Fréttablaðið - 06.03.2009, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Raúl Sáenz matgæðingur starfar
sem túlkur og þýðandi í Alþjóða-
húsinu. Raúl kemur frá Mexíkó en
hefur ferðast víða og smakkað alls
konar mat.
„Áður en ég kom til Íslands hafði
ég búið eitt ár í Taílandi. Ég var
líka mánuð í Kína og hef ferðast
til Japan og Kambódíu. Mér finnst
mjög gaman að smakka matinn í
öllum löndum sem ég heimsæki og
safna hugmyndum.“
Raúl segir mexíkóskan mat þann
besta í heimi. Hann gefur lesendum
uppskrift að ljúffengri salsa-sam-
loku. „Mamma mín er kölluð La
Bonchi en ég fékk innblásturinn að
samlokunni frá henni. Ég var stadd-
ur á ströndinni í Mexíkó og vant-
aði skyndibita því að ég var svang-
ur. Þá bjó ég til þessa samloku og
hún var æðisleg. Bæði íslenskum
og útlenskum vinum mínum finnst
hún góð.“ heida@frettabladid.is
La Bonchi eftir mömmu
Raúl Sáenz gefur lesendum uppskrift að ljúffengri mexíkóskri samloku sem hann bjó til eitt sinn þegar
hann var verulega svangur. Matreiðsla móður hans var innblásturinn að samlokunni.
Raúl Sáenz, matgæðingur frá Mexíkó, bjó til ljúffenga salsa-samloku eitt sinn þegar hann var mjög svangur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Salsasósa:
½ mangó skorið niður í
litla bita
2 msk. smátt skorinn
laukur
¼ paprika skorin niður
(má skipta út fyrir chilli
pipar)
1 msk. lime-safi
Smávegis salt, sykur og
svartur pipar
Blandið öllum hráefn-
unum í salsasósuna
saman í skál.
4 samlokur:
8 brauðsneiðar
8 sneiðar af búraosti
(eða brauðosti)
¼ bolli hunangssinnep
(eða BBQ sósa)
3 msk. lint smjör
1 msk. karrí
Blandið karríinu
við smjörið. Smyrjið
karrísmjöri á aðra
brauðsneiðina og
smyrjið hina með
sinnepi. Setjið tvær
skeiðar af salsa, eina
sneið af osti og lokið
samlokunni.
Afgangurinn af
karrísmjörinu er settur
á góða pönnu sem
brennur ekki við.
Hitið pönnuna í tvær
mínútur og steikið
samlokurnar að utan
á pönnunni þar til
þær eru vel brúnar og
osturinn bráðinn.
Þrýstið samlokunum
saman með spaða
á pönnunni svo
þær verði þéttar og
góðar og setjið lok á
pönnuna svo osturinn
bráðni.
Skerið í þríhyrninga
og berið fram með
afganginum af sals-
anu.
LA BONCHI
mexíkóskar strandlokur FYRIR 4
MATREIÐSLUNÁMSKEIÐ verður haldið í Heilsuhúsinu 18.
mars með Auði Ingibjörgu Konráðsdóttur heilsukokki. Á nám-
skeiðinu mun Auður sýna fram á hversu einfalt, ódýrt og fljótlegt
það er að matreiða góðan mat úr heilsusamlegu hráefni.
H
ri
n
g
b
ro
t
framlengt til 29. mars
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður
bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem
unna góðum mat á góðu verði.
Tilvalið fyrirárshátíðina!
HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“
með fíkjum, salati og ferskum parmesanosti
RJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPA
með humarfrauði
MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINI
með ristuðu grænmeti, kartöflumauki
og hunangskryddsósu (4.590 kr.)
ÖND
með appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.)
NAUTALUND
Béarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati
og sperglum (6.590 kr.)
LOGANDI CRÈME BRÛLÉE
með súkkulaði ís
1
2
3
4
VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA
Nýr A la Carte hefst 30. mars!