Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.03.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 19.03.2009, Qupperneq 2
2 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR Yrsa Þöll. heldurðu að Blaða- mannaverðlaunin falli þér í skaut? „Það er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Yrsa Þöll Gylfadóttir þræddi sundlaugar höfuðborgarsvæðisins og gerði könnun á skapaháratísku kvennaklefanna. Niður- stöðurnar gefur að líta í nýjasta tölublaði Stúdentablaðsins. F í t o n / S Í A Aðalfundur VR verður haldinn á Hilton Nordica hótel, fimmtudaginn 2. apríl nk. og hefst kl. 19:30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Lagabreytingar Innborgun í VR varasjóð Virðing Réttlæti VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS SKIPULAGSMÁL „Þessi vinnubrögð eru blaut tuska í andlit Grafar- vogsbúa sem enn og aftur upplifa algert samráðsleysi og yfirgang af hálfu borgarinnar gagnvart óskum íbúa,“ segir Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylkingar í hverfisráði Grafarvogs. Borgaryfirvöld létu í fyrradag rífa sextíu ára gamlan vatnstank á Hallsteinshöfða í Grafarvogi. Bæði Íbúasamtök Grafarvogs og hverf- isráðið höfðu lagt mikla áherslu á að tankurinn fengi að standa og yrði breytt í útsýnispall. „Í átakinu 1, 2 og Reykjavík þar sem sóst var eftir ábendingum borgarbúa um hvað mætti gera til að fegra og bæta nágrenni íbúa var það efst á óskalista íbúa í Graf- arvogi að gerður yrði útsýnispall- ur á toppi vatnstanksins,“ lýsir Dofri sem kveður Ólaf F. Magnús- son, þáverandi borgarstjóra, hafa lofað því á íbúafundi í Grafarvogi í apríl í fyrra að ráðist yrði í fram- kvæmdina strax um sumarið. „Ekkert gerðist í því annað en að síðsumars var komin á staðinn grafa og farin að grafa upp vatns- leiðslur þær sem lágu að tankin- um. Þegar spurst var fyrir um ástæðurnar kom upp úr dúrnum að framkvæmdasvið væri að fara að rífa tankinn,“ segir Dofri. Eftir þetta ítrekaði hverfisráð þann 18. ágúst að það mæltist ein- dregið til þess að áður en ákvörðun yrði tekin um að rífa vatnstankinn að lokið yrði við hönnun útsýnis- pallsins. Vísað var til menning- arsögulegs gildis tanksins sem á sínum tíma var reistur með fram- lagi úr Marshall-aðstoð Banda- ríkjamanna. Dofri segir hverf- isráðsmenn hafa komið þessum skilaboðum til bæði framkvæmda- sviðsins og embættis borgar- stjóra. „Á nýju ári bólaði enn ekkert á framkvæmdum eða samráði borgarinnar um þetta efni,“ segir Dofri sem kveður hverfisráðið því hafa ítrekað á fundi 10. febrú- ar að útbúinn yrði útsýnispallur á tankinum. „Í gær, 17. mars var hins vegar búið að rífa tankinn án nokkurs samráðs og þvert á margítrekaðar óskir íbúa,“ segir Dofri sem eins og áður kemur fram telur þetta vera blauta tusku í andlit íbúa hverfisins. Málið var rætt á fundi hverfisráðsins í gærkvöld. Ekki náðist í fulltrúa fram- kvæmdasviðs borgarinnar síð- degis í gær. Samkvæmt heimild- um innan úr borgarkerfinu var tankurinn á Hallsteinshöfða rifinn vegna kvartana íbúa úr nágrenn- inu sem töldu slyshættu af mann- virkinu. gar@frettabladid.is Vatnstankur hverfur í óþökk Grafarvogsbúa Þetta er blaut tuska í andlit Grafarvogsbúa, segir fulltrúi í hverfisráði