Fréttablaðið - 06.03.2009, Page 24
4 föstudagur 6. mars
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n
Katrín Rut Bessa-
dóttir fjölmiðlakona
er mætt aftur á skjáinn.
Katrín er í sambúð með
Helga Seljan fjöl-
miðlamanni. Hún segir
þau sjaldnast ræða
þjóðmálin heima fyrir en
séu dugleg við að hrósa
hvort öðru fyrir góða
frammistöðu. Katrín og
Helgi eiga dóttur saman
og ætla að gifta sig
næsta sumar.
Viðtal: Indíana Ása Hreinsdóttir
Ljósmyndir: Anton Brink
V
ið getum og ætlum að
tala um það sem við
viljum,“ segir Katrín
Rut Bessadóttir fjöl-
miðlakona sem er ein
af þremur nýjum stjórnendum
þáttarins Mér finnst sem sýnd-
ur er á ÍNN. Þátturinn er lauslega
byggður á bandaríska þættinum
The View þar sem kjarnmiklar
konur ræða málin og láta sér fátt
óviðkomandi. Ásamt Katrínu koma
þær Lára Ómarsdóttir og Bergljót
Davíðsdóttir að þættinum og Katr-
ín segir þær stöllur ólíkar og stút-
fullar af spennandi hugmyndum.
„Það er mjög spennandi að taka
þátt í þessu og við ætlum bæði að
fjalla um það sem er efst á baugi
hverju sinni og svo allar hinar
hliðarnar á mannlífinu. Við ætlum
að passa að vera vel undirbúnar
og líka að fá til okkar skemmtilega
og fjölbreytta gesti,“ segir hún og
bætir aðspurð við að ekkert um-
ræðuefni verði þeim óviðkom-
andi. „Við erum til dæmis búnar
að fjalla um „swing“-menningu á
Íslandi og ég get alveg trúað því
að við eigum eftir að kafa dýpra í
það sem þykir á jaðrinum í sam-
félaginu. Við getum talað um allt
kinnroðalaust enda hvorki feimn-
ar né skoðanalausar,“ segir Katr-
ín sem hóf sinn fjölmiðlaferil á DV
árið 2004 og hefur einnig starfað á
Stöð 2. Hún segir muninn á þessu
starfi og hinum aðallega þann að
nú megi hún allt. „Á hinum miðl-
unum er maður að miða hlutina út
frá viðmælendum sínum en núna
get ég sagt það sem mér finnst.
Frelsið er meira, sem mér finnst
mjög gott. Ég hef alltaf þurft að
tjá mig mikið og hætti því eflaust
aldrei,“ segir hún hlæjandi.
HRÓSA HVORT ÖÐRU
Katrín er í sambúð með Helga Selj-
an fjölmiðlamanni en þau kynnt-
ust á sínum tíma á DV. „Mér leist
kannski ekkert svo vel á hann í
fyrstu,” segir hún og brosir. „Vin-
konur mínar voru líka ekki hrifn-
ar og héldu því fram að hann
væri hættulegur og að þetta gæti
bara endað illa. Kannski voru það
varnaðarorð þeirra sem létu mig
halda áfram. Ég er svo þrjósk og
þvermóðskufull að ég hélt áfram
að vera með honum og hef ekki
hætt síðan. Ekki bara samt vegna
þrjóskunnar, hún þróaðist í eitt-
hvað meira og dýpra,“ segir hún
brosandi. Katrín segir þjóðmálin
ekki ofarlega á lista yfir umfjöll-
unarefni heimilisins. „Við erum
ekki mikið að tala um vinnuna
okkar en ef ég hef misst af Kast-
ljósþætti kvöldsins spyr ég hann
út úr og svo öfugt ef hann hefur
misst af mínum þætti. Við spur-
jum hvort annað álits og hrósum
hvort öðru fyrir góða frammistöðu
en leggjum ekki í vana okkar að
gagnrýna hvort annað. Helgi er
alltaf svo góður við mig og finnst
ég alltaf æðisleg og ég tek bara
