2011.
Það skal skipað 41 þjóðkjörn-
um fulltrúa en mæla á fyrir um
kjörgengi og kosningu í sérstökum
lögum. Alþingi á að fjalla um og
síðar samþykkja frumvarp stjórn-
lagaþings um nýja stjórnarskrá. Á
endanum verður það sent þjóðinni
til samþykktar eða synjunar.
FJÓRÞÆTT BREYTING Á STJÓRNARSKRÁNNI
FYRSTA STJÓRNARSKRÁIN Íslendingar fengu
stjórnarskrá frá Kristjáni konungi IX 1874. Sumt
stendur enn lítið breytt í stjórnarskránni, sérstak-
lega ákvæði í öðrum kafla hennar sem fjallar um
framkvæmdavaldið.
FJÖLMIÐLAR Rannsóknarnefnd
Alþingis um bankahrunið hefur
óskað eftir að fá lista yfir þá sem
hafa starfað sem stjórnarmenn í
365 frá 2004 til 2008. Einnig yfir
forstjóra félagsins og yfirmenn,
ritstjóra og fréttastjóra Stöðv-
ar 2, Bylgjunnar, Fréttablaðsins,
Vísis og Markaðarins.
Þá vill nefndin fá nöfn starfs-
manna sem hafa haft dagskrár-
gerð eða fréttaskrif á sinni könnu
um efnahagsmál, viðskiptalífið,
fjármál og starfsemi banka og
bankastofnana. Þetta er gert til
að sjá hvort hagsmunatengsl hafi
hugsanlega haft áhrif á umfjöllun
fjölmiðlanna. - kóþ
Rannsóknarnefnd Alþingis:
Vill lista yfir
starfsfólk 365
DÓMSMÁL Aðalmeðferð fór fram
í gær í máli gegn Benjamín Þór
Þorgrímssyni, sem ákærður er
fyrir þrjár líkamsárásir. Ein
árásin, á athafnamanninn Ragn-
ar Magnússon, vakti töluverða
athygli, en hún átti sér stað undir
eftirliti myndavéla sjónvarps-
þáttarins Kompáss. Ragnar sagð-
ist fyrir dómi hafa verið beð-
inn um að bera við minnisleysi í
réttarsal ella hljóta verra af.
Benjamín er einnig ákærður
fyrir árás á viðskiptafélaga sinn
á Hótel Nordica, og árás á ógæfu-
mann. Sá var nýkominn úr mis-
heppnaðri ránstilraun á snyrti-
stofu þegar Benjamín réðst á
hann. Benjamín neitar öllu. - sh
Ákært fyrir þrjár árásir:
Beðinn um að
missa minnið
BRETLAND Alvarlegur skortur á
innfæddum trúðum og loftfim-
leikafólki ríkir í Bretlandi, ef
marka má orð Malcolms Clay,
formanns samtaka sirkuseig-
enda í þar í landi. Clay hefur sent
skýrslu þess efnis til innanríkis-
málanefndar breska þingsins.
Í skýrslunni kemur fram að
vegna skortsins neyðist sirkus-
eigendur til að ráða fólk frá Kína
og Austur-Evrópu til starfa. Nýtt
kerfi varðandi vinnuleyfi í Bret-
landi, sem tekið verður í notkun
í næsta mánuði, gæti hamlað því
að fólk frá þessum löndum feng-
ist í störfin. „Breskir sirkus-
starfsmenn arfleiða ekki lengur
yngri kynslóðir að hæfileikum
sínum, heldur taka þá með sér í
gröfina,“ segir Clay. - kg
Breskir sirkuseigendur:
Skortur á trúð-
um í Bretlandi
TRÚÐALÆTI Að sögn formanns samtaka
sirkuseigenda í Bretlandi er fátt um
atvinnulausa trúða. NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
14°
8°
4°
6°
4°
5°
5°
4°
5°
5°
21°
9°
11°
24°
2°
8°
14°
2°
-5
-5
-3
-4
-2
1
-2
2
-2
1
-8
5
8
8
6 5
6
5
5
2
3
6
-1
-3 -3
1
1
Á MORGUN
10-15 m/s norðvestan til
annars hæg breytileg átt
SUNNUDAGUR
10-18 m/s hvassast
norðvestan til
0
-3
-4
-1
-1
HELGARHORFUR
Á morgun verður stíf
norðaustan átt á land-
inu norðvestan- og
vestanverðu annars
yfi rleitt hæg breytileg
átt. Snjókoma verður
á Vestfjörðum annars
él á víð og dreif um
landið og fremur
skýjað. Á sunnu-
dag verður ákveðin
norðanátt um allt
land, sýnu hvössust
norðvestan og vestan
til. Úrkomulítið austan
og suðaustan til
annars él.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
MARGRÉT
SVERRISDÓTTIR
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
GENGIÐ 05.03.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
174,8641
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
112,64 113,18
159,26 160,04
141,54 142,34
18,995 19,107
15,878 15,972
12,37 12,442
1,1323 1,1389
164,38 165,36
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR