Fréttablaðið - 13.03.2009, Síða 26
2
„Við erum fjórir mjög ólíkir töfra-
menn sem ákváðum að setja saman
flotta sýningu fyrir fjölskylduna
þar sem heimur töfra og dirfsku
opnast áhorfendum,“ segir John
Thomasson töframaður og held-
ur áfram: „Ég er dularfullur sjón-
hverfingamaður sem lætur hluti
svífa, skýtur spilum um loftið og
gerir ótrúlega hluti. Lalli töfra-
maður er fyndinn en allt er að mis-
takast hjá honum, höndin að detta
af og svoleiðis. Pétur pókus er hins
vegar með hálfgert mikilmennsku-
brjálæði, mikið glimmer og drag-
andi dót út úr munninum á sér.
Lee, eða sirkustrúðurinn Wally, er
snillingur í sirkuslistum og sýnir
blöndu af líkamlegum hæfileik-
um og dirfskufullum, drungalegri
atriðum þar sem hann gengur á
gleri og þess háttar.“
Haldnar verða fjórar sýningar
í Iðnó. Sú fyrsta er í kvöld, föstu-
daginn þrettánda, klukkan 20.30,
tvær verða á morgun klukkan 15
og 20.30 og sú síðasta á sunnudag-
inn klukkan 16. „Við kostum þetta
allt sjálfir en miðaverð er ein-
ungis 1.000 krónur og er ætlað að
dekka kostnað við sýninguna. Ég
tel að allir þurfi á einhvers konar
töfrum að halda í sínu daglega lífi
til að trúa því að það sé tilgangur
með þessu öllu, að lífið sé meira en
bara það sem við sjáum með berum
augum eða snertum með fingrun-
um. Lífið er uppfullt af töfrum. Á
hverjum degi leynast kraftaverk-
in í kringum okkur og bíða
þess að við opnum með-
vitund okkar fyrir
þeim og metum.
Sýningin okkar,
Heimur töfra
og dirfsku, er
okkar leið til
að vekja fólk
til umhugsun-
ar um töfra lífsins,“
segir John einlægur og hvetur
fólk til að fleygja burt dapurleika
og uppnámi á þeim erfiðu tímum
sem margir ganga í gegnum um
þessar mundir. „Við komumst að
þeirri niðurstöðu um daginn að í
raun væri betra að láta bara
töframenn ljúga að
sér frekar en
stjórnmála-
menn,“
segir John
og hlær.
Kveikjan að
sýningunni var sú að John stefn-
ir á nám í töfraskóla í Las Vegas í
apríl. „Ég er að fara til eins besta
töfrakennara í heimi sem er búsett-
ur þar og heitir Jeff McBride. Þar
sem ég hef bara einu sinni áður
farið á svið langaði mig að koma á
fót sýningu sem ég gæti tekið þátt í
og hafði í framhaldinu samband við
hina töframennina sem sögðu allir
já. Þannig öðlast ég meiri reynslu
auk þess að skemmta öðrum í
góðum félagsskap,“ segir John
spenntur og hlakkar til kvöldsins.
Miðar fást á midi.is og í Iðnó.
hrefna@frettabladid.is
Minnum á töfra lífsins
Fjölskylduskemmtun í Iðnó stendur yfir nú um helgina en þar munu töframenn og sirkuslistamaður
halda uppi fjörinu fyrir jafnt unga sem aldna með sjónhverfingum, sprelli og áhættuatriðum.
Sirkustrúðurinn Wally
sveigir sig og beygir.
Hér sjást þrír af kostulegum töframönnum sem stíga á svið í Iðnó í kvöld og næstu
tvö kvöld. Lalli töframaður er hér í forgrunni en John og Pétur pókus fyrir aftan.
. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VESTURBÆJARSKÓLI verður með opið hús
á morgun í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Ýmsar
sýningar og uppákomur verða á göngum skólans en
nemendur, starfsfólk skólans og foreldrar hafa unnið í
sameiningu að undirbúningi.
Sérlega þægilegir dömuskór
úr leðri, skinnfóðraðir
Stærðir: 36 - 41
Litir: rautt, brúnt
Verð: 9.685.-
Stærðir: 36 - 41
Litir: Rautt, brúnt og svart
Verð: 9.685.-
stærðir: 37 - 41
Litur: svart
Verð: 14.450.-
Slys á börnum
– námskeið
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið
Slys á börnum 20. og 22. okt kl. 18-21 í Hamraborg 11, 2 hæð.
Á námskeiðinu er fjallað um varnir gegn slysum á börnum og
orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri.
Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu
tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna
á sjúkrahús o.fl.
Námskeiðið getur gagnast öllum þeim sem umgangast börn
hvort sem er í starfi eða daglegu lífi.
Námskeiðsgjald: 6.500 kr. á mann en 5.000 krónur ef maki eða
eldra systkini tekur líka þátt.
Leiðbeinandi er Sigríður K. Sverrisdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Innifalin eru námskeiðsgögn og þátttökuskírteini.
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur opið virka daga kl. 10-16
Frekari upplýsingar má fá með því að hringja í síma 554 6626
eða senda tölvupóst á kopavogur@redcross.is.
Skráning er til 14.mars
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið
Slys á börnum 23. og 24. mar kl. 18-21 í Hamraborg 11, 2 hæð.
ll varnir gegn slysum á börnum og
, r ska arna og slys sem tengjast aldri.
i j l við barnaslysum og áverkum af ýmsu
r , andlegu undirbúningi við komu barna
.
Ná skeiðið getur gagnast öllu þeim sem umgangast börn
hvort se er í starfi eða daglegu lífi.
Frekari upplýsingar fást í sí a 554 6626 eða
með tölvupósti á kopavogur@redcross.is.
ráning er til 20. mars.
Síðumúla 3 • Reykjavík • Sími 553 7355
Opið virka daga 11-18, laugard. 11-15
Frábært úrval af
AÐHALDSUNDIRFÖTUM
Ný sending
Auglýsingasími
– Mest lesið
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki