Fréttablaðið - 13.03.2009, Side 32
4 föstudagur 13. mars
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n Stjörnumerki:
Ljónynja.
Besti tími dagsins:
Mjög misjafnt en þykir ansi gott
að hafa rólegheit í morgunsárið og
gefa mér góðan tíma í að vakna og
borða góðan morgunmat.
Geisladiskurinn í spilaranum:
Duffy, Jeff Who og Bíum bíum.
Uppáhaldsverslunin:
Þar sem ég er mikið ljón þá versla
ég mikið skart og dúllerí í Kiss í
Kringlunni. Frábær búð þar sem
alltaf er hægt að finna eitthvað.
Annars er mjög misjafnt eftir
dögum hvar ég versla fötin mín.
Zara, Karen Millen. Oasis, Coast,
H&M og fleiri og fleiri.
Uppáhaldsmaturinn:
Sushi og dökkt súkkulaði. Hef oft
sagt að ég sé „Sushaholic“
og „choc-
oholic“.
Mesta dekrið:
Fara á góðan veitingastað í „ta-
sting menu og wine menu“.
Áhrifavaldurinn?
Foreldrar mínir eru tvímælalaust
mestu áhrifavaldarnir í mínu lífi.
Mesta freistingin:
Sushi og kampavín. Mmm ... fék
bara vatn í munninn við að skri
þetta. Hef bragðað hvorugt í
næstum sex mánuði.
Líkamsræktin:
Þessa mánuðina er ég í með-
gönguleikfimi í Fullfrísk og fer svo
Hreyfingu og sund inn á milli.
Birgitta Haukdal
gifti sig í haust og á
von á sínu fyrsta barni
í sumar. Hún hefur þó
hvergi sagt skilið við
tónlistina heldur flýgur
mánaðarlega til Dan-
merkur þar sem hún
leggur stund á kennara-
nám í complete vocal-
söngtækni.
Viðtal: Alma Guðmundsóttir
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
B
irgitta hefur svo
sannarlega látið að
sér kveða í íslenskri
tónlist allt frá því
að hún kom fyrst
fram á sjónvarsviðið með hljóm-
sveitinni Írafári. Hún hefur verið
fulltrúi okkar í Eurovision, leik-
ið í söngleikjum, gefið út 6 plöt-
ur svo eitthvað sé nefnt og leggur
nú stund á kennaranám í comp-
lete vocal-tækni í Danmörku. „Ég
flýg út einu sinni í mánuði og er
þar fimm daga í senn. Ég fór í árs
söngnám 2007 og byrjaði svo í
þriggja ára kennaranámi í fyrra.
Ég tímdi ekki að hætta eftir söng-
námið því ég fékk svo mikið út
úr því og finnst þessi tækni alveg
frábær. Mig langar að miðla henni
áfram og er að kenna mikið hér
heima meðfram náminu, ég er
nýlega farin að kenna bæði mast-
er-class-tíma fyrir hópa og tek
líka fólk heim í einkatíma, að lifa
á tónlist með söng og kennslu
er markmið mitt í framtíðinni,“
segir Birgitta sem söng einnig með
Stuðmönnum um árabil, þangað
til í fyrra. „Ég hætti á sama tíma
og Egill. Það var virkilega gaman
að syngja með þeim, en þegar
hann var farinn voru þetta ekki
lengur Stuðmenn í mínu hjarta
og þá fannst mér þetta ekki eins
spennandi,“ bætir hún við.
LEYNIGESTUR Í BRÚÐ-
KAUPINU
Birgitta er gift Benedikt Einarssyni,
eða Bensa. Þau kynntust fyrir sex
árum í söngleiknum Grease í Borg-
arleikhúsinu þar sem Birgitta lék
Sandy og Bensi lék þar minna hlut-
verk og dansaði, en hann er nú að
ljúka við mastersnám í lögfræði.
Þau giftu sig við hátíðlega athöfn í
Dómkirkjunni í október síðastliðn-
um, héldu glæsilega veislu í Turnin-
um og segir Birgitta brúðkaupsdag-
inn vera ógleymanlegan.
„Ég vissi alltaf að það væri ynd-
islegt að gifta sig, en hafði aldrei
grunað hvað þetta er stór stund.
