Fréttablaðið - 13.03.2009, Qupperneq 44
28 13. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Þennan dag árið 1983
var Kvennalistinn (sam-
tök um kvennalista)
stofnuð. Forverar listans
voru kvennaframboðin í
Reykjavík og á Akureyri
sem fengu fulltrúa kjörna
í sveitarstjórnarkosning-
um árið 1982.
Kvennalistinn bauð
fram til Alþingis í þrem-
ur kjördæmum árið 1983
og fékk 5,5 prósent at-
kvæða og þrjár konur á þing. Í kosningunum 1987 nær tvöfaldaði
flokkurinn fylgi sitt og fékk 10,1 prósent atkvæða og sex konur á
þing. Árið 1991 tapaði listinn einu sæti og árið 1995 kom hann
einungis þremur konum á þing.
Kvennalistinn sameinaðist Alþýðuflokki og Alþýðubandalaginu
til að mynda Samfylkinguna árið 1998.
ÞETTA GERÐIST 13. MARS ÁRIÐ 1983
Kvennalisti stofnaður
Leikarinn góðkunni Örn Árnason, sem
leikur ræningjann Kasper í nýjustu
uppfærslu Þjóðleikhússins á Karde-
mommubænum, hefur náð þeim áfanga
að leika alla ræningjana þrjá í verkinu.
Hann byrjaði á að leika Jónatan í upp-
færslunni árið 1984, lék svo Jesper árið
1995 og nú Kasper.
Hann hefur í heildina leikið í tæp-
leg tvö hundruð Kardemommubæjar-
sýningum og má leiða að því líkur að
þær verði nær þrjúhundruð þegar yfir
lýkur. „Ég held að fyrsta uppfærslan
hafir rúllað um 85 sinnum, númer tvö
um níutíu sinnum og núverandi sýn-
ing gengur glimrandi vel svo það er
aldrei að vita hvernig þetta endar,“
segir hann kátur í bragði. En hvern-
ig er að leika í sömu sýningunni svona
oft? „Þetta er nú alls ekki það leiðinleg-
asta sem ég geri. Auðvitað getur stöðug
endurtekning verið þreytandi til lengd-
ar en út á þetta gengur leikarastarfið
að miklu leyti og eins og einhver sagði
þá hefði maður betur valið sér annað
starf ef endurtekningin væri manni
ekki að skapi,“ segir hann og heldur
áfram: „Þetta er bara eins og að fara á
sjóinn. Ég legg í hann um hádegisbil á
laugardag og kem heim um kvöldmat-
arleytið á sunnudag. Það fiskast vel og
ég kem heim með fjórar fullar lestar,“
segir Örn en sýndar eru fjórar sýning-
ar allar helgar.
En hvaða ræningi er nú skemmtileg-
astur? „Þeir eru allir mjög skemmti-
legir en ég neita því ekki að ég hef
voða gaman af Kasper. Hann er elst-
ur og með mestu karaktereinkennin.
Hann ræður svolítið för og hinir fylgja
á eftir.“ Örn segist ekki hafa kunnað
rulluna utanbókar þrátt fyrir að hafa
leikið á móti Kasper jafn oft og raun
ber vitni. „Ég er nú engin minnisbók
en það sat samt ótrúlega mikið eftir og
ég gat miðlað af reynslu minni.“ Örn
segir talsverðan mun á sýningunum og
að núverandi sýning sé tvímælalaust
sú litríkasta. „Menn tala um Disney-
og Hollywoodbrag og sumum finnst
það eitthvað neikvætt. Ég er bara ekki
sammála því. Þetta er sá veruleiki sem
börn nútímans þekkja og hvað er svona
neikvætt við hann?“
Örn er öllum hnútum kunnugur
þegar kemur að barnaleikritum og
komast fáir með tærnar þar sem hann
hefur hælana í þeim efnum. Hann hóf
ferilinn sem einn ræningjanna í Línu
Langsokk og hefur bæði leikið Lilla og
Bangsapabba í Dýrunum í Hálsaskógi
svo dæmi séu tekin. Lilla segist hann
hafa fengið í arf fá föður sínum, Árna
Tryggvasyni. Hann segir þá Bessa
Bjarnason og Árna eiga metið í fjölda
barnaleikrita nokkuð skuldlaust en
neitar því ekki að hann komi nokkuð
fast á hæla þeirra.
