Fréttablaðið - 13.03.2009, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 13.03.2009, Blaðsíða 62
46 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ? LÁRÉTT 2. teikning af ferli, 6. kyrrð, 8. drulla, 9. upphrópun, 11. bókstafur, 12. mátt- ur, 14. guð, 16. innan, 17. líða vel, 18. fálm, 20. tveir eins, 21. fullnægja. LÓÐRÉTT 1. íþróttafélag, 3. guð, 4. vöxtur, 5. af, 7. lausbeislaður, 10. temja, 13. svelg, 15. réttur, 16. upphrópun, 19. svörð. LAUSN LÁRÉTT: 2. graf, 6. ró, 8. aur, 9. aha, 11. ká, 12. megin, 14. faðir, 16. út, 17. una, 18. fum, 20. gg, 21. fróa. LÓÐRÉTT: 1. fram, 3. ra, 4. aukning, 5. frá, 7. óheftur, 10. aga, 13. iðu, 15. ragú, 16. úff, 19. mó. „Aldrei séð annað eins. Mesta sala sem við höfum upplifað,“ segir Kristján B. Jónasson formað- ur Félags íslenskra bókaútgef- enda. Bókamarkaðurinn í Perlunni sem nú er yfirstandandi hefur slegið í gegn meðal lands- manna. Nú þegar hafa verið seldar hundrað og fimmtíu þúsund bækur. Að rúm- máli eins og tut- tugu vörubílar. Kristján talar um þetta sem stórbrotið ævin- týri hjá bóka- þjóðinni sem kaupir bækur eins og hún hafi aldrei heyrt talað um að hér sé kreppa. „Þetta eru skemmtilegar tölur. Þetta virðist lóg- ískur framhandleggur á þeirri þróun sem verið hefur. Sala á bókamarkaði hefur verið að aukast jafnt og þétt, ár frá ári, undanfarið. En við upplifum það mjög sterkt að fólk virðist hafa meiri tíma. Er að vinna minna en áður. Áður heyrði maður að fólk vildi gjarnan lesa þetta og hitt en hafði ekki tíma til þess áður,“ segir Kristján. Bókamarkaðurinn hefur verið við lýði allt frá árinu 1958. Sú breyting hefur orðið að bókabúð- ir og útgefendur hafa ekki haft rými til að hafa í boði alla þá titla sem þeir vildu. En á bókamarkaði er úrvalið frábært. „Við reyndar verðum einnig vör við aukna sölu í bókabúðunum sjálfum,“ segir Kristján sem telur engan vafa á leika að lestur meðal Íslendinga sé mjög að aukast. Bókamarkaðurinn stendur í hálfan mánuð og lýkur á sunnudag. - jbg Algjör metsala á bókamarkaðinum í ár BÓKAMARKAÐURINN SLÆR Í GEGN Aldrei hafa fleiri bækur selst en núna og þegar eru farnar hundrað og fimmtíu þúsund bækur. KRISTJÁN B. JÓNASSON Telur einsýnt að lestur sé að aukast hjá bókaþjóð- inni, ekki síst því hún virðist hafa betri tíma en oft áður. „Þetta er nú bara gott dæmi um hvað landsbyggðin getur boðið upp á góða þjónustu við sitt fólk,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitar- stjóri í Hrunamannahreppi. Ísólf- ur, sem er annálaður stuðpinni og gleðimaður, fær að líkindum góða ástæðu til að brosa breitt í vor því nú bendir allt til þess að hreppstjórinn fái góða granna þegar ÁTVR opnar vínbúð í gamla bankahúsinu á Flúðum við Akur- gerði 4. Svo skemmtilega vill til að á efri hæð hússins er íbúð þar sem sveitarstjóri býr alla jafnan. Ísólfur var staddur á ráðstefnu í Árnesþingi um menningartengda ferðaþjónustu og heimsækja landnámsbæinn Stöng þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Hann var brattur að vanda, sagði sveit unga sína hressa enda engin ástæða til annars. Vínbúð á Flúð- um verður eflaust mikil lyfti- stöng fyrir ferðaþjónustuna þar um slóðir enda er fjöldi sumarbú- staða þar í grennd og staðurinn vinsæll áningastaður hjá ferða- mönnum yfir sumarið. Ísólfur sagði þetta þó allt óstað- fest enn sem komið væri, meiri líkur en minni væru þó á að þetta gengi eftir. Hann upplýsti jafn- framt að gárungarnir í hreppn- um veltu því nú mikið fyrir sér hvort hönnun vínbúðarinnar yrði þannig úr garði gerð að sérstök lúga yrði fyrir sveitarstjórann inn í vínbúðina þannig að hann gæti auðveldlega teygt sig í góð vín þegar góða gesti bæri að garði eða þannig lægi á honum. Ísólfur gat enda ekki annað en viðurkennt að þetta gæti orðið töluverður munaður. „Allavega verður tiltölulega stutt fyrir mann að fara ef það vantar rauðvín með matnum.“ freyrgigja@frettabladid.is ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON: STUTT Í RAUÐVÍNIÐ Á FLÚÐUM Glaðbeittur sveitarstjóri fær vínbúð á neðri hæðina LÚGA INN Í VÍNBÚÐINA Ísólfur Gylfi Pálmason fær góða nágranna þegar Vínbúð verður opnuð á hæðinni fyrir neðan hann á Flúð- um. Ísólfur segir gárungana í hreppnum nú velta því fyrir sér hvort sérstök lúga verði fyrir sveitarstjórann inn í Vínbúðina. