Fréttablaðið - 06.03.2009, Side 38
26 6. mars 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> PARÍS ÞARF TÍMA
Móðir partíljónsins Parísar Hilton,
Kathy, ráðleggur dóttur sinni að
halda sig til hlés á stefnumóta-
markaðinum á næstunni. París
sleit sambandi sínu og rokkar-
ans Benji Madden í nóvem-
ber og mamma gamla vill
að hún jafni sig almenni-
lega. „Maður þarf ekki alltaf
að vera á föstu,“ segir hún.
Michael Jackson hygg-
ur á endurkomu í poppið
fjórum árum eftir að hann
var sýknaður af ákæru um
kynferðislega misnotkun.
Tíu tónleikar í London eru
fyrirhugaðir í sumar.
Þetta verður fyrsta tónleikaröð
Jacksons í rúman áratug eða síðan
hann fór í HIStory-tónleikaferðina
um heiminn 1996-1997. Síðan þá
hefur hann komið nokkrum sinn-
um fram en aldrei haldið stóra tón-
leika. Jackson steig síðast á svið í
Bretlandi á Heimstónlistarverð-
laununum árið 2006 þar sem hann
söng nokkrar línur í laginu We Are
The World. Þótti uppákoman öll hin
undarlegasta.
Talið er að popparinn fái hundr-
uð milljóna króna fyrir tónleikana
í O2-höllinni í London sem tekur
tuttugu þúsund manns í sæti. Þar
voru einmitt endurkomutónleik-
ar Led Zeppelin haldnir 2007 auk
þess sem Prince hélt þar 21 tón-
leika sama ár við magnaðar undir-
tektir.
Tónleikarnir verða frábært tæki-
færi fyrir Jackson til að endur-
heimta fyrri vinsældir. Hæst náði
hann á stjörnuhimininn á níunda
áratugnum með plötunum Thrill-
er og Bad sem hafa selst í tugum
milljóna eintaka út um allan heim.
Síðan þá hefur hallað undan fæti og
tóku réttarhöldin yfir honum til að
mynda sinn toll. Núna ætlar hann
að snúa aftur sterkari en nokkru
sinni fyrr með nýja plötu í fartesk-
inu sem verður hans fyrsta síðan
Invincible kom út 2001.
Orðrómur um slæmt heilsufar
Jacksons hefur af og til sprott-
ið upp og hafa veðbankar í Bret-
landi nú blandað sér í málið. Lík-
urnar á því að hann geti ekki spilað
á fyrstu tónleikunum eru taldar
fimm á móti einum.
Samkvæmt blaðinu Daily Mirror
hefur Jackson engu að síður geng-
ið í gegnum fimmtíu heilsufarspróf
sem öll hafa verið honum í hag.
Virðist hann því vera í hörkuformi
fyrir tónleikana og tilbúinn til að
standa við sitt.
Endurkoma Jacksons er ekki
sú eina sem hefur verið í fréttun-
um því poppprinsessan Britney
Spears er einnig farin í sína fyrstu
tónleikaferð í fimm ár. Bæði hún
og Jackson þurfa að sýna sig og
sanna eftir vandræði í einkalífinu
og verður forvitnilegt að sjá hvern-
ig þeim mun reiða af næstu miss-
erin.
Michael Jackson snýr aftur
MICHAEL JACKSON Popparinn ætlar að snúa aftur í sviðsljósið með tónleikaröð í O2-höllinni í London í sumar.
„Áhorfendur mæta í veislu í Moskvu þegar þeir
mæta á sýninguna,“ segir Þóra Sigurðardóttir, for-
maður Herranætur, leikfélags Menntaskólans í
Reykjavík, en félagið frumsýndi Meistarann og
Margarítu síðastliðinn föstudag. Auk 24 leikara
koma 70 nemendur að sýningunni, en öll tónlist er
frumsamin af Árna Frey Gunnarssyni og tíu manna
hljómsveit spilar undir.
