Fréttablaðið - 13.03.2009, Page 8
8 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR
3.- 4.
sæti
birgir.is
Birgir
Ármannsson
alþingismaður
Kjósum
öflugan
baráttumann
í 3. - 4. sæti.
Stuðningsmenn
www.ellingsen.is
TB
W
A\
RE
YK
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
35–50
%
AFSLÁ
TTUR
AF
ÖLLU
M CO
LUMB
IA
FATNA
ÐI
COLUMBIA-
DAGAR
5.–14. mars
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
M
SA
4
53
50
0
3/
09
á 1 lítra
Kókómjólk
Gott
á brúsann!
FUNHEITT TILBOÐ
SAFNAMÁL Katrín Jakobsdótt-
ir menntamálaráðherra segir
brunann í Síðumúla 34 í fyrra-
dag varpa ljósi á húsnæðisvanda
stofnana sem hýsa og sýsla með
menningarverðmæti. Hún segir
húsnæðismál, og þá ekki síst
geymslumál, safna lengi hafa
verið í ólestri og knýjandi þörf
sé á að þeim sé sinnt. Fjármagn
liggur þó ekki á lausu og um lang-
tímaverkefni er að ræða, að henn-
ar mati.
„Geymslur undir menningar-
verðmæti í hvaða mynd sem er
þurfa sérhæft húsnæði. Það er
verið að horfa á alla möguleika,“
segir Katrín. En útilokar krepp-
an að það sé hægt að taka mynd-
arlega á húsnæðisvanda safna,
stórra sem smárra? „Ég held að
við munum ekki sjá neinar heild-
arlausnir næstu árin þegar litið
er til þess að litlum peningum er
til að dreifa. En við munum reyna
að finna fullnægjandi bráða-
birgðalausnir þannig að hlutirn-
ir liggi ekki undir skemmdum,“
segir Katrín.
Íslenskri tónverkamiðstöð (ÍT),
sem var til húsa við Síðumúla,
hefur verið gert að flytja starf-
semi sína í nýtt húsnæði að kröfu
tryggingafélags síns. Forstöðu-
menn ÍT hittu menntamálaráð-
herra í fyrradag og hyggst hún
leysa úr skammtímavanda þeirra.
Til lengri tíma litið ætlar Katrín
að skoða þann möguleika að starf-
semin verði til húsa í nýju tónlist-
arhúsi þjóðarinnar við Reykjavík-
urhöfn. „Ég ætla að láta skoða
hvort það er möguleiki. Það væri
spennandi kostur að þar væri virk
starfsemi sem tengist tónlist.“
Sigfríður Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ÍT, segir að trygg-
ingafélag stofnunarinnar hafi
lýst húsnæðið við Síðumúla óhæft
fyrir starfsemina í fyrradag. For-
vörður frá Þjóðarbókhlöðu er
þeim til ráðgjafar um flutningana
þar sem ekki er sama hvernig við-
kvæm skjöl eru búin til flutninga.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu
í fyrradag munaði litlu að 8.000
handrit íslenskra tónskálda yrðu
eldi að bráð. Um húsnæðisvanda
ÍT segir Sigfríður að mótaðar til-
lögur um húsnæðisþörf hafi legið
fyrir lengi. „Þetta hefur allt verið
lagt fyrir borg og ríki án þess að
nokkuð hafi komið út úr því.“
Sigfríður vonar að skilningur
skapist á því að fjármagn þurfi
til að ljúka skönnun gagnanna
svo hægt sé að vista þau á viðeig-
andi stað.
Ráðherra segir ljóst að litlu
munaði að stórmerkileg verð-
mæti færu forgörðum í brunanum
í Síðumúlanum. „ Þetta er mikil-
vægt mál sem verður að finna
farveg.“
svavar@frettabladid.is
Rík þörf að leysa úr
húsnæðisvandanum
Bruninn við Síðumúla varpar ljósi á húsnæðisvanda stofnana sem annast
menningarverðmæti. Menntamálaráðherra segir fjármagn ekki liggja á lausu.
Íslensk tónverkamiðstöð gæti fengið framtíðarhúsnæði í tónlistarhúsinu nýja.
FLUTNINGAR Starfsmenn Íslenskrar tónverkamiðstöðvar unnu að því að flytja úr
Síðumúlanum í fyrradag. Mikið verk beið þeirra enda um 8.000 handrit að ræða
sem sum hver eru 300 blaðsíður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÞÝSKALAND, AP Þýsk lögregluyf-
irvöld birtu í gær afrit af net-
spjalli milli hins sautján ára Tims
Kretschmer og spjallfélaga hans,
sem fór fram sex klukkustundum
áður en sá fyrrnefndi lét til skar-
ar skríða.
Í afritinu kemur fram að fjölda-
morðinginn tilvonandi lýsti áform-
um sínum. Fram kemur í svörum
við þeim lýsingum Kretschmers
að spjallfélagarnir taka hann
ekki alvarlega. Einn svaraði með
skammstöfuninni „LOL“, sem
stendur fyrir „laughing out loud“
eða „sprenghlægilegt“.
„Bernd, ég er búinn að fá nóg,“
skrifar Kretschmer. „Ég hef feng-
ið mig fullsaddan af þessu lífi,
þetta er alltaf sama ruglið. Allir
hlæja að mér, enginn sér hvað í
rauninni í mér býr. Mér er alvara
Bernd – ég er með vopn hérna.
Snemma í fyrramálið ætla ég
að fara í gamla skólann minn og
grilla þau almennilega. Kannski
slepp ég líka. Vittu til, Bernd, þið
munuð heyra frá mér á morgun,
muna eftir nafni á stað sem kall-
ast Winnenden. Ekki blanda lögg-
unni í þetta, hafðu ekki áhyggjur.
Ég er bara að fíflast.“
Árásin í Winnenden, sem kost-
aði níu nema, þrjá kennara og
þrjá vegfarendur lífið auk árásar-
mannsins, hefur orðið til þess að
stjórnvöld í Evrópulöndum íhuga
að herða enn á lögum um vopna-
burð. - aa
Rannsóknin á skotárásinni í Þýskalandi sem kostaði sextán manns lífið:
Spjallaði um áformin á netinu
SORG Stúlka virðir fyrir sér kerti og blóm
sem íbúar Winnenden hafa lagt við skól-
ann þar sem harmleikurinn átti sér stað.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Verk að vinna
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík
13. og 14. mars.
www.sigurdurkari.is