mark á því. Hann er aldrei með
neikvæða gagnrýni og styður mig
í öllu sem ég geri. Við erum ótrú-
lega sammála þegar kemur að
pólitík og þjóðmálum almennt svo
við rífumst sjaldan um þess hátt-
ar málefni.“
MÓÐUREÐLIÐ LENGI AÐ
KIKKA INN
Helgi og Kata eiga saman dótt-
urina Indíönu Karitas sem er 15
mánaða. Katrín segir yndislegt að
vera mamma en að hún hafi þurft
sinn tíma til að aðlagast hlutverk-
inu. „Auðvitað elskaði ég hana frá
fyrsta degi en fæðingin var mjög
erfið. Ég var mjög þung fyrstu mán-
uðina og þegar ég lít til baka er ég
nokkuð viss um að ég hafi fengið
vott af fæðingarþunglyndi. Ég var
gjörsamlega úr tengslum við raun-
veruleikann. Núna hefur móður-
eðlið kikkað inn og ég er farin að
njóta þess að vera mamma, þetta
er ekki lengur bara skylda.“ Hún
segist hafa verið lengi að jafna sig
eftir fæðinguna. „Ég var líka svekkt
því ég hafði hugsað mér fæðing-
una á ákveðinn hátt en svo varð
þetta allt öðruvísi. Ég ætlaði að
fæða í vatni og vildi ekki fá nein
verkjalyf en hlutirnir fóru alveg á
hinn veginn enda fæðingin hæg
og erfið. Fyrir vikið fannst mér ég
ómöguleg og leið eins og ég væri
misheppnuð,“ segir hún og bætir
við að konur ættu ekki að gera sér
of miklar hugmyndir fyrirfram
varðandi fæðingar. „Þær gerast
bara eins og þær gerast.“
FREKARI BARNEIGNIR Í
DÆMINU
Katrín segir að þótt Indíana Ka-
ritas hafi verið velkomin í heim-
inn hafi koma hennar ekki verið
plönuð. Þau höfðu verið búin að
ræða um barneignir og að þær
hafi verið á dagskránni fljótlega en
ekki svona fljótlega. „Helgi hefur
alltaf verið mikill barnakarl. Hann
nær vel til barna og þau eru hrifin
af honum. Þess vegna var ég farin
að hlakka til að sjá hann í pabba-
hlutverkinu áður en ég varð ólétt.
Hann kom mér heldur ekki á óvart
og er mjög skemmtilegur pabbi,“
segir hún og játar því að Indíana
Karitas hafi breytt lífi þeirra skötu-
hjúa. „Koma hennar breytti öllu.
Bæði varðandi mig, sambandinu
milli okkar Helga og öllu í lífinu en
þetta er allt að smella núna,“ segir
hún og bætir við að hún hafi bætt
á sig óþarflega mörgum kílóum á
meðgöngunni sem hún hafi átt í
erfiðleikum með að ná af sér. „Ég
er að koma til baka núna og hef
loksins endurheimt líkama minn
og sjálfstraustið með. Svo verð-
ur maður alltaf sjóaðri í foreldra-
hlutverkinu með tímanum. Þetta
er ekki eins mikið mál og í byrj-
un. Núna er þetta bara gaman.“
Aðspurð hvort frekari barneignir
séu á döfinni segir hún það ekki
útilokað. „Ég rokka á milli þess að
vilja bíða í nokkur ár og leyfa In-
díönu að vera einni með okkur í
smá tíma og svo í hina áttina að
vilja klára barneignirnar svo hún
eignist systkini og leikfélaga. Ég
er samt svo ótrúlega glöð að hafa
fengið mig sjálfa til baka að ég
veit það ekki. Það væri samt gott
að drífa í þessu áður en ég gleymi
hvernig það er að vera með lítið
barn.“
BÓNORÐ ÚTI Í MÓA
Hvorki Helgi né Katrín eru í Þjóð-
kirkjunni en þau ætla að láta
pússa sig saman sumarið 2010.
