Fréttablaðið - 13.03.2009, Blaðsíða 25
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég hef nú oft verið nefnd kart-
öflukonan á Íslandi,“ segir Sigríð-
ur Valdís Bergvinsdóttir glaðlega
en hún er dóttir kartöflubónda og
því alin upp við kartöflurækt.
Hún segist alltaf hafa verið hrif-
in af kartöflum og noti þær mikið í
matseld. „Það lá því beint við að fá
mig til að sjá um að hefja kartöfl-
una á hærra plan á alþjóðlegu ári
kartöflunnar árið 2008,“ segir Sig-
ríður sem var tilnefnd til samfé-
lagsverðlauna Fréttablaðsins fyrir
að stýra átakinu af miklum metn-
aði og fyrir að sýna mikinn frum-
leika í kynningarstarfi sínu.
Sigríður gefur hér lesendum
tvær uppskriftir, annars vegar
að innbökuðum kartöflum og hins
vegar að kartöflulummum.
„Ég ólst upp við að fá alltaf eftir-
rétt í sveitinni, það tíðkast nú ekki
hjá manni í dag, en er þó skemmti-
legt til tilbreytingar,“ segir Sigríð-
ur en lummurnar eru að hennar
sögn gömlu góðu ömmulummurn-
ar en bara búið að bæta kartöflum
út í þær. solveig@frettabladid.is
Oft nefnd kartöflukonan
Sigríður Valdís Bergvinsdóttir var útnefnd til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins fyrir að hefja kartöfluna
á hærra plan á ári kartöflunnar árið 2008. Hér gefur hún lesendum uppskriftir að góðum kartöfluréttum.
Sigríður Valdís Bergvinsdóttir heldur mikið upp á kartöflur og er hér með tvo kartöflurétti. Innbakaðar kartöflur og kartöflulumm-
ur í eftirrétt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
LUMMUR OG INNBAKAÐAR KARTÖFLUR
með íslensku grænmeti og kartöflubollum FYRIR 6
KARTÖFLURÉTTUR
800 g kartöflur
2 gulrætur
1 paprika
fersk steinselja og blóð-
berg.
1 stk. piparostur
¼ l rjómi
1 kg folaldakjöt
Gerdeig
5dl vatn
400 g hveiti
300 g íslenskt byggmjöl
(Þorvaldseyri)
300 g soðnar kartöflur
stappaðar
1 bréf þurrger
1 tsk. salt
½ dl ólífuolía
Allt hráefni í gerdeig
sett í hrærivél og
hnoðað saman, látið
hefast í hálftíma, þá eru
mótaðar kúlur.
Kartöflurnar eru soðnar
og skornar í litla bita,
gulræturnar og papr-
ikan skorin smátt og
létt brúnað á pönnu,
steinselju bætt út í. Pip-
arosturinn er bræddur í
rjómanum, kartöflunum
og grænmetisblönd-
unni bætt út í ásamt
blóðberginu.
Skerið kjötið í bita og
brúnið í olíu á pönnu,
saltið og piprið. Sjóðið
kjötið í um 30 mínútur,
bætið salti og pipar út
í vatnið eftir þörfum.
Látið nokkur lárviðar-
lauf út í. Hristið saman
vatn og hveiti og jafnið
sósuna beint í pottinn
og setjið sósulit út í.
Takið 8 kúlur af gerboll-
unum, fletjið þær út og
setjið kartöflufyllingu
innan í og búið til
hálfmána, setjið á plötu
ásamt gerbollunum,
penslið með eggi, stráið
fræjum að vild yfir og
bakið í ofni við 200
gráður í 20 mínútur.
KARTÖFLULUMMUR
500 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. natron
½ tsk. salt
7 dl mjólk
300 g soðnar kartöflur
stappaðar
vanilludropar.
Steiktar á pönnu og
bornar fram heitar
með rabarbarasultu og
ískúlu.
SKAFTFELLINGAMESSA verður í Breiðholts-
kirkju í Mjódd klukkan 14 á sunnudaginn en þetta
er fjórða árið í röð sem messan er haldin. Félagar úr
kirkjukórum Austur-Skaftafellssýslu koma að austan og
taka þátt í messunni ásamt sóknarprestum sínum.
H
ri
n
g
b
ro
t
framlengt til 29. mars
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður
bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem
unna góðum mat á góðu verði.
Tilvalið fyrirárshátíðina!
HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“
með fíkjum, salati og ferskum parmesanosti
RJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPA
með humarfrauði
MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINI
með ristuðu grænmeti, kartöflumauki
og hunangskryddsósu (4.590 kr.)
ÖND
með appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.)
NAUTALUND
Béarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati
og sperglum (6.590 kr.)
LOGANDI CRÈME BRÛLÉE
með súkkulaði ís
1
2
3
4
VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA
Nýr A la Carte hefst 30. mars!