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR „Fyrir mér er það þrennt sem gefur lífinu gildi; kettir, karl- menn og kaffi, og stundum reyndar það fjórða – einkum á jólum og páskum – sem er Nóa- konfekt.“ Guðríður Haraldsdóttir blaðamaður í Helgarpóstinum 11. apríl 1996. „Kettirnir eru enn á lífi og kaffið alltaf jafn gott. Það fer nú ekki ofboðslega mikið fyrir karlmönnunum, það mætti alla vega vera meira enda er ég sómakvendi,“ segir Guðríður nú. „Það kom bara tilboð á föstudag- inn fyrir viku sem við gátum ekki hafnað. Við héldum fyrst að þetta væri bara eitthvert djók en svo komu þeir á mánudeginum til að fylgja tilboðinu eftir og við létum bara slag standa,“ segir Páll Gunnar Ragnarsson, annar eigandi hússins sem stendur við Laugaveg 22. Glöggir vegfarend- ur í miðbæ Reykjavíkur hafa tekið eftir því að bóhem-staðnum Kafka hefur verið lokað eftir skamman líftíma, um það bil einn og hálfan mánuð. Í staðinn munu eigendur Santa Maria opna þar nýjan veit- ingastað í dag. Kafka var nefndur eftir þýska skáldinu Franz Kafka sem lést langt fyrir aldur fram aðeins 41 árs að aldri og því má segja að staðurinn hafi fylgt fyr- irmyndinni eftir. Kafka var opnaður um miðjan febrúar og þá sagði rekstrarstjóri Kafka, Nuno Da Palma, að staður- inn ætti sífellt að taka breyting- um og þróast. Hann hefur vænt- anlega ekki grunað að þróunin yrði sú að staðnum yrði lokað með jafn skömmum fyrirvara og raun ber vitni. Fréttablaðið hafði sam- band við Nuno vegna málsins og hann viðurkenndi að lokunin hefði komið honum spánskt fyrir sjón- ir. Páll Gunnar segir að haft hafi verið samband við alla sem að Kafka komu um leið og samning- ar voru frágengnir og segir því að lokunin hafi ekki átt að koma nein- um á óvart. „Þetta bar einfaldlega brátt að. Þeir á Santa Maria eru góðir í sínu fagi og þetta minnk- ar bara álagið á manni að vita af staðnum í svona góðum höndum.“ David Kordek hjá Santa Maria staðfesti að þetta hefði átt sér lít- inn aðdraganda. „Ég held að þetta verði nýtt upphaf fyrir þennan stað,“ segir Kordek. Skiptin hafa engin áhrif á rekstur Barbara sem rekinn er á efri hæð Laugavegs 22 og Frímann Sigurðsson, rekstrar- stjóri Barbara, hlakkaði til að fá nýja nágranna. „Núna eykst gleðin í húsinu, Santa Maria-menn verða eflaust góðir grannar.“ - fgg Kafka varð ekki langlífur SKEMMTISTAÐNUM KAFKA LOKAÐ Nuno da Palma, rekstrarstjóri Kafka, kom að lokuðum dyrum þegar bóhem- staðnum Kafka var lokað eftir stuttan líftíma. Eigendur Santa Maria hafa tekið við keflinu og opna nýjan stað í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Gleðipinninn Jonathan Rich- man mun halda tónleika á Kaffi Rósenberg 1. apríl og seljast miðar á þann viðburð vel enda margir hér á Íslandi sem kunna vel að meta þennan einstaka tónlistarmann. Grímur Atlason sveitarstjóri er Jonathan innan handar með tónleikahaldið og þegar tónlistar- maðurinn fór fram á að fá að spila fyrir menntskælinga datt Grími fyrst í hug að leita til síns skóla, MH, og taldi þá þar helst vera spennta fyrir Jonathan. En þar skjöplaðist honum, MH-ingar töldu sig ekki geta tekið á móti honum en það gera hins vegar MR-ingar sem taka slíkri heimsókn fagnandi. Og mun Jonathan Richman því að öllum líkindum halda tónleika í MR. Ekkert lát er á neikvæð- um fréttum um Ísland í erlendum fjölmiðlum. Þannig var nýlega á dagskrá í Ástralíu þáttur sem bar yfirskriftina „Icelandic Frosen Future“ en þar var um að ræða hið ástralska Date Line. Ekki aðeins að hagkerfið sé gaddfreðið heldur virðist allt stefna á verri veg hvað náttúrufar varðar. Meðal þeirra sem teknir eru tali í þættinum er sjálfur Ómar Ragnarsson. Almannatengillinn Andrés Jóns- son er nú í óðaönn að fara yfir umsóknir sem bárust um starf almannatengils hjá fyrirtæki hans, Góðum samskiptum. Vinnan ætti að geta verið ærin því 70 umsóknir bárust um starfið. Og Andrés tekur þetta engum vettlingatökum held- ur útbjó sérstakt almannatengsla- próf sem hann lætur lokaúrtak umsækjenda þreyta og er það eitthvað í ætt við blaðamannapróf þau sem dagblöðin hafa látið sína umsækjend- ur taka. - jbg, jma FRÉTTIR AF FÓLKI . Fiskikóngurinn er... Fiskverslun sem gaman er að koma í :) STÓR HUMAR SUSHI Ferskt sushi alla föstuda ga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.