Grafar- vogs, sem vildi að vatnstanki yrði breytt í útsýnispall. Þrátt fyrir fyrirheit borgar- yfirvalda hefur tankurinn nú verið rifinn. Kvartað hafði verið um slysahættu. DOFRI HERMANNSSON Á HALLSTEINSHÖFÐA Íbúar Grafarvogs höfðu efst á óskalista sínum að breyta sextíu ára gömlum vatnstanki í útsýnispall og töldu málið vera í vinnslu. Í fyrradag var tankurinn þó rifinn. SLÁTRUN Tæplega 350 hrossum var slátrað í sláturhúsi KVH ehf. á Hvammstanga á tveimur síðustu mánuðum. Að líkindum er um að ræða metfjölda sláturhrossa í sögu sláturhússins á tveggja mánaða tímabili, að sögn Magnúsar Freys Jónssonar framkvæmdastjóra. „Hrossin komu einkum af Suður- landinu en einnig úr öðrum lands- hlutum,“ segir Magnús. Hann segir sláturhúsið hafa hægt á hrossaslátruninni í þessum mán- uði. Ástæðan sé sú að afurðirnar hafi að mestu verið sendar til Rúss- lands, en hrossakjötsmarkaðurinn þar sé nú lokaður frá áramótum. „Þessi lokun er tengd leyfum,“ útskýrir Magnús. „Nú hafa mál skipast þannig að sláturhúsin hér þurfa að fá sérvottuð Rússaleyfi. Þau fást að því undangengnu að Rússarnir hafi komið hingað og tekið út sláturhúsin. Matvælastofn- un er nú að vinna í því máli.“ Magnús segir sláturhúsið hafa sent afurðirnar til Víetnam í stað- inn. Þar sé nýr markaður, en afurð- irnar hafi verið sérunnar fyrir Rússland. Vinnslan felist í að bein- draga skrokkana, þannig að kjöt- ið sé sent út með fitunni. Haldið sé eftir lundum og innralæri fyrir heimamarkaðinn. Víetnamarn- ir hafi tekið kjötið eins og það var unnið fyrir Rússamarkað. - jss SLÁTURHROSS Nokkur fjöldi sláturhrossa hafði safnast upp á Suðurlandi. Metfjölda hrossa var slátrað á Hvammstanga á síðustu tveim mánuðum: Rússar lokuðu á hrossakjötið DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs- aldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni og til- raun til manndráps, en til vara sérstaklega hættulega líkamsárás. Honum er gefið að sök að hafa í júlí á síðasta ári veist með hnífi að forstöðumanni áfangaheimilins að Hátúni 6 og stungið hann þrisvar sinnum. Fórnarlambið hlaut skurðsár á vinstri upphandlegg, sár yfir herðablað vinstra megin og sár í vinstri olnbogabót. Þess er aðallega krafist að árásarmaðurinn verði dæmdur til refsingar, en til vara að honum verði gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. - jss Karlmaður ákærður: Veittist með hnífi að manni NORÐURLAND Konur á háum hælum geta vænst þess að vera boðið far af aðgerðalausum lag- anna vörðum á Dalvík og Ólafs- firði, en samkvæmt upplýsingum sem fengust frá lögregluembætt- inu þar er það eitt aðalverkefni löggæslunnar um helgar. Spurður hvort þetta flokkist ekki undir kynjamismunun segir talsmaður lögreglunnar á svæð- inu að svo megi vel vera. „En við getum ekki keyrt framhjá kven- fólki að staulast um í hálku á háum hælum.