Fréttablaðið - 13.03.2009, Page 10
10 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Ferðabox
Pacific 100139 x 90 x 39 cm370 L43.900.-
EVRÓPUMÁL Aðild Íslands að Evr-
ópusambandinu myndi opna fyrir
nýja möguleika fyrir sveitarfélög
á Íslandi, en forsenda fyrir því að
nýta þá möguleika sem skyldi er
að Íslendingar vinni heimavinn-
una fyrir aðildarviðræður mark-
visst og vel. „Veldur sem á heldur,“
sagði Anna Guðrún Björnsdóttir,
sviðsstjóri þróunar- og alþjóða-
sviðs Sambands íslenskra sveitar-
félaga, á málfundi sem fram fór
á vegum Alþjóðamálastofnunar
Háskóla Íslands í gær undir yfir-
skriftinni „Sveitarfélögin og ESB:
Felast tækifæri í ESB-aðild?“
Anna Guðrún flutti framsöguer-
indi um áhrif Evrópusambandsað-
ildar á íslenska sveitarstjórnarstig-
ið, en Anna Karlsdóttir, lektor við
HÍ, flutti annað framsöguerindi um
atvinnuþróunarmál í Evrópusam-
bandinu og reynslu danskra sveit-
arfélaga af þátttöku í stefnumótun
og verkefnum á því sviði.
Mat á þeim möguleikum sem
íslenskum sveitarfélögum byðust
við inngöngu í ESB er að sögn Önnu
Guðrúnar að miklu leyti undir því
komið hvernig Ísland og einstök
landsvæði yrðu skilgreind inn í
byggðastefnu ESB. Þrátt fyrir til-
tölulega háar meðaltekjur á mann
í samanburði við meðaltalið í ESB
væri samkvæmt reglum sambands-
ins sérstaða strjálbýlla jaðarsvæða
viðurkennd, sem óvefengjanlega
myndi eiga við um Ísland og ein-
staka landshluta hérlendis. - aa
Hagsmunir íslenskra sveitarfélaga og hugsanleg aðild að Evrópusambandinu:
Myndi opna á nýja möguleika
TÆKIFÆRI Anna Guðrún Björnsdóttir hjá
Sambandi ísl. sveitarfélaga.
ÍRAK, AP Íraski fréttamaðurinn
sem henti skóm sínum að George
W. Bush, þáverandi Bandaríkja-
forseta, á blaðamannafundi í
Bagdad í desember var í gær
dæmdur í þriggja ára fangelsi
fyrir „árás á erlendan þjóðhöfð-
ingja“.
Dómnum var almennt illa tekið
meðal almennings í Írak, enda
líta flestir landar „skókastar-
ans“, Muntadhar al-Zeidi, á hann
sem þjóðhetju. Könnun sem nið-
urstöður voru birtar úr í gær
sýndi að yfirgnæfandi meirihluti
Íraka er þessarar skoðunar.
Hinn þrítugi fréttamaður lýsti
sig saklausan af árásarákærunni;
það sem hann gerði hefði einfald-
lega verið „eðlileg viðbrögð við
hernáminu“. - aa
Fréttamaður dæmdur í Írak:
Þrjú ár í fang-
elsi fyrir skókast
FRÆGÐARKASTIÐ Al-Zeidi kastar skó
sínum að Bush á blaðamannafundi í
Bagdad 14. desember sl. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Maður á þrítugsaldri
hefur verið dæmdur í sekt fyrir
að valda tjóni á íbúðarhúsi lög-
regluvarðstjóra í Vestmannaeyj-
um og hóta að skera hann á háls.
Kona var einnig sektuð vegna
athæfisins.
Maðurinn kastaði grjóti í hús
lögregluvarðstjórans með þeim
afleiðingum að rúða brotn-
aði. Konan hafði hvatt hann til
skemmdarverkanna.
Í lögreglubíl skömmu síðar
réðst maðurinn með hótunum að
varðstjóranum og kvaðst ætla
að skera hann á háls. Maðurinn
greiðir hundrað þúsund krónur í
sekt og konan fjörutíu þúsund. - jss
Maður og kona dæmd:
Hótaði að skera
varðstjóra á háls
Mannrán í Darfúr
Vopnaðir menn rændu á miðvikudags-
kvöld þremur vestrænum hjálpar-
starfsmönnum og tveimur súdönskum
öryggisvörðum í Darfúr, viku eftir
að Súdanstjórn skipaði svo fyrir að
alþjóðleg hjálparsamtök yrðu að
gjöra svo vel að hypja sig úr landi. Þá
ákvörðun tók stjórnin í Kartúm í kjölfar
þess að alþjóðleg handtökuskipun
var gefin út á hendur Omar al-Bashir
Súdanforseta fyrir að bera ábyrgð á
glæpum gegn mannkyni í Darfúr.