„Við vorum að leita að áhugaverðu verki, sem
væri ekki eintómt grín heldur með smá alvöru.
Karl Ágúst Þorbergsson, leikstjóri sýningarinn-
ar, benti okkur þá á að lesa bókina Meistarann og
Margarítu,“ útskýrir Þóra. „Sagan gerist í Moskvu
á þriðja áratug síðustu aldar og segir frá því þegar
djöfullinn í líki Woland kemur til Moskvu með
fylgdarliði sínu og snýr öllu á annan endann með
alls kyns kúnstum og bellibrögðum. Í verkinu fylgj-
umst við með viðbrögðum fólks, en allir sem hitta
djöfulinn virðast enda á geðveikrahæli og þar kynn-
ist einn borgari Meistaranum. Tvær sögur fléttast
saman þar sem Margaríta kemur til sögunnar, en
hún er ástkona Meistarans og selur sál sína djöflin-
um til að bjarga honum og fá hann aftur. Við völdum
verkið síðasta sumar en það passar rosalega vel við
tíðarandann núna því það er svo mikil firring í sam-
félaginu í Moskvu, en djöfullinn opnar augu fólks
fyrir spillingunni,“ segir Þóra um sýninguna sem er
sett upp í gamla Heimilistækjahúsinu í Sætúni 8.
„Það gekk illa að finna leikhús því við vildum
sýna þetta í „black boxi“, eða auðu rými. Sviðið
er því allur salurinn þar sem áhorfendur sitja við
dekkuð borð og eru hluti af sýningunni um leið og
þeir mæta,“ segir Þóra. Fimm sýningar eru eftir og
áhugasömum er bent á vefsíðuna herranott.bloggar.
is. - ag
Bjóða áhorfendum til veislu
MEISTARINN OG MARGARÍTA Herranótt, leikfélag MR, setur
upp Meistarann og Margarítu í gamla Heimilistækjahúsinu í
Sætúni 8. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Staðurinn er fyrst og fremst
ætlaður lesbíum, hommum og
öðru góðu og jákvæðu fólki,“
segir Frímann Sigurðsson
rekstarstjóri nýja skemmti-
staðarins Barbara sem opnar
á annarri hæð Laugavegs 22
í kvöld. „Það eru akkúrat 30
ár síðan gamli 22 opnaði, en
hann var einn af fyrstu
gay-stöðunum í Reykja-
vík. Hugmyndin er að
fara „back to basics“ á
Barböru og gleðin á að
vera við völd í öllu hús-
inu,“ útskýrir Frímann.
„Við opnum í kvöld og
munum svo leyfa staðnum að
þróast út frá því hvað kúnna-
hópurinn vill. Við opnum
klukkan tíu í kvöld með mik-
illi gleði og óvæntum uppá-
komum, en annað kvöld verð-
ur félagið Konur með konum
með góugleðina sína niðri á
Silfri, svo við ætlum að spila
með og verðum með stráka-
ball hjá okkur þar sem Nonni
og Manni spila meðal ann-
ars.“
Aðspurður segist Frímann
ekki hafa látið kreppuna hafa
áhrif á opnun Barböru og
finnst gaman að taka þátt í
uppbyggingu á Laugavegin-
um. „Það er gaman að geta
styrkt Laugaveginn, gefið
honum meira líf og skapað
atvinnu, sérstaklega á þess-
um tímum,“ segir hann og
vonast til að sjá sem flesta í
kvöld. „Það kostar ekkert inn
svo allir þeir sem eru góðir og
jákvæðir eru velkomnir.“ - ag
Hommar og lesbíur hertaka 22
tilboðinu lýkur
8. mars
Aðeins
4 DAGAR
til stefnu
Tryggðar
tilboð N1
-5kr. / -15%
Sæktu um núna
á n1.is
GOTT OG JÁKVÆTT FÓLK
Frímann Sigurðsson
segir skemmtistaðinn
Barböru fyrst og fremst
vera ætlaðan homm-
um, lesbíum og öðru
góðu og jákvæðu fólki.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI