Fréttablaðið - 17.03.2009, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 17.03.2009, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 UPPBOÐSFYRIRTÆKIÐ SOTHEBY’S heldur uppboð á húsmunum ítalska tískuhönnuðarins Gianni Versace á morg- un. Þar verða seld húsgögn og listmunir úr húsi Versace við Lake Como. Talið er að andvirði hlutanna sé tvær til þrjár milljón- ir punda, en það var rússneskur auðkýfingur sem keypti húsið í fyrra úr dánarbúi Versace sem lést árið 2007. Sveinn Guðmundsson, viðskipta- stjóri hjá Nýherja, tók þátt í Vasagöngunni í Svíþjóð fyrir skemmstu, einn af 39 Íslendingum. Sveinn verður sextugur á þessu ári og gekk ásamt æskuvini sínum í tilefni af því. „Aðdragandinn var sá að Ingv- ar Einarsson, æskuvinur minn frá Ísafirði, bað mig að taka þátt í Vasagöngunni í Svíþjóð með sér í fyrra, þegar hann varð sextug- ur,“ útskýrir Sveinn sem kláraði ekki gönguna í það skiptið vegna meiðsla. „Í sumar æfðum við félagarnir því mjög vel, og ýttum okkur á hjólaskíðum upp brekk- urnar á göngustígunum í Reykja- vík og tókum líka þátt í hjólaskíða- keppnum sem Skíðafélagið Ullur stóð fyrir.“ Sveinn segir nauðsynlegt að æfa vel fyrir átökin en Vasagangan er 90 kílómetrar að lengd. Gustav Vasa Svíakonungur á að hafa gengið þessa leið árið 1521 á flótta undan herliði Dana. Árið 1922 var leiðin gerð að alþjóðlegri skíða- göngu og það var í 81. skipti sem hún var gengin sem Sveinn tók þátt. Hann segir það upplifun að ganga þessa leið. „Þetta er sérstök reynsla. Um 15.000 manna hópur ryðst þarna af stað klukkan átta á sunnudags- morgni í tíu stiga frosti, allir á skíðum með stafi. Maður ryðst með í kösinni fyrsta kílómetrann og reynir að passa að stafirnir brotni ekki og að ekki sé troðið á skíðunum manns. Svo eftir klukku- tíma puð er maður kominn upp á hæsta tind göngunnar og þá blasir við manni fallegt skilti sem segir manni að það séu 87 kílómetrar eftir,“ segir Sveinn en það tók hann um 10 tíma að klára gönguna. „Maður kemur afskaplega ánægður í markið. Ég var með púlsmæli á mér og reiknaði út að ég hafði brennt um 800 kaloríum á leiðinni, eða eins og einn maður brennir á 3 til 4 dögum,“ útskýr- ir Sveinn sem fékk sér hafragraut í morgunmat áður en hann lagði í hann og nærðist meðal annars á orkudrykkjum og bláberjasúpu á leiðinni. „Þegar nær dregur endastöðinni stendur fólk svo meðfram braut- inni og gefur þátttakendum app- elsínur, súkkulaði og kaffi og hvet- ur fólk áfram, ekki veitir af. Ég gæti vel hugsað mér að taka aftur þátt en svo togar Fossavatnsgang- an á Ísafirði alltaf í mig. Nú er ég líka kominn í ágætis þjálfun og vil síður tapa henni niður.“ heida@frettabladid.is Í fótsporum Svíakonungs Tæplega fjörutíu Íslendingar gengu á skíðum milli bæjanna Salen og Mora í Svíþjóð í hinni árlegu Vasa- göngu á dögunum. Gangan er kennd við Gustav Vasa Svíakonung og er um 90 kílómetrar að lengd. Síðasta æfingin fyrir Vasagönguna. Sveinn til vinstri með æskuvini sínum, Ingvari Einarssyni, sem fékk Svein með sér í Vasagöng- una í fyrra. MYND/ÚR EINKASAFNI STA FGA NGA ÁHR IFAR ÍK L EIÐ TIL L ÍKAM SRÆ KTA R Stafgöngunámskeið hefjast 24 mars n.k. stafgönguþjálfi, 616 85 95. stafgönguþjálfi, 694 35 71. Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30. Þriðjudaga & fimmtudaga, kl. 17:30. SKRÁNING & NÁNARI UPPLÝSINGAR Á: Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 nÚ RÝMUM VIÐ FYRIR NÝJUM VÖRUM 50%afslátturaf völdum vörum Hornsófar, tungusófar sófasett, rúm, borðstofusett ofl. aðeins í eina viku takmarkað magn Börn og umhverfi Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 opið virka daga kl.10-16 sími 554 6626 Námskeið fyrir ungmenni á 12. aldursári og eldri. Kennsla skiptist á 4 kvöld og fer fram í húsnæði Kópavogsdeildar Hamraborg 11, 2. hæð, kl. 17-20. Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti sem varða umgengni og fram- komu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Lögð er áhersla á umfjöllun um slysavarnir og algengar slysabætur í umhverfinu ásamt ítarlegri kennslu í skyndihjálp. Að auki fá þátttakendur innsýn í sögu og starf Rauða krossins. Næstu námskeið: Námskeið A – 27.-30. apríl Námskeið B – 4.-7. maí Námskeið C – 11.-14. maí Námskeið D – 25.-28. maí Námskeiðsgjald er kr. 7500 . Innifalið: Námsgögn, hressing og skyndihjálparútbúnaður. Leiðbeinendur eru leikskólakennarar og hjúkrunarfræðingar. Þátttakendur fá staðfestingarskírteini að námskeiði loknu. Skráning fer fram á heimasíðunni www.redcross.is/kopavogur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.