Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 46
34 6. mars 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ? LÁRÉTT 2. þó, 6. tveir eins, 8. skip, 9. ískur, 11. ekki heldur, 12. kær, 14. frumefni, 16. í röð, 17. kk nafn, 18. heyskapa- ramboð, 20. tveir eins, 21. þráður. LÓÐRÉTT 1. tamning, 3. frá, 4. orðstír, 5. bjálki, 7. tré, 10. fjallaskarð, 13. nudda, 15. titra, 16. taumur, 19. frú. LAUSN LÁRÉTT: 2. samt, 6. gg, 8. far, 9. urg, 11. né, 12. náinn, 14. flúor, 16. tu, 17. ari, 18. orf, 20. ðð, 21. garn. LÓÐRÉTT: 1. ögun, 3. af, 4. mannorð, 5. tré, 7. gráfura, 10. gil, 13. núa, 15. riða, 16. tog, 19. fr. „Yfirleitt gild- ir það með landsbyggð- ina miðað við höfuðborgar- svæðið, að það er miklu meira sam- band á milli fólksins og hljómsveitanna en í bænum.“ Magnús Kjartansson í Helgarpóstinum 27. apríl 1979. „Það er alltaf gaman að spila fyrir þakk- láta hlustendur, hvar sem er. En umhverf- ið hefur breyst það mikið á síðustu árum að hljómlistarmenn eru í miklu minna mæli farnir að fara um landið sitt. Maður saknar þess nú og hver veit nema maður taki á sig rögg og geri eitthvað í málinu,“ segir Magnús nú. „Þetta eru auðvitað góð meðmæli. Það er alls ekki leiðinlegt að fá að klæða prinsessu,“ segir Elva Rósa Skúladóttir, yfirhönnuður hjá Cintamani-fatamerkinu. Danska krónprinsessan Mary Donaldson klæddist Cintamani-útivistar- fatnaði í konunglegu skíðaferða- lagi í svissnesku Ölpunum fyrir skemmstu. Dönsku blöðin Billed Bladet og Se & Hør birta mynd- ir frá ferðalaginu í nýjustu tölu- blöðum sínum. Búast má við því að klæðnaður krónprinsessunn- ar veki eftirtekt og auki hróður íslenska fyrirtækisins. „Hún er mikið „fashion-icon“ þarna úti og það er mikið pælt í fötunum sem hún klæðist,“ segir Elva Rósa. Aðspurð segir hún að fatnaður frá Cintamani sé seldur bæði í Dan- mörku og Noregi. Þá hafi fatnað- urinn líka selst í Bandaríkjunum og Kanada og í gegnum netið. Elva Rósa segir að Cinta- mani sé með umboðsmann í Danmörku sem hafi komið þessu í kring. Hann kom sér í samband við stílista konungsfjölskyldunnar sem fengu sýnishorn af Cinta- mani-fatnaðinum. Mary valdi sér svo fötin sjálf eftir sýnishornunum. Á myndunum sést að hún klæðist útivistarbux- um, útivistarjakka og peysu frá Cintamani. Mary Donaldson ólst upp í Ástralíu og starfaði í auglýs- ingageiranum áður en hún kynntist Friðriki, krónprinsi Dana. Þau gengu í hjónaband árið 2004. Mary og Friðrik eiga tvö börn, Kristján og Ísa- bellu. Samband þeirra hefur jafnan verið mikið undir smásjá danskra fjölmiðla og nýtur Mary mikilla vinsælda meðal almenn- ings. Hún er í raun vinsælasta manneskjan í konungsfjölskyld- unni samkvæmt könnun sem gerð var í fyrra. Þá var hún jafnframt valin Kona ársins af tímaritinu Alt for damerne. ELVA RÓSA SKÚLADÓTTIR: EKKI LEIÐINLEGT AÐ KLÆÐA PRINSESSU Mary prinsessa velur íslenskt PRINSESSA Í CINTAMANI Mary Donaldson klæddist íslenskum útivistarfatnaði frá Cintamani í skíðaferð í svissnesku Ölpunum. Friðrik, krónprins Dana, og börn þeirra, Ísabella og Kristján, eiga hins vegar eftir að dressa sig upp. Dönsku blöðin Se & Hør og Billed Bla- det fjölluðu ítarlega um skíðaferðina. Elva Rósa Skúladóttir, yfirhönnuður hjá Cintamani, er ánægð með nýjasta viðskiptavin sinn. „Já, þetta er nú svona með því meira sem ég hef séð í þessu,“ segir Bjarni Haukur, leikhússtjóri Loftkastalans. Fimm hundruð manns hafa skráð sig í áheyrnarprufur fyrir sumarsýninguna Grease en þær fara fram nú í upphafi næstu viku. Stefnt er að því að frum- sýna söngleikinn 11. júní. Leik- stjóri er Selma Björnsdóttir en tónlistarstjóri Þorvaldur Bjarni og munu þau sitja úti í sal þegar fimm hundruð manns, leikarar, söngvarar og dansarar, sýna hvað í þeim býr. Sá háttur var hafður á að þeir sem vilja taka þátt sendu upp- lýsingar um sig til Bjarna Hauks í Loftkastalann og skráðu sig til þátttöku. Og mörg kunnugleg nöfn að sögn Bjarna sem þó vill ekki að svo stöddu máli upplýsa frekar þar um. „Prufurnar eru á mánudag og þriðjudag og eftir það fara málin að skýrast. Mér þykir alveg furðu- legt að húsin, sem styrkt eru af ríki og bæ, eru ekki með meira af prufum. Þetta ætti að vera miklu oftar. Hér eru svo margir sem hafa verið að læra söng og dans en allar dyr eru lokaðar. Og engin leið fyrir fólk að sýna hvað í því býr. Fullt af hæfi- leikafólki hér í öllum hornum. Sprettur fram og maður veit ekki hvað- an. Hver ert þú?