Fréttablaðið - 06.03.2009, Side 16
16 6. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 124 Velta: 364 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
265 -2,24% 814 -4,08%
MESTA HÆKKUN
CENTURY ALUM. +3,91%
FØROYA BANKI +1,01%
MESTA LÆKKUN
STRAUMUR -7,14%
EIMSKIP -6,25%
ICELANDAIR -3,28%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,70 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 235,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,85 -1,60% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,75 -6,25% ... Føroya Banki 100,00 +1,01% ... Icelandair Group 11,80
-3,28% ... Marel Food Systems 53,10 -1,12% ... SPRON 1,90 +0,00%
... Straumur-Burðarás 1,69 -7,14% ... Össur 84,80 -2,53%
Norrænn núningur
Kalt stríð virðist í uppsiglingu á milli norsku kaup-
hallarinnar í Ósló og Nasdaq OMX-kauphallarsam-
stæðunnar ef marka má erlenda fjölmiðla. Nasdaq
OMX rekur risahlutabréfamarkað hér, í New York í
Bandaríkjunum, í Eystrasaltsríkjunum og á Norður-
löndunum öllum – að Noregi undanskildu. Mark-
aðurinn hefur þó teygt anga sína inn í Noreg en
síðar í mánuðinum mun samstæðan bjóða
viðskiptavinum sínum upp á að fjárfesta í 25
umsvifamestu félögunum sem
skráð eru í Noregi. Vonast er
til að fleiri bætist í hópinn
þegar á líður. Bandaríska dag-
blaðið Wall Street Journal
segir þetta ráðabrugg
fara illa í þá norsku,
sem hafi gripið til
sinna ráða til að verjast
utanaðkomandi ógn.
Stirt milli Skandinava
Blaðið segir deilurnar hafa byrjað fyrir þremur
árum þegar Nasdaq keypti tíu prósenta hlut í
norska markaðnum. Síðan þá hefur mikið vatn
runnið til sjávar. Nasdaq, sem þá var bandarísk-
ur hlutabréfamarkaður, rann saman við norrænu
kauphallarsamstæðuna auk þess sem
sú norska tók upp samstarf við bresku
kauphöllina. Fjarlægðin á milli
norrænu frændanna hefur
aukist síðan þá og endurspeglast
það í deilunni nú. Til að bæta gráu
ofan á svart hefur Nasdaq OMX
fært niður virði eignarhluta sinna í
norska markaðnum en haft var eftir
Hans-Ole Jochumsen, forstjóra Nasdaq OMX á
Norðurlöndunum, í Wall Street Journal í vikunni
að hluturinn sé falur fyrir rétt verð. Þótt hann
skipti um hendur muni ráðagerðum um norska
landnámið þó ekki verða ýtt út af borðinu.
Peningaskápurinn...
Drykkjarvörurisinn Anheuser-Bush
Inbev hagnaðist um 62 milljónir
Bandaríkjadala, jafnvirði sjö milljarða
króna, á síðasta ársfjórðungi í fyrra.
Þetta er 95 prósenta samdráttur á
milli ára.
Stjórnendur fyrirtækisins segja
kostnað vegna yfirtöku Inbev á Anheu-
ser-Busch, sem lauk í nóvember í fyrra,
skýra samdráttinn að nær öllu leyti.
Viðamikil hagræðing og uppstokkun í
starfsmannahaldi auk sölu eigna er í
spilunum en stefnt er að því að spara
hálfan milljarð dala með aðgerðunum,
að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC.
Anheuser-Bush keypti fyrir um
tveimur árum fimmtungshlut í átöpp-
unarfyrirtækinu Icelandic Water Hold-
ings, sem framleiðir vatn á flöskum
undir merkjum Icelandic Glacial. - jab
BUDWEISER Í MASSAVÍS Á meðal
þekktustu bjórtegunda drykkjarvöru-
risans Anheuser-Bush Inbev eru Bud-
weiser og Stella Artois. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
MINNI BJÓRTEKJUR
Breska fjárfestingafélagið Cand-
over hefur fært niður verðmæti
eigna sinna um helming og afskrif-
að þriðjung eignasafnsins í sam-
ræmi við breskar reglur. Þá þykir
líklegt að starfsemin verði endur-
skipulögð og starfsfólki sagt upp.
Candover lauk í fyrra við kaup á
hollensku iðnsamsteypunni Stork í
félagi við Eyri Invest, Marel Food
Systems og Landsbankann. Virði
hlutarins í Stork hefur sömuleiðis
verið færður niður.
Breska dagblaðið Financial
Times hefur eftir Gerry Grim-
stone, stjórnarformanni Candov-
er, að aðstæður séu slíkar að staða
flestra fjárfestingafélaga hafi
breyst síðastliðna sex mánuði. jab
Candover af-
skrifar þriðjung
Bæði Englandsbanki og Evrópski seðlabankinn færðu stýrivexti sína niður í
lægsta gildi sem sögur fara af í gær.
