Fréttablaðið - 17.03.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 17.03.2009, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 17. mars 2009 21 Krist Novoselic, fyrrum bassa- leikari Nirvana, varaði söngvar- ann Kurt Cobain við því að nota heróín. Eiturlyfið hættulega átti síðar meir eftir að leiða til sjálfs- vígs hans. „Þetta var svo mikil sóun. Þetta var allt út af eiturlyfjun- um,“ sagði Krist. „Kurt hringdi í mig í fyrsta sinn sem hann próf- aði heróín og ég sagði honum: „Ekki gera þetta. Þú ert að leika þér að eldinum“,“ sagði hann. „Ég sagði honum strax mína skoðun. Ég sagði hluti sem hann vildi ekki hlusta á og það hafði áhrif á samskipti okkar.“ Krist varaði Cobain við NIRVANA Novoselic varaði Cobain við því að nota heróín án árangurs. Jennifer Aniston mun að öllum líkindum bjóðast hlutverk í næstu James Bond-mynd. Leikkonan, sem er fertug, hefur lýst yfir áhuga sínum á því að leika í mynd um spæjarann og hefur verið boðuð í prufu fyrir framhaldið af Quantum of Solace með Daniel Craig í hlutverki Bond. Samkvæmt heimildum slúður- blaða vestanhafs eru framleið- endur myndarinnar hrifnir af Aniston og telja hana hafa allt sem til þarf í hlutverk Bond- stúlku, bæði fegurð og gáfur. Aniston hitti Daniel Craig og kær- ustu hans, Satsuki Mitchell, fyrir Óskarsverðlaunahátíðina á dögun- um og virtist fara vel á með þeim. Aniston í Bond-mynd? BOND-STÚLKA? Jennifer Aniston mun líklega bjóðast hlutverk í næstu Bond- mynd, en framleiðendur myndarinn- ar telja hana hafa allt sem til þarf í hlutverkið. Hljómsveitin Tiger Lillies spila á Listahátíð í Reykja- vík í vor. Kvikmyndaleik- stjórinn Valdís Óskarsdóttir kolféll fyrir þeim í Hamb- urg. „Er þetta staðfest? Vá, í alvörunni?“ segir Valdís Óskarsdóttir kvik- myndagerðarmaður þegar leitað var viðbragða við þeirri fregn að hin einstaka hljómsveit Tiger Lillies væri á leið til landsins. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Lista- hátíð muni standa fyrir tónleik- um með þeim í Íslensku óperunni í lok maí en Guðrún Kristjánsdótt- ir, kynningarstjóri hátíðarinnar, neitar að tjá sig um það. „Fljótlega verður upplýst um glæsilega við- burði sem verða á hátíðinni í vor,“ segir Guðrún. Valdís notaðist við tónlist tríós- ins við kvikmynd sína Sveitabrúð- kaup. Hún sá þá í byrjun aldar- innar á tónleikum í Hamborg og kolféll fyrir þeim. Martyn Jaqu- es stofnaði Tiger Lillies en á ungl- ingsárunum bjó hann í íbúð fyrir ofan vændishús í Soho í London og svo virðist sem sú reynsla smitist í hljómsveitina sem varð til tíu árum síðar, eða 1989. Valdís segir hljóm- sveitina algerlega einstæða og allir þeir sem hún kynnir þá fyrir ánetj- ist. „Lögin þeirra geta orðið nánast brútal, eru í það minnsta hrein og bein – ekkert verið að skafa utan af hlutunum. Þeir eru kaldhæðnir, ferlega fyndnir. Já, svona „nastí“ húmor sem ég kann vel við.“ Valdís komst á sínum tíma í sam- band við Tiger Lillies meðal annars í gegnum rússneska leikstjórann Serge Mongol sem hún kynntist eftir að hafa klippt Festen. Og fór á þeirra fund eftir að hafa spurt hvort þeir ættu „instrumental“ tónlist en aðallega bjóða þeir upp á sungna tónlist. Það var ekki en þeir voru til í að endurvinna tón- listina. „Ég hitti þá í stúdíói í Lond- on, sýndi þeim myndbrot og þeir sömdu við kafla á staðnum. Þetta eru algerir snillingar,“ segir Val- dís Óskarsdóttir. - jbg TIGER LILLIES TIL ÍSLANDS VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Kolféll fyrir hljómsveitinni í Hamborg. Stakk upp á þeim við Listahátíð fyrir löngu en þá voru þeir allt of uppteknir. TIGER LILLIES til landsins. Þeir semja tónlist, halda sýningar sem eiga engan sinn líka, taka upp plötu, setjast þá niður til að semja nýtt efni. Íslend- ingar fá að sjá nýtt efni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.