“ spyr Bjarni Haukur. - jbg Fimm hundruð í prufu fyrir Grease SELMA BJÖRNSDÓTTIR Áheyrn- arprufur eru hennar ær og kýr. Hún stendur í ströngu við að vinsa úr í Idolinu og nú ætla fimm hundruð manns á hennar fund til að sýna hvað í þeim býr. BJARNI HAUKUR Furðar sig á því að atvinnuleikhúsin skuli ekki bjóða oftar upp á áheyrnarprufur því hér er hæfileikafólk í hverju horni sem aldrei fær að sýna hvað í því býr. „Ég er alsæll með lífið. Nú fer ég á einhverja róna- búllu niðrí bæ og býð á línuna,“ segir Ásgeir Þór Davíðsson betur þekktur sem Geiri á Goldfinger. Geiri vann í gær meiðyrðamál í Hæstarétti á hendur Vikunni vegna greinar sem birtist í ágúst árið 2007 um súlustaði og að vændi væri stundað þar. Einkum var nafn Geira nefnt í tengslum við það og þótti Geira það ómaklegt og ásakanirnar úr lausu lofti gripnar. Málinu tapaði Geiri í undirrétti en vann í gær. Ritstjórinn Guðrún Elín Arnardóttir var sýknuð en blaðamaðurinn Björk Eiðsdóttir var dæmd til að greiða Geira miskabætur upp á hálfa milljón og málskostnað sem nemur 400 þúsundum. Lögmaður Geira er Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og er þetta enn eitt málið á hendur Birtingi, útgáfufé- lagi Vikunnar, sem hann vinnur. „Ég er löngu búinn að eyða þessum peningum,“ segir Geiri spurður hvað hann ætli að gera við pen- ingana. Hann bendir á að þetta mál hafi kostað sig miklu meira en sem nemur þessum níu hundr- uð þúsundum. „Það er ekki hægt að leyfa óheiðar- legum blaðamönnum á borð við þennan, sem eru stétt sinni til skammar, að komast upp með dylgjur og óþverrahátt. Mest kemur mér á óvart að Vikan, þetta kvenna-dægurmálablað hafi þarna umturnast í eitthvert sorptímarit,“ segir Geiri og var með það rokinn, harla kátur, niður í bæ að finna einhverja til að halda uppá sigurinn með. - jbg Búinn að eyða miskabótunum GEIRI Á GOLDFINGER Var kátur í gær en þá vann hann í Hæstarétti meiðyrðamál á hendur Vikunni - mál sem hann tapaði í undirrétti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fáfnismenn standa nú í ströngu varðandi félagsheimili sem fyrirhugað var að yrði opnað um helgina einhvers staðar í Hafnar- firði. Fáfnismenn segjast hafa tilskilin leyfi en Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og bæjaryfirvöld vilja ekki kannast við það og segja þetta iðnaðarhúsnæði en ekki klúbbhús. Meðan standa fjölmargir ráðvilltir með boðskort í opnunina í höndum. Ekki kemur á óvart að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði geri hvað þau geti til að flæma vélhjólaklúbb- inn úr bænum því einhvern tíma tóku þau sig til og ályktuðu um að súlustaðir væru bannaðir í bæjarfélaginu – án þess að vitað væri til þess að einhverj- ir hefðu sýnt því áhuga að reka slíkan stað í Hafnarfirði. Rífandi ánægja er meðal Hrefnu Haraldsdóttur og kvennanna í Listahátíð með viðbrögð við einsöngstónleikum sópransöngkonunnar Deborah Voigt, en forsala miða hófst á miðvikudag. Tónleik- arnir verða haldnir í Háskólabíói 31. maí Og miðarnir bók- staflega rokseljast á söngkonuna. Ný auglýsing Símans með Hilmi Snæ Guðnasyni í aðalhlutverki hefur verið keyrð stíft á sjónvarps- stöðvunum í vikunni. Í auglýsing- unni sést hópur fréttamanna, sem margir eru fyrrum fréttamenn, sækja stíft að kynningarfulltrúanum Hilmi. Þarna eru í aðalhlutverki fólk eins og Karl Garðarsson og Ólöf Rún Skúladóttir en þeim var í fyrstu ætlað minna hlutverk. Í það minnsta heyrast þær sögur að mikið hafi verið gengið á eftir Ólafi Sigurðssyni, fyrrum fréttamanni á Sjónvarpinu, en hann hafi gefið verkefn- ið frá sér. - jbg, hdm FRÉTTIR AF FÓLKI . Fiskikóngurinn er... Fiskverslun sem gaman er að koma í :) STÓR HUMAR SUSHI Ferskt sushi alla föstuda ga VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1. Helgi Hrafn Jónsson. 2. Georg Lárusson. 3. Peter Løvenkrands.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.