Þrátt fyrir að hafa hvorki ákveðið
nákvæmlega stóra daginn né stað-
setninguna hafa þau þegar fengið
fyrstu brúðkaupsgjöfina. „Mamma
fékk svo góðan díl á KitchenAid-
hrærivél svo hún gaf okkur hana
bara strax. Núna skreytir þessi
glæsilega svarta hrærivél eldhús-
ið okkar,“ segir hún og bætir við að
Helgi hafi komið sér á óvart með
bónorðinu. „Við keyptum hring-
ana saman á Jamaíka árið 2006 og
ég var búin að steingleyma þeim
þegar hann fór niður á bæði hné
úti í móa þegar við vorum í sum-
arbústað. Ég var í þykkri úlpu með
Indíönu í poka framan á mér og
hefði ekki getað verið lufsulegri
með hárið út í loftið og Beagles
milli tannanna og ídýfu úti um
allt. Ég hafði sagt honum þegar við
keyptum hringana að hann yrði að
koma mér á óvart og hann hefði
ekki getað það betur. Mig hafði
stundum grunað að hann væri að
fara að biðja mín og hafði þá allt-
af vonað að svo væri ekki því þá
kæmi það ekki á óvart. Þarna hefði
bónorð ekki getað verði fjær mér,“
segir hún og hlær.
GÓÐ AÐ SKIPA FYRIR
Katrín er ekkert að mikla fyrir sér
hlutina og vílar ekki fyrir sér að
ræða um hvaða málefni sem er
og það í sjónvarpinu. Hún segist
ansi nálægt draumastarfinu enda
sé draumurinn að vera sinn eigin
herra. „Ég ætlaði alltaf að verða
flugfreyja og búðarkona þegar
ég var lítil en síðustu árin hefur
draumur minn verið minn eigin
rekstur, t.d. að reka gistiheimili
uppi í sveit. Ég myndi þá vera með
hænur, hesta, kýr og geitur en líka
smá lúxus eins og heitan pott og
gufu og ég held að ég yrði góð í að
reka svona stað því ég er svo góð
að skipa fyrir,“ segir hún hlæjandi.
„Að vissu leyti er ég í draumastarf-
inu því mér er frjálst að tala um
það sem ég vil. Ég er opin og ekk-
ert að vandræðast með hlutina og
finnst leiðinlegt að flækja lífið að
óþörfu. Kannski á ég bara eftir að
finna mína köllun í lífinu.“
HEF ALLTAF ÞURFT AÐ TJÁ MIG
Hvort ykkar er duglegra að sjá um heimilis-
verkin?
H: Kata vinnur þá keppni, enda sú keppni ósann-
gjörn þar sem hún er í annarri deild en ég, enda
húsmæðraskólagengin.
K: Ég. Helgi kemur þó sterkur
inn í þvottahúsinu.
Hvort ykkar hefur oftar rétt
fyrir sér?
H: Ég segi ég, en þar sem
Kata hefur oftar rétt fyrir sér,
þá ræður hennar svar.
K: Ég.
Lýstu Helga í einni setningu:
K: Ástríðufullur sveimhugi með ofboðslega réttlæt-
iskennd.
Lýstu Kötu
í einni setn-
ingu:
H: Hún
skammar mig
þannig að ég
tek mark á því
og hrósar mér
þannig að ég
tek mark á því.
Hvort ykkar talar meira?
H: Ég. Kata hefur hins vegar meira
að segja en ég.
K: Helgi talar ótrúlega mikið. Ekki
endilega við mig en endalaust í sím-
ann.
Draumafjölskylduferðin?
K: Við þrjú á Jamaíka eða í Madrid.
H: Hún er eitthvert burt héðan. Burt úr
því sem Þórbergur Þórðarson kallaði for-
heimskunarland – fávitahæli, en er líkast til
aftur orðið fátæktarland. Langt í burtu, helst
til Indlands eða Jamaíka.
Óvænt bónorð „Við keyptum hringana
saman á Jamaíka árið 2006 og ég var
búin að steingleyma þeim þegar hann
fór niður á bæði hné úti í móa þegar við
vorum í sumarbústað,“ segir Katrín.