Fréttablaðið - 13.03.2009, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 13.03.2009, Blaðsíða 16
16 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Sjaldgæf sjón blasir stund- um við Eyjamönnum þegar sjómaður brunar í kringum eyjarnar á brimbretti sínu. Guðmundur Vigfússon sjómað- ur stundar brimbretti í sjónum við Vestmannaeyjar. Guðmund- ur byrjaði að stunda brimbrett- ið fyrir nokkrum árum síðan og hefur ekki getað slitið sig úr sportinu og hefur stundað það bæði hérlendis og erlendis þar sem hann hefur starfað sem sjó- maður. Nú er hann kominn með glænýtt bretti sem er algjör nýj- ung á Havaíeyjum. „Þetta er frekar langt og stórt bretti og svo er ég með ár til að ná öldunum fyrr. Þá þurfa þær ekki að vera jafn góðar,“ segir Guðmundur. Hann hefur búið í mörg ár í Vestmannaeyjum og segir að aðstæður þar séu mjög góðar. „Það er leyndardómur- inn við þetta. Aðstæðurnar við Ísland geta oft verið miklu betri en maður heldur,“ segir hann. Guðmundur segir að bestu aðstæðurnar skapist þar sem straumur í sjónum kemur upp að grynningu, þá lyfti aldan sér upp og verði brött. En hann segir að líka sé hægt að vera í fjöru og mikið sé af góðum brettafjörum við Ísland. „Við erum úti í miðju Atlantshafinu og það er nóg af róti.“ Hitastig sjávar getur farið niður í örfáar gráður yfir vet- urinn en Guðmundur segir að það skipti ekki miklu máli fyrir ástundun sportsins. Aðalmálið sé lofthitinn. „Við búum í köldu lofti og það eru ekkert margir sem sækja í það að klæða sig í og úr blautum galla í frosti,“ segir hann. Guðmundur klæðist blautbún- ingi á brimbrettinu og segir lík- amann fljótan að kólna niður ef kalt er í veðri en það venjist fljótt. „Þetta er eins og að vera sjó- maður, manni er kannski kalt á puttunum til að byrja með en eftir nokkur ár er maður orðinn vanur þessu,“ segir hann. ghs@frettabladid.is AÐSTÆÐUR BETRI „Aðstæðurnar við Ísland geta oft verið miklu betri en maður held- ur,“ segir Guðmundur Víglundsson sjómaður. MYNDIR/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON Brunar á brimbretti við Eyjar VÍGALEGUR Á BRETTINU Guðmundur er vígalegur á brettinu í blautbúningi með hjálm og ár til að ná öldunum fyrr. Hann segir líkamann fljótan að kólna niður ef kalt er í veðri. SKÓLAR „Nemendur eru afskap- lega þakklátir,“ segir Lárus H. Bjarnason, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. Þar er gerð tilraun með ókeypis hafragraut á morgn- ana. „Þetta hefur áður verið nefnt í hálfkæringi og ég ákvað bara að taka af skarið. Hafragrautur er ekki dýr vara og mér þótti þetta eiga vel við á þessum tíma þótt ég líti ekki eingöngu á þetta sem kreppuráðstöfun,“ segir rektor. Tilraunin hófst í síðustu viku. Fram á vor eiga nemendur kost á ókeypis hafragraut alla morgna nema á mánudögum. Grauturinn er gerður í eldhúsi starfsmanna og framreiddur af rektor og öðrum skólastjórnendum. Lárus segir að fyrsta daginn hafi færri en hundr- að þegið hafragrautinn en aðsókn- in hafi stigvaxið og nú fái um tvö hundruð sér graut. „Það kom mér þægilega á óvart því fyrirfram hafði maður haldið að hafragraut- ur væri ekki matur að allra skapi.