Fréttablaðið - 13.03.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
7.53 13.37 19.23
7.39 13.22 19.06
Í dag er föstudagurinn 13. mars,
72. dagur ársins.
14.900,-
25%
AFSLÁ
TTUR
30%
ALLAR
RIMLA
GARD
ÍNUR
AFSLÁ
TTUR
39.900,-
20%
ÖLL
SKRIF
BORÐ
AFSLÁ
TTUR 20%
AFSLÁ
TTUR
U.Þ.B.
1.990,-
1.690,-
1.990,-
FRÁBÆ
RT
VERÐ
!
1.990,-
20%
ALLIR
SKRIF
BORÐ
SSTÓ
LAR
AFSLÁ
TTUR
Það bregst ekki að einhvern tíma um mitt sumar sýnir Ríkissjón-
varpið myndir frá nautahlaup-
inu í Pamplona í fréttatímanum.
Nautahlaupið er einn af þessum
viðburðum sem rata árlega í frétt-
irnar og alltaf verð ég jafn hissa
á að heilt ár sé liðið frá því síð-
ast. Það sama á við um fréttir af
tómataslagnum í spænska bænum
Bunol, kjötkveðjuhátíðinni í Ríó og
krossfestingum filippeyskra písl-
arvotta á föstudaginn langa. Mér
finnst þessir atburðir alltaf vera
í fréttunum þó ég viti mætavel að
frá þeim er aðeins sagt einu sinni
á ári.
ÉG VEIT að það er of snemmt en
síðan sól tók að hækka á lofti hef
ég staðið mig að því að fínkemba
síður dagblaðanna og hlusta ein-
beitt á hvern einasta útvarpsfrétta-
tíma í þeirri von að heyra uppá-
halds árvissu fréttina mína: Þá
að lóan sé komin. Mér finnst eins
og þessir Spánverjar séu alltaf að
slást með tómötum en eftir langan
og erfiðan vetur virðist óskaplega
langt síðan lóan lét sjá sig síðast.
REYNDAR hef ég ekki fylgst sér-
staklega vel með fréttum undan-
farnar vikur og mánuði. Ég gafst
einfaldlega upp í haust þegar ég sá
fram á að sökkva í ævilangt þung-
lyndi ef ég horfði á svo mikið sem
einn fréttatíma í viðbót. Fréttir um
kreppu, gjaldþrot heimilanna, mis-
tök stjórnmálamanna, niðurskurð
og atvinnuleysi eru ekki upplífg-
andi í skammdeginu. Til að bæta
gráu ofan á svart virðumst við
ekki hafa áttað okkur á því hvað
við kölluðum yfir okkur þegar við
börðum í potta og hrærivélaskálar
og kröfðumst kosninga. Kosning-
um fylgja prófkjör og prófkjörum
fylgja grútleiðinlegar auglýsingar.
Það er því ekki nóg með að blöð-
in séu full af fúlum kreppufrétt-
um heldur hafa enn þá leiðinlegri
framboðsauglýsingar troðið sér
á milli þeirra svo mann langar
mest að loka sig inni, negla fyrir
bréfalúguna, rífa sjónvarpið úr
sambandi og koma ekki út fyrr en
vorar og kosningarnar, með öllu
sínu þófi, eru yfirstaðnar og ný
ríkisstjórn hefur skilað okkur inn
í annað góðæri.
EN AUÐVITAÐ geri ég það ekki.
Þá myndi ég kannski missa af
því þegar lóan syngur dirrindí í
beinni útsendingu í fyrsta sinn
eftir allt þetta rugl. Þá hlýtur eitt-
hvað skárra að taka við því eins
og segir í kvæðinu nær lóan ekki
aðeins að kveða burt snjóinn held-
ur leiðindi líka.
Burt með
leiðindin