Fréttablaðið - 13.03.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.03.2009, Blaðsíða 6
6 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is Árni hafði samband. „Mig langar til að vekja athygli á nýju majonesi í Bónus, merkt fyrirtækinu. Mér finnst umbúðirnar sláandi líkar Gunnars majonesi.“ Árni tók mynd á farsíma og sendi með. Hann skrifar: „Doll- urnar eru jafn stórar, virð- ast vera frá sama framleið- anda. Er þetta vörustuldur? Er verið að blekkja neytand- ann til að halda að hann sé að kaupa áratugalanga upp- skrift í stað einhvers sem er nýtt og hefur ekki unnið sér sess á eigin verðleikum?“ Þetta er vissulega umhugsunarefni. Sjálf- ur held ég að ég myndi ekki ruglast á dollun- um út í búð. Ef Gunnars vill getur fyrirtæk- ið kært málið til Neytendastofu. Í fyrra kom upp svipað mál þegar Eggert Kristjánsson ehf. var gert skylt að breyta umbúðum sínum á Ginsengi eftir kvörtun frá Eðalvör- um. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bón- uss, tekur ekki afstöðu til umbúðanna en hefur þetta að segja um Bónus-majonesið: „Það er framleitt af Vogabæ og er sambærilegt að gæðum á við Gunnars, en er bara á sirka 20-30% lægra verði. Það sama á við um Bónus fetaostinn í krukkunum og Bónus sýrða rjómann. Allt eru þetta nýjar vörur sem við erum að taka inn og allar eru þær mun ódýrari en sambærilegar vörur sem hafa verið til á markaðnum áður. Okkar viðskipta- vinir eiga það skilið að við hlaupum okkur móð alla daga.“ Neytendur: Líkar umbúðir eða hreinlega vörustuldur? Gunnars eða Bónus majónes? BÓNUS MAJONES OG GUNNARS MAJONES SKOÐANAKÖNNUN 1,6 prósent seg- ist myndu kjósa L-listann og 2,0 prósent styðja Borgarahreyfing- una, samkvæmt nýrri skoðana- könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Báðar fylkingar mælast nánast einungis á höfuðborgarsvæðinu og eru aðeins vinsælli meðal karla en meðal kvenna. Ný framboð hafa nánast alltaf byrjað hærra í skoðanakönnunum en úrslit úr kosningum segja til um. Fyrir síðustu kosningar mæld- ist Íslandshreyfingin til dæmis í fyrstu könnun sinni með fylgi upp á fimm prósent, en fékk 3,3 pró- sent í kosningunum. „Þetta sýnir örugg tök fjór- flokksins,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórn- málafræði við HÍ. „Mótmæla- bylgjan birtist sem vinstri sveifla, frekar en í nýjum flokkum.“ Hann segir að þau nýju framboð sem hafa haft nokkuð fylgi í upphafi, líkt og framboð Vilmundar Gylfa- sonar, Kvennalistinn og Borgara- flokkur Alberts Guðmundssonar, hafi öll átt í erfiðleikum með að halda því fylgi fram að kjördegi. „En hér er ekki einu sinni um slíkt að ræða.“ Þriðja framboðið sem ekki myndi ná manni inn er Frjálslyndi flokkurinn, en 2,2 prósent segjast styðja þann flokk, sem er sama hlutfall og fyrir hálfum mánuði. Litlar breytingar eru á fylgi ann- arra flokka frá því fyrir hálfum mánuði, og allar innan skekkju- marka. Samfylking bætir við sig 2,3 prósentustigum og segjast nú 33,0 prósent styðja flokkinn. Því fengi Samfylking 22 þingmenn væri kosið nú. Sjálfstæðisflokkurinn dalar örlítið frá síðustu könnun, um 1,3 prósentustig. 26,9 prósent segj- ast nú myndu kjósa flokkinn sem myndi færa honum 18 þingmenn. Vinstri græn halda áfram að dala, nú um 2,7 prósentustig. 21,7 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn. Ef það væri niðurstaða kosninga væru þingmenn flokks- ins 15. Framsóknarflokkurinn hins vegar stendur í stað frá síðustu könnun. 12,3 prósent segjast nú myndu kjósa flokkinn og myndi það færa honum átta þingmenn. Hringt var í 800 manns, miðviku- daginn 11. mars og spurt; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið væri til kosninga nú? Óákveðnir voru spurðir; Hvaða lista er lík- legast að þú myndir kjósa? Þeir sem enn voru óákveðnir voru þá spurðir; Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða ein- hvern annan flokk. 