Fréttablaðið - 13.03.2009, Page 28

Fréttablaðið - 13.03.2009, Page 28
„Ég fékk hugmyndina að Kúpon þegar ég var staddur í Kanada fyrir jólin, verslaði grimmt og fékk mikla afslætti. Ég hafði áður verið búsettur í Bandaríkjunum og þá nýtt mér afsláttarmiða þar sem ég gat, og þá oft hugsað að vitaskuld ætti að vera sjálfsagður hlutur af daglegum innkaupum Íslendinga að geta nýtt sér afslætti án þess að þurfa að kaupa sig inn í sérstaka klúbba,“ segir Bóas Ragnar Bóasson, framkvæmda- stjóri og hugmyndasmiður Kúpon. is, sem opnaði með pomp og prakt í liðinni viku, eftir að hafa heim- fært áður vel þekkta hugmynd fyrir íslenska neytendur. „Vestra fékk ég afsláttarmiða senda heim í blöðum og aftan á kassakvittunum, en sá strax fyrir mér að Íslendingar færu seint með slík blöð út í búð. Því vildi ég koma afslætti fyrir á einum og sama staðnum og láta neytendum í té kort til að nýta sér afsláttinn,“ segir Bóas sem upphaflega ætlaði að senda landsmönnum íburðar- mikið plastkort með segulrönd, en ákvað að láta prenta ódýrari kort til að sýna fordæmi um sparnað. „Í staðinn setti ég strikamerki aftan á kortin til að fyrirtæki gætu líka notfært sér þau og fylgst með hversu mikið þau eru notuð. Við- brögðin hafa verið stórkostleg og við setið við símann linnulaust frá því á fimmtudag vegna ánægðra neytenda og fyrirtækja sem riðu á vaðið á kúpon.is. Sem dæmi má nefna hárgreiðslustofu sem allt fylltist hjá á fyrsta degi og net- verslun sem hefur vart undan að sinna nýjum viðskiptavinum,“ segir Bóas og bætir við að enn eigi Kúpon eftir að stækka og dafna. „Á Kúpon verða ýmsir undir- vefir, eins og smáauglýsingavef- ur og þjónustu- og útboðsvefur, og í gær fór af stað hönnunar- keppni þar sem við köllum eftir mynd á stutt ermabol sem gestir Kúpon gefa einkunn. Vinnings- hafinn hlýtur fartölvu frá EJS og í kjölfarið munum við selja bolinn á vefnum þar sem ágóðinn fer til góðgerðarmála.“ Á www.kupon.is fæst allt til heimilisins og með afslætti sem um munar. Sem dæmi má nefna lófasíma sem kostaði 60 þúsund, en fæst á 35.000 með afsláttar- miða. „Það má spara stórfé með notk- un afsláttarmiða og á vissum tímum ætla matvöruverslanir að bjóða allt að 70 prósenta afslátt af völdum vörum. Afsláttarkort hafa verið send inn á öll heimili í land- inu og afslættir hverju sinni sjást á heimasíðunni. Innan skamms verður svo hægt að safna saman í körfu því sem fólk langar að kaupa og prenta út innkaupalista með strikamerki.“ thordis@frettabladid.is Búbót sem munar um Það er ekkert hallærislegt við að spara, leita tilboða og láta launin duga til hnífs og skeiðar út mánuðinn. Nú má gera enn betur við budduna með afsláttarmiðum á öllum sviðum heimilisreksturs á Kúpon.is. KREM í túbum nýtist oft ekki jafn vel og það sem er í krukkum þar sem alltaf verður tölvert eftir í túbunni þó að hún sé kreist vel. Gott ráð er að klippa hana í sundur til að ná því sem eftir er. Bóas segist hafa gert reyfarakaup með afsláttarmið- um þegar hann bjó í Bandaríkjunum, þar sem mikil hefð er fyrir þeim. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA HÚSGAGNAVERSLUN V SÍMI 553 8177 & 553 14 heimilisprydi.is hallmuli@islandia.is HÚSGAGNAVERSLUN V/HALLARMÚLA 108 REYKJAVÍK SÍMI 553 8177 & 553 1400 heimilisprydi.is hallmuli@islandia.is Með vísun til laga nr. 73/2001 um fólks- og farmfl utninga, gengst Vegagerðin fyrir námskeiði vegna rekstarleyfi s til fólks- og farmfl utninga í Ökuskólanum í Mjódd dagana 23. til 28. mars n.k. Þátttaka tilkynnist til fyrir 20. mars til Ökuskólans í Mjódd í síma 567-0300 Rekstarleyfi til fólks- og farmfl utninga SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.