SÚDAN
BORGARMÁL Hanna Birna Kristjáns-
dóttir borgarstjóri segir borginni
takast að hagræða um 2,3 millj-
arða á þessu ári án þess að skerða
grunnþjónustu, fækka starfsfólki
eða hækka gjaldskrár. Samkvæmt
tillögum um endurskoðun fjár-
hagsáætlunar, sem lögð var fram
á borgarráðsfundi í gær, verða
sparnaðartillögur borgarstarfs-
manna nýttar til að ná fram um
helming þessarar hagræðingar.
Meðal tillagna sem um ræðir er að
nota handklæði í leikskólum í stað
pappírsþurrkna og bjóða oftar upp
á hafragraut í
stað morg-
unkorns svo
dæmi séu
tekin. Einnig
verður gerð
breyting á
svokallaðri
viðbótar-
stund barna í
2. til 4. bekk en
hún er áður en eiginleg kennsla
hefst á morgnana. Sú breyt-
ing hefur enn ekki verið útfærð
nákvæmlega.
Ákveðið var við fjárhagsáætlun
í janúar að fara í viðbótarhagræð-
ingu sem næmi 2,3 milljörðum. 1,3
milljarða hagræðingu á að ná fram
með því að minnka yfirvinnu eins
og þegar hefur verið kynnt. Gert
var grein fyrir milljarðinum sem
upp á vantaði í gær. „Við ákváðum
að leita til starfsfólks okkar sem er
næst íbúum borgarinnar og þekk-
ir þarfir þess og spyrja hvern-
ig við náum þessum markmiðum
okkar um hagræðingu án þess
að skerða grunnþjónustu,
hækka gjaldskrár eða
segja upp starfsfólki,“
segir Hanna Birna. Um
1.500 hugmyndir bárust
og verða um 300 þeirra
nýttar nú strax. „Alls
tóku 3.000 starfs-
menn þátt í vinnunni
og verður henni framhaldið meðal
annars þannig að þeir geti fylgst
með framgangi eigin tillagna.“
Meðal annarra leiða sem beita skal
eru að draga úr sérfræðiþjónustu,
draga úr kostnaði við aðkeypta
þjónustu, reyna að ná hagstæðari
samningum við birgja með því að
samnýta innkaup margra sviða
og stofnana og draga úr viðhalds-
framkvæmdum.
Sigrún Elsa Smáradóttir, borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar, sem
einnig á sæti í framkvæmda- og
eignarráði, er ekki alls kostar sátt.
„Þetta er ekki í miklu samræmi við
það sem rætt hefur verið um
til þessa,“ segir hún. „Ég bíð
reyndar eftir frekari upp-
lýsingum um það hvernig
þessu verður háttað en ég
get nú þegar sagt að mér
líst illa á það að miklu
af niðurskurðinum á að
fást með því að skera
niður mannafls-
frekar viðhalds-
framkvæmdir sem
skýtur skökku við
þar sem meirihlut-
inn hefur talað fyrir
því að efla atvinnu-
stigið.“
jse@frettabladid.is
Borgin hagræðir með
bakstri og hafragraut
Tillögum starfsmanna verður beitt til að ná fram hagræðingu hjá borginni.
Meðal þeirra er að elda oftar hafragraut á leikskólum. Borgarfulltrúi minnihlut-
ans er ósáttur við að dregið verði úr mannaflsfrekum viðhaldsframkvæmdum.
HANNA BIRNA OG SIGRÚN ELSA Hanna
Birna Kristjánsdóttir segir að litið hafi
verið til allra þátta til að ná fram
hagræðingu hjá borginni; allt
frá hafragraut til viðhalds-
framkvæmda. Sigrún Elsa
Smáradóttir er ekki sátt.
Leikskólabörn baka sjálf brauð
■ Hafragrautur verður oftar á morgunverðarborðum leik-
skólabarna í stað morgunkorns sem er mun dýrara
■ Notuð verða handklæði í leikskólum í stað pappírsþurrk-
na (spara 7 milljónir á ári)
■ Starfsmenn fá launaseðla sína með rafrænum hætti en
ekki heimsenda í pappírsformi
■ Slökkt verður á tölvum starfsmanna meðan þær eru ekki
í notkun
■ Leikskólasvið setur upp skiptimarkað á húsgögnum
■ Samnýta innkaup milli sviða og stofnana borgarinnar
■ Draga úr viðhaldsframkvæmdum
Breyting á viðbótarstund barna í 2. til 4. bekk (Fyrirhugað
að spara um 80 milljónir en útfærsla er ekki enn fullmótuð,
ekki er um að ræða að þjónustan falli niður)
DÆMI UM HAGRÆÐINGARTILLÖGUR SEM NÁÐU FRAM AÐ GANGA