Fréttablaðið - 17.03.2009, Blaðsíða 30
26 17. mars 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. spil, 6. skóli, 8. mál, 9. gras, 11.
kringum, 12. fíflast, 14. tæki, 16.
dreifa, 17. farvegur, 18. pota, 20.
ónefndur, 21. alþjóðlegur samningur.
LÓÐRÉTT
1. ákefð, 3. pot, 4. tala, 5. angan, 7.
tilgáta, 10. fley, 13. haf, 15. hófdýr, 16.
pumpun, 19. ólæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gosi, 6. fg, 8. tal, 9. sef,
11. um, 12. atast, 14. græja, 16. sá,
17. rás, 18. ota, 20. nn, 21. gatt.
LÓÐRÉTT: 1. ofsa, 3. ot, 4. sautján,
5. ilm, 7. getgáta, 10. far, 13. sær, 15.
asni, 16. sog, 19. at.
„Ef ég er ekki að hlusta á þögn-
ina eða manninn minn æfa
sig á píanóið, er það Rás 1 eða
Bítlarnir.“
Sigrún Sól Ólafsdóttir, leikkona og
leikstjóri.
„Það þurfti að sauma sjö spor
á hökunni og við augabrúnina,“
segir Linda Ásgeirsdóttir leik-
kona sem varð fyrir því óhappi
að detta illa fram fyrir sig föstu-
daginn 13. svo aflýsa þurfti
tveimur sýningum á Skoppu og
Skrítlu um helgina.
„Ég var að hlaupa út í bíl
til að sækja manninn minn
í vinnuna þegar ég steyptist
fram fyrir mig. Þetta var algjör
óheppni því það var hvorki hálka
né sandur, en ég datt bara þegar
ég var að hlaupa niður af gang-
stétt. Það voru einhverjir sjón-
arvottar sem hjálpuðu mér á
fætur, en ég stóð bara upp, sagð-
ist ætla að drífa mig upp á spítala
og keyrði þangað með heilahristing,“
útskýrir Linda sem hélt þá að hún væri
kinnbeinsbrotin og viðurkennir að sér
hafi liðið hræðilega illa. „Læknirinn sá
strax að ég var ekki brotin, svo ég ætl-
aði bara að klambra mér saman og fara
að leika um kvöldið, en hann sagði mér
að ég mætti ekki gera neitt í þrjá daga.
Sem betur fer gat Þrúður Vilhjálms-
dóttir komið inn í mitt hlutverk í Fló
á skinni um kvöldið, en hún lék sama
hlutverk fyrir norðan. Við þurftum
hins vegar að fella niður tvær sýningar
á Skoppu og Skrítlu um helgina,“ segir
Linda.
„Það versta sem ég heyri er að mega
ekki gera neitt, svo nú er ég að taka
því rólega í fyrsta sinn í mörg ár. Ég
er ágætlega hjátrúarfull og fékk núna
alveg að finna fyrir föstudeginum 13.,
en þetta er að gróa vel svo vonandi
get ég byrjað aftur að leika um næstu
helgi,“ bætir hún við og brosir. - ag
Datt illa föstudaginn 13.
SJÖ SPOR Sauma þurfti sjö spor á höku og
við aðra augabrún Lindu eftir að hún datt
illa fram fyrir sig föstudaginn 13. mars.
Gunnar Karlsson sem starfar í
Caoz og hefur getið sér
gott orð sem leik-
stjóri teiknimynda,
til dæmis Litla
lirfan ljóta, er nú að
vinna að teiknimynd
um þrumguðinn
Þór. Land og synir,
vefrit kvikmynda-
gerðarmanna,
greinir frá því
að nýverið hafi
Óskar Jónasson
verið ráðinn sem meðleikstjóri
Gunnars en um er að ræða fyrstu
teiknimynd Caoz í fullri lengd. Gert
er ráð fyrir að myndin kosti rúman
milljarð og áætlað er að frumsýnt
verði á árinu 2011.
Til þess er tekið að
Hafnfirðingar riðu
ekki feitum hesti frá
prófkjörshelginni
miklu en “Kennedy”
Sjálfstæðisflokks-
ins, Bjarni Bene-
diktsson lagði
varaformann-
inn Þorgerði
Katrínu og
Árni Páll
Árnason
lagði sjálfan
bæjarstjóra Hafnfirðinga, Lúðvík
Geirsson í prófkjöri Samfylkingar.
Klóra Hafnfirðingar sér nú í kolli og
spyrja hvað hafi eiginlega gerst.
En sérkennilegasta prófkjörið er
líklega fyrir norðan hjá Vinstri
grænum en Pétur Gunnarsson
upplýsti í Silfri Egils að Jón Bjarna-
son hefði einn frambjóðenda haft
félagsskrána undir hönd-
um. Hinum var haldið
frá. Framkvæmdastjóri
hreyfingarinnar, Drífa
Snædal, þykir eiginlega
hafa gert illt verra með
að upplýsa að
þar hafi ekki
verið um
nýjustu
skrána
að ræða
heldur
óupp-
færða. - jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Langar þig í spennandi námsár í Noregi?
Lýðháskólinn í Romerike
Fremstur í sinni röð í leiklist, tónlist og leikhúshönnun. Enn eru laus pláss í
leikmyndahönnun skólaárið 2009/10.
• Erum í næsta nágrenni við fl ugvöllinn í Oslo
• Skólinn byrjar 23 . ágúst 2009
• Þú verður að vera 18 ára
• Hægt er að sækja um skólastyrk til norden@norden.is
Sjá heimasíðu skólans: www.romerike.fhs.no
Hafðu samband sem fyrst. Sími 004763970910, post@romerike.fhs.no
„Ég bjóst ekki við að þetta myndi nokkurn tíma
gerast. Að ég lenti í því að klípa í Sóleyju Tómas-
dóttur hálfnakta,“ segir Egill Einarsson líkams-
ræktarfrömuður sem ýmist gengur undir nöfn-
unum Gillzenegger eða Störe.
Sá sérstæði atburður átti sér stað í samkvæmi
um helgina að leiðir Störe og Sóleyjar Tómas-
dóttur borgarfulltrúa og yfirlýsts femínista lágu
saman … „og hún bara vippaði sér úr kjólnum
og heimtaði fitumælingu. Stóð þarna hálfnak-
in fyrir framan Störe.“ Egill og femínistar hafa
löngum eldað grátt silfur saman vegna blogg-
skrifa þess fyrrnefnda. Reyndar gekk það svo
langt að hann var kærður af nokkrum þeirra en
málið var látið niður falla.
Aðspurður segir Egill atvikið hafa lagst vel í
sig en þetta var í einkasamkvæmi. „Var gríðar-
lega skemmtilegt og fór vel á með okkur. Hún
var í sexí svörtum nærbuxum og brjóstahaldara.
Victoria´s Secret eða eitthvað slíkt. Maður hefði
haldið að svona grjótharður femínisti
væri ekki að klæða sig eins og súper-
módel en ég kunni að meta þetta. Kom
á óvart. Hún var nefnilega mjög fitt.
Og leit gríðarlega vel út,“ segir Störe
og er enn hálf undrandi á að hafa
lent í þessu – einkum eftir það sem á
undan er gengið.
Þegar Fréttablaðið hafði samband
við Sóleyju Tómasdóttur í gær sagðist
hún ekki hafa nokkurn áhuga á að
ræða þetta atvik í fjölmiðlum.
- jbg
Gillz fitumælir fáklædda Sóleyju
SÓLEY Vill ekki tjá sig um þetta ein-
stæða atvik um helgina þegar Gillz
fitumældi hana.
STÖRE Það kom honum í opna
skjöldu að gallharður femínisti væri
í undirfötum að hætti súpermódels.
Sigurði M. Þorbergsyni var boðið
að taka tólfta sætið í Idol-stjörnu-
leit Stöðvar 2 í gærkvöldi. Hann
ákvað eftir smá umhugsunarfrest
að taka því og verður því meðal
keppenda í Smáralindinni þann
20.mars. Sigurður fór í gegnum
mikla rússíbanareið á föstudags-
kvöldinu þegar honum var hafnað í
þrígang. Sjónvarpsstjóri Stöðvar 2
segir þetta hafa verið bestu lausn-
ina á mannlegum mistökum.
Sigurður var á báðum áttum um
hvort hann ætti að þiggja sætið í
samtali við Fréttablaðið. En um
leið og sú ákvörðun hafði verið
tekin var hann sjálfkrafa kominn
í fjölmiðlabann, rétt eins og hinir
keppendurnir tólf.
Óhætt er að segja að síðasti
þáttur Idolsins hafi vakið mikla
athygli. Að þessu sinni kepptu tíu
strákar um fimm laus sæti í úrslit-
um Idolsins en fimm stúlkur voru
komnar áfram. Og þegar kom að
því að tilkynna úrslitin úr síma-
kosningunni varð annar kynnir
kvöldsins, Sigmar Vilhjálmsson,
sambandslaus við upptökuverið.
Fyrir mistök tilkynnti hann að
Sigurður hefði verið kosinn áfram
af áhorfendum heima í stofu.
Þetta var leiðrétt í snatri af sam-
starfsfélaga Sigmars, Jóhannesi
Ásbjörnssyni, og söngvarinn efni-
legi varð að bíta í það súra epli að
setjast aftur í sófann. Kvöldið var
hins vegar ungt, því miður fyrir
Sigurð. Því dómnefndin átti enn
eftir að velja fimmta og síðasta
keppandann. Þau Björn Jörundur,
Jón Ólafs og Selma Björnsdóttir
horfðu framhjá Sigurði og völdu
Stefán Friðrik í hans stað. Gaman-
ið var heldur betur tekið að kárna
og átti eftir að versna til muna
þegar Sigurður var kallaður upp
á svið á nýjan leik. Í þetta sinnið
kom hann til greina sem Wildcard-
keppandi og stóð valið milli hans
og Alexöndru Elfu Björnsdóttur.
Viti menn, Alexandra var valin en
Sigurður sat eftir með sárt ennið.
Pálmi Guðmundsson, sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, segir þetta hafa
verið ótrúlega leiðinlegt. Eftir
þáttinn hafi allir aðstandendur
þáttarins lagst undir feld og velt
því fyrir sér hvernig væri hægt að
bæta fyrir þessi mistök. „Þetta var
lausnin sem við komumst að og ég
held að hún sé sú besta í stöðunni.
Nú er Sigurður upp á náð þjóðar-
innar kominn og situr við sama
borð og allir hinir.“
-fgg
SIGURÐUR M. ÞORBERGSSON: FÉKK TÓLFTA SÆTIÐ
Siggi verður meðal kepp-
enda í Smáralindinni
HAFNAÐ Í ÞRÍGANG Sigurður mátti horfa á eftir þremur keppendum á föstudagskvöldið þiggja sæti í Smáralindinni. Honum var
hins vegar veitt tólfta og síðasta sætið í gærkvöldi.