Fréttablaðið - 13.03.2009, Page 34
6 föstudagur 13. mars
tíðin
✽ með rauðar neglur
Getur þú lýst þínum stíl? Ég
hef alltaf haft mjög gaman af því
að klæðast fallegum fötum og
hefur fatastíllinn minn þróast í
gegnum árin. Þó svo að það sé
erfitt að lýsa eigin stíl verð ég
að telja að minn sé klassískur
en afar fjölbreyttur. Ætli ég hafi
ekki verið hrafn í fyrra lífi þar
sem ég er ótrúlega glysgjörn og
elska aukahluti, sem geta gert
gæfumuninn fyrir annars hlut-
lausan klæðnað, til dæmis
töskur, síð hálsmen og falleg
hárskraut. Einnig viðurkenni ég
fúslega að ég er skófíkill á háu
stigi þar sem ég get ekki neitað
mér um skó sem heilla. Konur
eiga hreinlega aldrei nóg af
tvennu – skóm og skarti.
Hvað dreymir þig um að
eignast í vetur? Ég er rosa-
lega hrifin af þeirri hönnun sem
Margrét Árnadóttir hefur verið
með undanfarin ár og í lang-
an tíma hefur mig dreymt um að
eignast bæði svarta og beige
ermaslá frá M-design, en þær
eru úr íslensku ullinni.
Hvað keyptir þú þér síðast?
Ég hef verið voðalega dug-
leg undanfarið að kíkja í búðir
og í flestum tilfellum gert alveg
svakalega góð kaup. Það sein-
asta sem bættist þó í fataskáp-
inn var kjóll frá All Saints, Bronx
skór frá GS skóm og svo var ég
að kaupa mér geggjaðan jakka
á netinu sem kemur vonandi í
hús sem allra fyrst.
Uppáhaldsverslun? Ég hef
ferðast mikið undanfarið og
finnst skemmtilegast að leita
uppi verslanir sem selja „un-
ique“ föt sem ekki önnur hver
stelpa klæðist. Það er voða-
lega erfitt fyrir mig að velja eina
verslun sem er í uppáhaldi hér á
landi en þær sem eru ofarlega í
huga eru All Saints, Miss Sixty,
Zara, Topshop og auðvitað 66°
Norður ef það á að kaupa góð
útiföt.
Uppáhaldsfatamerki? Ég á
ekkert eitt uppáhaldsfatamerki,
en ætli uppáhaldsfatamerk-
in séu ekki þau sem ég finn í
verslununum sem ég nefndi hér
að ofan. Samt sem áður er allt-
af gaman að slefa yfir nýjustu
hátískublöðunum og í kjölfar-
ið reyna að taka skynsamlega
ákvörðun um það hvort flíkurnar
þar séu peninganna virði.
Í hvað myndir þú aldrei fara?
Ég myndi aldrei láta sjá mig í
hvítum leggings.
Hvaða snið klæðir þig best?
Þegar fólk hefur fjölbreytt-
an fatastíl er erfitt að finna eitt
snið sem hentar best. Mér finnst
skemmtilegast að blanda mis-
munandi hlutum saman og vera
dugleg að prófa eitthvað nýtt.
Það sem skiptir mig mestu máli
er að mér líði vel og sé sátt við
útkomuna hverju sinni.
TÖFRAR OG DIRFSKA Lalli töframaður, John sjón-
hverfingamaður, Pétur Pókus og Sirkustrúðurinn Wally sýna
það sem í þeim býr í metnaðarfullri sýningu, en þeir hafa
ólíka reynslu á sviði töfra og sikuslista. Ekki missa af frá-
bærri fjölskylduskemmtun í Iðnó um helgina fyrir fullorðna
og börn, sex ára og eldri.
MARLEY AND ME Jennifer Aniston og Owen Wil-
son fara með aðalhlutverk í gamanmynd sem fjallar um par
sem fær sér lítinn hvolp, Marley, sem verður yfirgengilegur
þegar hann stækkar. Ekki missa af stórskemmtilegri mynd
sem var á toppnum í Bandaríkjunum tvær vikur í röð og er
byggð á samnefndri metsölubók.
„90‘s áhrif eru mjög sterk, en það glittir líka
í 60’s áhrif,“ segir Guðbjörg Huldís Krist-
insdóttir förðunarmeistari, spurð um tísku-
straumana á komandi mánuðum. „Andlit sjö-
unda áratugarins verður áberandi í vor með
svörtum, þungum skugga í kringum augun,
fölum vörum og löngum, þykkum augnhár-
um,“ bætir hún við. Til að ná þessum tísku-
áhrifum farðaði Guðbjörg Huldís Evu Katr-
ínu Baldursdóttur með vörum frá MAC.
„Ég notaði Mineralize Skinfinish púður sem
nægir að setja létt yfir t-svæði andlitsins og
gefur flauelskennda og náttúrulega áferð.
Svo notaði ég kremaugnskugga frá MAC
sem heitir Gilded Ash og setti svo pa-
intpot sem heitir Blackground yfir allt
augnlokið. Til þess að fá „djúsí“ og fal-
lega áferð
yfir augnlok-
ið er settur Brilli-
ance augngloss,“
útskýrir Guðbjörg
Huldís. „Til að ýkja
og þykkja augnhár-
in notaði ég svartan
Fibre Rich maskara
og á varirnar notaði
ég Hue varalit sem
gefur girnilega
áferð með léttum
gljáa. Þetta er tiltölulega einfalt að gera og
er „look“ sem hæfir flestum svo allir ættu
að geta fylgt þessum áhrifum á auðveld-
an hátt.“ - ag
Andlit sjöunda ára-
tugarins áberandi
Dökk augu „Andlit sjö-
unda áratugarins verður
áberandi í vor með svört-
um, þungum skugga í
kringum augun, fölum
vörum og löngum, þykk-
um augnhárum,“ segir
Guðbjörg Huldís.
Helena Eufemía lögfræðingur:
Er glysgjörn og
elskar aukahluti
1 Bronslitaðir skór úr Nine West, einnig keyptir í Boston.
2 Grár kjóll með hvítum blómum úr Topshop í London. 3 Blár
kjóll með svörtu glimmeri úr Ware 4 Skyrta úr Zöru, legg-
ings frá American Apparel í Boston, Celia Marco design stíg-
vél, armband úr Mango og hálsmen frá ömmu. 5 Eyrnaband
úr selskinni sem ég fékk í gjöf frá frænda mínum þegar hann
kom frá Grænlandi. 6 Pils sem ég keypti í Norr í Stokkhólmi.
7 Jakki með pallíettum úr H&M í Stokkhólmi, hlýrabolur úr
Gina Tricot í Kaupmannahöfn, gallabuxur úr Miss Sixty, skór
úr Zöru og hringur eftir Hendrikku Waage. 8 Nine West taska,
keypt í Boston.
2
1
3
5
4
7
6
8
SALATBARINN ER
13
ára
13.
í dag
föstudaginn
Faxafen 9 • Sími 588 0222
Erum einnig með almenna veisluþjónustu
www.salatbarinn.is
Ef 13 koma saman
fær sá 13. frítt.
13 ára greiða 13 krónur.
Landsfrægir listamenn
skemmta í hádeginu og
í kvöld.
Þorir þú út
föstudaginn 13.?
13% afsláttur