“ Löggæsla á svæð- inu heyrir undir lögreglustjórann á Akureyri. - alþ Aðgerðalausar löggur: Keyra konur á háum hælum SJÁVARÚTVEGUR Kap VE hélt til síldveiða í Vestmannaeyjahöfn í gær. Var nótinni kastað á síldina örfáa metra frá bryggju. Þess- ar sérstöku veiðar komu til þar sem nauðsynlegt þótti að hreinsa hluta síldarinnar úr höfninni. Þar er gríðarlegt magn, eins og verið hefur undanfarnar vikur. Gísli Garðarsson skipstjóri telur að fengist hafi um 50 tonn í kastinu en reynsluboltar sem á horfðu vildu meina að 100 tonn hafi verið í nótinni eftir þetta einstaka kast. Leyfi fékkst til veiðanna til þess að hreinsa höfnina og mun verðmæti aflans fara til íþrótta- félagsins ÍBV. Því heyrðist fleygt að forsvarsmenn félagsins hafi sjaldan vonast eftir góðum afla- brögðum eins og í þetta skiptið. - shá Vestmannaeyjar: Síld veidd fyrir ÍBV í höfninni TROÐIN NÓT 50 til 100 tonn fengust í fyrsta kasti Kap VE í Vestmanneyjahöfn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR Hugur bænda kannaður Ekki er að vænta breytinga á búvöru- samningum á starfstíma þessarar ríkisstjórnar, sagði Steingrímur J. Sig- fússon í svari við fyrirspurn Arnbjargar Sveinsdóttur á Alþingi í gær. Hins vegar sagðist Steingrímur hafa umboð til að hefja óformlegar könnunarvið- ræður við bændur um mögulegar breytingar á samningnum. ALÞINGI SÖFNUN Um tuttugu þúsund manns hafa gefið hundrað krónur í sérstakri söfnun Rauða kross- ins, sem miðar að því að fá alla Íslendinga til að gefa hundr- að krónur sem nýtast munu til innanlandsaðstoðar. Sólveig Ólafsdóttir hjá Rauða krossinum segir að 300 þúsund símtöl þurfi að berast næstu tvo daga til að markmiðinu verði náð. Sólveig segist bjartsýn á að söfnunin taki kipp þar til henni lýkur annað kvöld. Söfnunarnúm- erið er 901 5100, og þótt söfnun- inni ljúki formlega annað kvöld verður númerið opið fram yfir helgi. - sh Söfnun Rauða krossins: Þurfa 300.000 símtöl í viðbót LÖGREGLUMÁL Fangageymslur á Sauðárkróki fyllt- ust í gær eftir að vegfarandi tilkynnti um öfuga númeraplötu á bíl. Það setti af stað atburðarás sem leiddi til handtöku sex einstaklinga sem meðal ann- ars er talið að hafi ætlað að stela hraðbanka. Frá þessu segir á vef héraðsfréttablaðsins Feykis. Gærdagurinn hófst á því að lögregla fékk tilkynn- ingu um að átt hefði verið við hraðbanka í Varma- hlíð. Lögregla telur að um vana menn hafi verið að ræða og að þeir hafi ætlað að stela bankanum eða fé úr honum. Það mistókst. Skömmu síðar barst ábending um bíl sem ók í átt að Sauðárkróki með öfuga númeraplötu. Í ljós kom að bíllinn hafði sést í eftirlitsmyndavél hraðbank- ans. Tvær stúlkur í annarlegu ástandi voru í bílnum sem að öllum líkindum var stolinn. Þær voru hand- teknar. Þessar handtökur leiddu lögreglu á slóð tveggja manna sem handteknir voru í sumarbústað í Varmahlíð. Á meðan hundur var að leita fíkniefna í bústaðnum bar að honum annan bíl sem í voru tveir ungir menn. Í þeim bíl fannst þýfi, líklega úr inn- brotum á Akureyri. Sexmenningarnir eru allir með langan afbrota- feril að baki. Lögregla beið þess í gær að unnt væri að taka af þeim skýrslur. - sh Tilkynning um öfuga númeraplötu leiddi til handtöku sex ætlaðra brotamanna: Hraðbankaþjófar í steininn HRAÐBANKI Lögreglan fékk í gærdag tilkynningu um að átt hefði verið við hraðbanka í Varmahlíð. Sparkaði í andlit Karlmaður á tvítugsaldri hefur verið ákærður fyrir að ráðast á mann á Reyðarfirði og slá hann með kreppt- um hnefa í andlitið. Árásarmaðurinn sparkaði síðan nokkrum sinnum í andlit fórnarlambsins. DÓMSTÓLAR SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.