Mín reynsla er sú að þetta var
miklu merkilegri dagur en ég hafði
búist við. Þegar fólk segist ekki ætla
að gifta sig hvet ég það samt til að
gera það því það þarf engan mat
eða veislu, þetta er bara svo yndis-
leg upplifun,“ segir hún. „Við kom-
umst að því örfáum dögum eftir
brúðkaupið að ég var ófrísk og á
að eiga í lok júní. Litla barnið var
því leynigestur í brúðkaupinu hjá
okkur og var án efa besta brúðar-
gjöfin,“ bætir hún við brosandi og
segist hafa verið mjög hress það
sem af er meðgöngunni.
„Ég var frekar hrædd við að
stunda leikfimi fyrstu vikurnar, en
byrjaði svo í meðgönguleikfimi á
tólftu viku í Fullfrísk. Þá sást varla
á mér á meðan stelpurnar sem ég
var með voru kasóléttar, en það fór
ekkert að sjást á mér fyrr en á fjórða
mánuði og er ég enn mjög pen. Ég
bjóst alveg við því að vera ælandi
inni á klósetti fyrstu mánuðina því
ég hef oft verið með einhvers konar
magavesen, en svo hefur mér bara
aldrei liðið betur né verið hraustari.
Ég ætla að vera í leikfimi svo lengi
sem líkaminn leyfir, ekki í því skyni
að þyngjast ekki heldur bara upp á
líkamlegt og andlegt heilbrigði.”
SÚRMATUR Í ÖLL MÁL
Birgitta segist hafa fundið löngun í
ótrúlegustu hluti frá því að hún varð
ófrísk. „Mér hefur alltaf þótt súrmat-
ur góður og hef borðað hann árlega á
þorrablótum frá því að ég var lítil, en
í desember mætti ég allt í einu heim
með heila tunnu af súrmat, aðallega
súrum hrútspungum. Bensi borðar
þetta ekki og fannst þetta ógeðs-
legt svo ég kláraði alla fötuna ein
og keypti mér síðan aðra í janúar.
Frá desember og út febrúar hakk-
aði ég bara í mig súrmat, sviðasultu
og hrútspunga,“ segir hún og hlær.
„Sem betur fer er þetta yfirstaðið
þar sem súrmatur fæst varla í búð-
unum lengur, annars hef ég sjaldan
borðað jafn mikið af ávöxtum eins
og frá því að ég varð ólétt.“
Spurð hvort barneignir hafi lengi
verið á dagskrá segir hún svo ekki
vera. „Margir hafa eflaust haldið að
ég hafi verið búin að þrá börn í mörg
ár því ég hef alltaf verið svo mikil
barnakona, en það var ekki, þetta
var bara rétti tíminn. Mín skoðun er
sú að við verðum að finna mann-
inn okkar sem við viljum eyða æv-
inni með og koma okkur fyrir áður
en barneignir byrja. Ég lít alls ekki
á barneignir sem sjálfsagðan hlut
og á hverjum degi þakka ég fyrir
litla kraftaverkið okkar. Ég var alltaf
að fá spurningar um hvort ég væri
ólétt og tvisvar á ári fór óléttusaga
á kreik, svo ég var farin að halda að
ég fengi alltaf bumbu á vissum árs-
tíma,“ segir Birgitta og hlær. „Flest-
ar vinkonur mínar eru búnar að
eignast börn og mér óx það mikið
í augum, en núna finnst mér þetta
bara spennandi verkefni og get ekki
beðið eftir að vera öskrandi uppi á
fæðingardeild. Maður uppgötvar líka
að þetta snýst ekki um mann sjálf-
an og hugsanir eins og; „hvernig á
mér eftir að líða?“ eða „á þetta eftir
að vera vont?“ hverfa, því þegar á
hólminn er komið ræður maður
engu, þetta snýst bara um að koma
heilbrigðum einstaklingi í heim-
inn.“
FÉKK ÆÐI FYRIR súrmat & ávö
Óvænt „Í desember mætti ég allt í einu heim með heila tunnu af súrmat, aðallega súrum hrútspungum, og kláraði hana ein,“ segir
Birgitta.