Fréttablaðið - 17.03.2009, Blaðsíða 22
18 17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
> SKOTIN Í HUGH GRANT
Sarah Jessica Parker segir leikar-
ann Hugh Grant vera bæði kláran
og kynþokkafullan. Sarah er að
fara að leika á móti Grant í róm-
antískri gamanmynd og viður-
kennir að hún sé mjög spennt
fyrir samstarfinu. Hún segir
Hugh Grant vera hina fullkomnu
ímynd ensks herramanns, bæði
sniðugan og gáfaðan.
„Eigendurnir, Haukur
Víðisson og Jamil Jamchi,
voru búnir að spá í að opna
svona stað lengi og ákváðu
bara að kýla á það núna,“
segir Yesmine Olsson,
einkaþjálfari og matreiðslu-
bókahöfundur, um veitinga-
staðinn Saffran sem var
opnaður í Glæsibæ í gær.
Haukur er ekki alls ókunnur veit-
ingahúsarekstri, því hann rak
Vegamót og Café Óliver um tíma,
en hann og Jamal fengu Yesmine til
liðs við sig og Odd Smára Rafnsson
matreiðslumann til að hanna mat-
seðil staðarins.
„Við vildum búa til skyndibita-
stað þar sem hægt er að fá sér holl-
an og framandi mat án þess að fara
út í öfgar. Við bjóðum aðallega upp
á mið-austurlenskan, kryddaðan
mat, en úrvalið er fjölbreytt og við
verðum með alls kyns nýjungar.
Davíð Magnússon speltbakari vinn-
ur hjá okkur, en hann vann í heilsu-
bakaríinu Emmerys í Danmörku
og við höfum til dæmis verið að
leika okkur með pitsurnar. Við
verðum líka með nýjar bragð-
tegundir af ferskum safa sem
er búinn til á staðnum og ég
er búin að þróa svokall-
aða „naan-wich“ sem
er samloka úr naan-
brauði,“ segir Yes-
mine og brosir.
„Við héldum
opnunarpartí
fyrir vini og
vandamenn á
sunnudaginn,
buðum þeim að
smakka matinn og
sjá staðinn. Við opn-
uðum svo formlega á
mánudaginn og verð-
um með opið frá klukk-
an níu til níu alla daga, en
til tíu á föstudögum og laug-
ardögum.“ - ag
SAFFRAN OPNAÐ Í GLÆSIBÆ
FLOTT Hannes Steindórs-
son og Þóra Ásgeirsdóttir
létu sig ekki vanta á
opnunina í Glæsibæ.
HOLLUR SKYNDIBITI Haukur Víðisson og Jamil Jamchi
eiga og reka skyndibitastaðinn Saffran þar sem boðið er
upp á hollan mið-austurlenskan mat.
ÁNÆGÐAR Kristjana Stefánsdóttir
söngkona og Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir leikkona voru glaðar í
bragði við opnunina á Saffran.
SKOÐAÐ OG SMAKKAÐ Erla Björnsdóttir, Hálfdán Steinþórsson og Valdimar Svavars-
son mættu á opnun Saffran á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANNAÐI MATSEÐIL-
INN Frá og með næsta
laugardegi verður
boðið upp á hollan
„brunch“ á Saffran, en
Yesmine hannaði mat-
seðil staðarins í sam-
starfi við eigendurna og
Odd Smára Rafnsson
matreiðslumann.
„Við hleypum áhorfendum inn
einum í einu og leyfum þeim
bara að ganga frjálst um húsið
og sjá hvað er í gangi hjá hverj-
um listamanni,“ segir Ragna
Sveinsdóttir, dansari og fjár-
málastjóri, um væntanlega
sýningu Stúdentadansflokksins
í Sundhöll Reykjavíkur. Flokk-
urinn hefur verið starfræktur
í fjögur ár, en tók nýlega upp
nafnið Spiral-dansflokkur-
inn og vinnur nú að verki sem
verður sýnt í Sundhöllinni dag-
ana 27. og 29. mars.
„Verkið heitir „The Open-
ing“ og er dansleikhús-
verk sem endurspeglar ólík
tjáningarform, tónlist, dans
og gjörning. Verkið yfirtek-
ur og fyllir bygginguna með
mögnuðu andrúmslofti sem
skapar dulúð, töfra og brjál-
æði,“ útskýrir Ragna. „Við
erum tíu stelpur í dansflokkn-
um, en fengum þrjá stráka úr
Stúdentaleikhúsinu til liðs við
okkur því okkur vantaði karl-
pening í verkið,“ bætir hún við
og brosir.
„Andreas Constantinou, höf-
undur verksins, vill að áhorf-
endur upplifi huglæga ævin-
týraferð svo áhorfendur fá
frelsi og svigrúm til þess að
reika um Sundhöllina og fylgja
hvaða þema eða flytjanda sem
er, flétta saman ólíkum leið-
um eftir eigin höfði eða ein-
faldlega njóta þess að ganga
um bygginguna og soga í sig
andrúmsloftið,“ segir Ragna,
en miðasala fer fram á midi.
is. - ag
Dansa í Sundhöll Reykjavíkur
ÆFT FYRIR SÝNINGU Ragna Sveinsdóttur undirbýr danssýninguna í Sund-
höll Reykjavíkur ásamt Unni Gísladóttur, framkvæmdastjóra flokksins, og
Gianluca Vincentini, listrænum stjórnanda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
9. HVER VINNUR!
KOMINN ÍELKO!
20 af bestu lögum rokksveitarinnar Queen
SENDU SMS EST SSV Á NÚMERIÐ 1900
- ÞÚ GÆTIR UNNIÐ EINTAK!
AÐALVINNINGUR ER SINGSTAR QUEEN
ÁSAMT SINGSTAR HLJÓÐNEMUM!
FULLT AF AUKAVINNINGUM!
WWW.SENA.IS/SINGSTAR
Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum – Skógarlind 2. Með því að taka þátt
ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið.
F plús1 F plús2 F plús3
Stoppuð af lögreglu
Poppsöngkonan Lady
Gaga var stöðvuð af
lögreglu á dögunum
af heldur óvenjulegri
ástæðu. Söngkonan, sem
er 22 ára, komst ekki í
kast við lögin, heldur
var hún stöðvuð fyrir
klæðaburð sinn því lög-
reglunni þótti hún held-
ur lítið klædd.
Lady Gaga er þekkt
fyrir að hafa munn-
inn fyrir neðan nefið
og svaraði fyrir sig
fullum hálsi, en hún
starfaði áður sem bur-
lesque-dansari og segir
fátt skemmtilegra en
að sýna líkama sinn.LADY GAGA