“ - gar Nemendur í MH þakklátir fyrir nýja tilraun hjá rektor: Hafragrautur slær í gegn Í ASKANA LÁTINN Lárus H. Bjarnason, rektor MH, skammtaði nemendum heitan hafragraut í morgunmat í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Eins og alltaf þegar íslenskur maður fær þessa spurningu er svarið „allt gott“ það eina sem gildir,“ segir Hafþór Ragnarsson, verkefnastjóri hjá Blindrabókasafninu og fyrrverandi skáld. „En stærsta málið þessa dagana er fyrirhug- uð staðfesting sonar míns á skírn sinni sem fór fram árið 1996, sem sagt ferming og veisla á eftir með öllu tilheyr- andi hinn 9. apríl næstkomandi. Það vill svo skemmtilega til að ferming- una ber upp á afmælisdag hins frábæra knatt- spyrnumanns Robbie Fowler, og vonast ég auðvitað til þess að son- urinn eigi eftir að feta í fótspor hans. Ég býst þó ekki við að það verði sígarettur í skríni á borðinu eins og var í minni fermingarveislu,“ segir Hafþór og yljar sér við minninguna. Hluti af starfi Hafþórs felst í að lesa inn hljóðbækur. „Ég var að ljúka við að lesa Rökkurbýsnir eftir Sjón og fannst hún bara rökkur-býsna góð. Sautjánda öldin sem sögutími vekur mönnum oft ugg en þetta er stór- skemmtilegur tími í sögu okkar, enda fátt eins heillandi og illa lyktandi kuklarar. Svo stendur fyrir dyrum fyrsta leikhús- ferðin mín í tvö ár og varð Dubbeldusch eftir hinn ágæta Björn Hlyn í Hafnarfjarðarleik- húsinu fyrir valinu.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HAFÞÓR RAGNARSSON VERKEFNASTJÓRI Fyrsta leikhúsferðin í tvö ár Allur varinn hafður á „Það var gerð svona hnakkaprufa, við fengum nokkra menn sem hafa ekk- ert pælt í svona málum til að horfa á myndina og þeir voru alveg gapandi.“ ANDRI SNÆR MAGNASON UM KVIKMYNDINA DRAUMALANDIÐ, SEM FRUMSÝND VERÐUR INNAN SKAMMS. Morgunblaðið, 12. mars. Bláþúfa „Íslandsmeistarinn í snjó- brettum segir að eftir þetta séu Bláfjöllin bara þúfa í samanburði.“ UNNAR GARÐARSSON, EIGANDI ÓBYGGÐAFERÐA, SEM BJÓÐA UPP Á BRETTAFERÐIR Á HEKLU. Fréttablaðið, 12. mars. Efnilegustu og áhugasömustu skákkrakkar landsins munu taka þátt í skákmóti í Stykkishólmi laugardaginn 14. mars á afmæl- isdegi Árna Helgasonar, heið- ursborgara Stykkishólms, en hann hefði orðið 95 ára þennan dag. Mótið er haldið í minningu hans og þess æskulýðsstarfs sem hann vann í Stykkishólmi um áratugaskeið. Meðal keppenda er 20 manna hópur úr Rimaskóla en í þeim hópi eru nemendur sem eru Norðurlandameistarar grunn- skóla í skák og Íslandsmeistar- ar barnaskólasveita árið 2009. Börn og unglingar sem tekið hafa þátt í Evrópu- og heims- meistaramótum barna á vegum Skáksambands Íslands taka þátt í mótinu auk fulltrúa frá skákfé- lögum víðs vegar um land sem teflt hafa um þátttökurétt í sinni heimabyggð. Teflt til heiðurs Árna Helgasyni TIL HEIÐURS ÁRNA Ungir skákmenn munu spreyta sig um helgina. ■ Gosdrykkurinn Fresca naut eitt sinn mikilla vinsælda hér á landi, þótt nokkuð hafi dregið úr vinsældunum hin síðari ár. Lyndon B. Johnson, 36. forseti Bandaríkjanna, var mikill Fresca- aðdáandi. Samkvæmt sagn- fræðingnum Doris Kearns Goodwin hélt forsetinn svo mjög upp á drykkinn að hann lét koma fyrir sér- stökum Fresca-takka á skrifborðinu sínu í Hvíta húsinu. Ef Johnson ýtti á takkann var þess ekki langt að bíða að aðstoð- armaður hans kæmi hlaupandi með ískalt Fresca í glasi til að svala þorsta forsetans. FORSETAFRESCA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.