Örn hefur að vonum gaman af því að
leika fyrir börn. „Börn eru skemmtilegt
fólk og það er alltaf gaman að heyra til
þeirra úti í sal.“ vera@frettabladi.is
ÖRN ÁRNASON: HEFUR LEIKIÐ ALLA RÆNINGJANA ÞRJÁ Í KARDIMOMMUBÆNUM
Kasper er mesti karakterinn
af ræningjunum þremur
Örn Árnason, sem Jónatan, Randver Þorláks-
son og Pálmi Gestsson árið 1984.
Hjálmar Hjálmarsson, Örn Árnason, sem
Jesper, og Pálmi Gestsson árið 1995.
ÖRN HEFUR GAMAN AF KASPER Örn Árnason, í hlutverki Kaspers, ásamt þeim Kjartani Guð-
jónssyni og Rúnari Frey Gíslasyni. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Ástkær móðir mín, amma, langamma og
langalangamma,
Áslaug Björg Árnadóttir
lést miðvikudaginn 11. mars á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Sigtryggsdóttir.
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sjöfn Karólína Smith
Grandavegi 47, Reykjavík,
sem varð bráðkvödd hinn 9. mars, verður jarðsungin
frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 18. mars klukkan
13.00.
Sigurjón Eðvarð Sigurgeirsson
Magnús Ingimundarson Brynja Ásta Haraldsdóttir
Sverrir Ingimundarson Steinþóra Ágústsdóttir
Laufey Anna Ingimundardóttir
Hjördís Sjafnar Ingimundardóttir
Þóra Sigurjónsdóttir
Árný Sigurjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför ástkærs föður, tengdaföður, afa og
langafa,
Ólafs Guðmundssonar
Kaplaskjólsvegi 37.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakotsspítala, eink-
um deildar K2, fyrir góða umönnun.
Valgerður Ólafsdóttir Ásgeir Þormóðsson
Guðmundur Ólafsson Fjóla Guðmundsdóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Guðmundur Sigurjón
Finnsson
Huldugili 9, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
14. mars kl. 13.00.
Lilja Sigríður Guðmundsdóttir Baldur Snævarr
Tómasson
Steinunn Oddný Guðmundsdóttir Björgvin Sveinn Jónsson
Guðmundur Finnur Guðmundsson Rósa Jennadóttir
Kristín Björk Guðmundsdóttir Guðmundur
Jóhannesson
Jón Birgir Guðmundsson Þórunn Guðlaugsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar,
Svava Björnsdóttir
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn
4. mars, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju
föstudaginn 13. mars kl. 11.00.
Rósa Hilmarsdóttir
Árný Birna Hilmarsdóttir
Páll Hjálmur Hilmarsson
og fjölskyldur.
Þökkum auðsýndan hlýhug og samúð við
andlát og útför móður okkar,
Herdísar Pálsdóttur
frá Fornhaga.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Beykihlíðar, Hlíð,
Akureyri.
Brynhildur Ingólfsdóttir
Arnheiður Ingólfsdóttir Gísli Sigurkarlsson
Gunnfríður Ingólfsdóttir Páll Hrólfsson
Guðmundur Ingólfsson Brynja Óskarsdóttir
Sesselja Ingólfsdóttir Valur Daníelsson
ömmu- og langömmubörn.
Innilegar þakkir sendum við þeim sem
sýndu okkur samúð og vináttu vegna
andláts og útfarar bróður okkar, mágs og
frænda,
Arnórs Karlssonar
fyrrum bónda á Bóli, síðar Arnarholti
í Biskupstungum, Bjarkarbraut 10 í
Bláskógabyggð.
Einnig þökkum við þeim sem önnuðust Arnór síðustu
vikur hans á Landspítalanum í Fossvogi.
Systkini hins látna og aðrir venslamenn.
timamot@frettabladid.is
HANS-GEORG GADAMER
LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ
2002
„Sagan tilheyrir
ekki okkur. Við til-
heyrum sögunni.“
Hans-Georg Gadam-
er var þýskur heim-
spekingur, sem er
þekktastur fyrir rit sitt
Sannleikur og aðferð.