Stýrivextir í Bretlandi eru nú hálft prósent en 1,5 prósent á evrusvæðinu.
Bloomberg-fréttaveitan segir Englandsbanka nú þröngar skorður settar þar
sem helsta stjórntæki hans sé næsta óvirkt. Muni hann grípa til óhefðbund-
inna aðgerða í kjölfarið gegn kreppunni, svo sem með umfangsmikilli prentun
peninga og kaupa á ríkisskulda- og fyrirtækjabréfum.
Staðan er litlu betri á meginlandi Evrópu en Bloomberg segir Evrópska seðla-
bankann hafa brugðist seint við aðsteðjandi efnahagsvanda á evrusvæðinu.
Það muni því taka síðar við sér en í Bandaríkjunum. - jab
Prentvélarnar ræstar
Sjávarútvegsfyrirtæki
brjóta ekki gjaldeyrislög,
segir hagfræðingur LÍÚ.
Útflutningsfyrirtæki nýta
erlend dótturfélög til kaupa
á ódýrum krónum og skila
hagnaðinum heim.
„Enginn alvöru útflytjandi gerir
svona langað, enginn,“ fullyrð-
ir Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur Landssambands
íslenskra útvegsmanna.
Hann segir af og frá að íslensk
sjávarútvegsfyrirtæki semji
við erlenda kaupendur um sölu í
íslenskum krónum í stað erlends
gjaldeyris og fari á svig við gjald-
eyrishöftin.
Fréttablaðið greindi frá því
í gær að í einhverjum tilvikum
hafi erlendir kaupendur íslenskra
útflutningsvara samið við eigend-
ur íslenskra krónu- og innstæðu-
bréfa um eignaskipti og greitt
fyrir vörur í krónum.
Þeir einu sem hagnist á viðskipt-
unum séu fjárfestarnir, sem kunni
ýmis ráð, á sama tíma og útflutn-
ingsfyrirtæki verða af gengis-
hagnaði. Þeir sem Fréttablaðið
ræddi við vildu ekki gangast við
slíkum viðskiptum.
Gjaldeyrishöftin og skilaskyldan
hafa sætt harðri gagnrýni á sama
tíma og útflutningsfyrirtækin
misstu gjaldeyrisvarnir sínar með
falli bankanna. Þau hafa því þurft
að grípa til annarra ráða, svo sem
með kaupum á krónum á erlendum
mörkuðum í gegnum dótturfélög
erlendis. Söluandvirði og gengis-
hagnaði skila þau svo heim með
reglulegum hætti líkt og lög um
gjaldeyrisviðskipti kveða á um.
jonab@markadurinn.is
Fiskútflytjendur
ekki lögbrjótar
Íslenskur fjárfestir eða fjárfestinga-
félag á jafnvirði fimm milljarða
króna í erlendum hlutabréfum
en hefur hug á að selja eignina.
Á móti er erlendur fjárfestir sem
á jafn háa upphæð í íslenskum
krónu- og innistæðubréfum
Seðlabankans en getur ekki flutt
fjármuni sína úr landi vegna
gjaldeyrishafta sem samþykkt
voru á Alþingi í lok nóvember.
Fjárfestarnir semja sín á milli
um verðmæti eignanna og um
skiptigengi. Þegar samningar nást
skiptast þeir á eignum. Erlendi
fjárfestirinn eignast þá hlutabréfin
úti en íslenski fjárfestirinn krónu-
og innistæðubréfin. Viðskiptin eru
á gráu svæði og illgreinanleg í
fyrstu í bókum Seðlabankans.
DÆMI UM SAMNINGA
Taktu þátt í að móta framtíðina
Nánari upplýsingar um fundina og félagsstarf Sjálfstæðisflokksins
má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700.
Opnir vinnufundir Endurreisnarnefndar
Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur það verkefni að móta tillögur og
hugmyndir um uppbyggingu íslensks efnahagslífs næstu misserin. Á næstu
vikum verða fjölmargir fundir þar sem leitað verður eftir skoðunum og áliti
flokksmanna. Ný heimasíða hefur verið opnuð á www.endurreisn.is þar sem
allir eru hvattir til þess að kynna sér málin og segja sína skoðun.
Nefndin mun standa fyrir opnum vinnufundi í Valhöll föstudaginn 6. mars kl.
17.00 og laugardaginn 7. mars kl. 10.30. Unnið verður í fjórum hópum: Uppgjör
og lærdómur, Hagvöxtur framtíðarinnar, Atvinnulíf og fjölskyldur og
Samkeppnishæfni.
Endurreisnarnefnd
Sjálfstæðisflokksins