69,3 prósent tóku afstöðu til spurningarinn- ar. Af öðrum sögðust 10,6 prósent ekki myndu kjósa eða skila auðu. 11,0 prósent voru óákveðin og 9,1 prósent vildu ekki svara spurning- unni. svanborg@frettabladid.is Borgarahreyfing og L-listi ná ekki flugi Nýju framboðin tvö myndu ekki ná manni inn á þing, samkvæmt nýrri skoð- anakönnun Fréttablaðsins, hvort með um tveggja prósenta fylgi. Sýnir örugg tök fjórflokksins, segir prófessor í stjórnmálafræði. Lítil breyting hjá öðrum. Minna kólesteról www.ms.is Benecol er náttúrulegur mjólkurdrykkur sem lækkar kólesteról í blóði. Mikilvægt er að halda kólesterólgildum innan eðlilegra marka því of hátt kólesteról í blóði er einn helsti áhættuþáttur kransæðasjúkdóma. Ein flaska á dag dugar til að ná hámarksvirkni. A T A R N A Komdu í heimsókn og gerðu góð kaup. Skoðið tilboðin á heimasíðu okkar, www.sminor.is. Tæki færi í mars Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is EFNAHAGSMÁL „Græðgin varð skynseminni yfirsterkari. Áhættusækni og óhóf varð ein- kenni alltof margra fyrirtækja og alltof marg- ir forystumenn atvinnulífsins misstu fótanna í þessum takti,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í ræðu sinni á viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í gær. Jóhanna sagði ábyrgð stjórnvalda og eftir- litsstofnana ríka en „ekkert af þessu réttlæt- ir hins vegar þau vinnubrögð og þær aðferðir sem beitt var af hálfu athafnamanna“. Jóhanna trúir því að aðeins með inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru yrði stöð- ugleiki íslensks efnahagslífs tryggður til lang- frama. Hún skoraði á alla flokka að gera strax grein fyrir skoðun sinni á því hvort sækja ætti um aðild að ESB. Jóhanna sagði að horfa þyrfti gagnrýnum augum á ríkisreksturinn. „Við eigum að horfa til þess hvort ekki sé hægt að fækka ráðuneyt- um og sameina þau og einfalda stjórnkerfið. [...] Við eigum að sameina stofnanir þvert á ráðuneyti og fækka yfirstjórnum þeirra. Við eigum einnig að horfa til fækkunar á þing- mönnum og kæmi mér ekki á óvart að stjórn- lagaþingið, ef það kemst á, legði það til.“ Hún sagði ekki tímabært að losa um gjald- eyrishöftin. Til þess þyrfti að eyða óvissu sem einkennir efnahagslífið og einnig þyrfti niður- staða að liggja fyrir um skuldastöðu þjóðar- búsins. Hún telur að viðreisn efnahagslífsins sé hafin. - shá Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að viðreisn efnahagslífsins sé hafin: Græðgin varð skynseminni yfirsterkari FORSÆTISRÁÐHERRA Jóhanna Sigurðardóttir kom víða við í ræðu sinni og hét fundargestum stuðningi í að byggja upp frjálslynt velferðarsamfélag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 40 35 30 25 20 15 10 5 % Fylgi stjórnmálaflokkanna Samkvæmt könnunum Fréttablaðsins frá kosningum 2007 til 11. mars 2009. 8,0 36,6 26,8 14,3 11,7 7,3 36,0 40,2 32,6 14,2 5,9 2,2 19,2 22,1 2,2 12,3 21,7 26,9 33 2,0 1,6 12 . m aí 20 07 15 . m aí 20 07 29 . s ep t. 20 07 30 . j an . 2 00 8 23 . f eb . 2 00 8 19 . a pr íl 20 08 21 . j ún í 2 00 8 25 . o kt . 2 00 8 22 . n óv . 2 00 8 22 . j an . 2 00 9 27 . f eb . 2 00 9 11 . m ar s 2 00 9 Ko sn in ga r Ætti ríkið að útvega eldtrausta geymslu undir handrit íslenskra tónskálda? Já 64% Nei 36% SPURNING DAGSINS Í DAG Hefur þú stundað sjósund? Segðu skoðun þína á vísir.is SKV. KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 11.3.‘09 KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.